Lífið

Mest lesið á Lífinu: Fyrsta skiptið, kaldir pottar og Katy Perry

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Mest lesnu fréttirnar á Lífinu er nýr liður á föstudögum hjá Ósk Gunnars á FM957.
Mest lesnu fréttirnar á Lífinu er nýr liður á föstudögum hjá Ósk Gunnars á FM957. Samsett

Mest lesið listinn á Lífinu á Vísi þessa vikuna er einstaklega fjölbreyttur en rauði þráðurinn er svo sannarlega ástarmálin.

Efst á toppi listans þessa vikuna voru reynslusögur þriggja íslenskra karlmanna af fyrsta skiptinu. Flest munum við eftir fyrstu kynlífsreynslunni okkar sem oftar en ekki fylgdu allskonar tilfinningar, upplifanir og stundum skrautlegar aðstæður.

Við fórum yfir vinsælustu fréttir vikunnar hjá Ósk Gunnars á FM957 í dag. 

Fréttir um ástarmál Hollywood leikara vekja alltaf athygli og þessi vika var engin undantekning. Sambönd stórleikarans Leonardo Dicaprio vekja yfirleitt töluverða athygli fólks en kappinn hefur verið í ástarsamböndum með fjölda þekktra kvenna í gegnum tíðina, yfirleitt fyrirsætum eða leikkonum. Eftir nýleg sambandsslit var útbúið graf sem sýnir að hann virðist alltaf yngja upp þegar kærusturnar ná 25 ára aldri.

Koma Katy Perry til Íslands vegna skemmtiferðaskipsins Norwegian Prima vakti mikið umtal.  Söngkonan var ekki að spara stóru orðin þegar hún talaði um Ísland í ræðu sinni við skírnarathöfn skemmtiferðaskipsins 

. „Ég er svo glöð að vera partur af þessari sjómannahefð hér á fallega Íslandi,“ sagði hún meðal annars.

„Þetta er fyrsta skiptið mitt á Íslandi, sem er einn myndrænasti staður í heiminum. Myndir sem ég hef bara séð sem skjáhvílur svo takk kærlega fyrir mig,“ sagði hún um þá náttúrufegurð sem landið býr yfir.

Íslenska söngkonan Bríet söng við þessa sömu nafnaathöfn og myndband frá því vakti mikla athygli á Vísi.

Söngkonan Britney Spears birti rúmlega tuttugu mínútna myndband á Youtube í vikunni þar sem hún tjáði sig meðal annars um sjálfræðisbaráttu sína. Myndbandinu hefur nú verið lokað og Britney hefur eytt Twitter færslu þar sem hún auglýsti það. Einnig virðist Britney hafa lokað Instagram reikning sínum aftur. Hugsanlega gerði einhver það fyrir hana. Er Britney ekki enn orðin alveg frjáls?

Fréttastofa heimsótti besta - og versta - kalda pott höfuðborgarsvæðisins, samkvæmt óformlegri könnun fréttastofu. Sprenging hefur orðið í vinsældum kaldra baða hér á landi síðustu ár - og nú er kaldur pottur í hverri einustu laug höfuðborgarsvæðisins. Kristín Ólafsdóttir kynnti sér málið.

Þorgerður Katrín á þrjú börn en Katrín dóttir hennar er einhverf og með þroskahömlun. Þorgerður segir áhyggjur foreldra fatlaðra aukist eftir því sem nær dregur skólalokum. Hún og Kristján Arason maðurinn hennar eru þar enginn undantekning og velta þau fyrir sér hvað bíði dóttur þeirra. Hún ræddi málið í þættinum Ísland í dag.

Love Island sigurvegarinn Davide Sanclimenti sást fara inn í leigubíl á skemmtanalífinu með stúlkum í London, þegar kærastan hans Ekin-Su Cülcüloğlu var ekki á landinu. The Sun fjallaði um málið, enda er mikill áhugi á Love Island stjörnunum þar í landi. Stúlkurnar voru þær Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir og Aníta Gunnarsdóttir.

Aðrar fréttir sem vöktu mikla athygli á Lífinu þessa vikuna voru gagnrýnin á Begga Ólafsútskýringin á vinsældum barnalagsins Í lari lei og rifrildi Birgittu Lífar og Patreks Jamie

Allar nýjustu fréttirnar á Lífinu á Vísi má finna HÉR!


Tengdar fréttir

Birgitta miður sín og biðst af­sökunar

Birgitta Líf hefur beðist afsökunar á orðum sem hún lét falla í Ísland í dag í vikunni. Hún hafi ekki verið að reyna að skjóta á neinn heldur einungis segja frá því hvernig LXS-þátturinn væri. 

Segir orð Birgittu vera kjafts­högg

Raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Patrekur Jaime er ekki sáttur með orð sem Birgitta Líf Björnsdóttir, einnig raunveruleikaleikastjarna, lét falla í Ísland í dag í vikunni. Birgitta sagði raunveruleikaþátt sinn vera „mest alvöru raunveruleikaþætti“ sem gerðir hafa verið hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×