Lífið

Svarar ekki gagn­rýnis­­röddum sem líkja honum við Andrew Tate

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Begga Ólafs hefur verið líkt við Andrew Tate eftir að hann birti nýlega myndband á samfélagsmiðlum þar sem hann ræddi hugmyndir um karlmennsku.
Begga Ólafs hefur verið líkt við Andrew Tate eftir að hann birti nýlega myndband á samfélagsmiðlum þar sem hann ræddi hugmyndir um karlmennsku. Vísir

Hlaðvarpsstjórnandinn Bergsveinn Ólafsson, betur þekktur sem Beggi Ólafs, segist ekki ætla að svara gagnrýni sem hann hefur sætt vegna myndbands sem hann birti á samfélagsmiðlum fyrr í vikunni. 

Í myndbandinu talar Beggi um karlmennsku og hefur í framhaldinu verið líkt við hinn umdeilda Andrew Tate. Tate var nýlega hent af samfélagsmiðlum Facebook og Instagram meðal annars vegna umdeildra ummæla um kynjahlutverk.

Beggi birti á mánudag myndband á Instagram og TikTok með yfirskriftinni „Það er ekki bara í lagi að vera karlmaður - heldur nauðsynlegt.“ Í því segir hann segir hann meðal annars karlmennsku vera dyggð og of algengt að karlmenn séu talaðir niður í samfélaginu. 

„Að þeir séu hluti af einhverju kúgandi feðraveldi og séu hvítir forréttindapésar. Það er bara kominn tími til að við tölum karlmenn upp og unga drengi upp. Þú vilt karlmenn sem gera allt í sínu valdi til þess að sinna hlutverkinu sínu eins vel og þeir mögulega geta, þú vilt menn sem taka ábyrgð, þú vilt menn sem provide-a fyrir sínum vinum og fjölskyldumeðlimum,“ segir Beggi í myndbandinu. 

Eitruð mennska frekar en eitruð karlmennska

„Eitruð karlmennska, þá ertu bara búinn að setja drullu í súpuna og hræra. Ég tel frekar að við eigum að tala um eitraða mennsku, eitraða hegðun. Af því að það að vera karlmaður er hlutverk fyrir sig. Það eru sterkir menn sem eru til staðar þegar allt fer í rugl og kaos og það eru sterkir menn sem meiða ekki og beita ekki ofbeldi, það eru sterkir menn sem gera samfélagið og heiminn að betri stað.“

Beggi hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir skilaboðin á samfélagsmiðlum og margir skrifað athugasemdir undir Instagram-færsluna og líkt honum við fyrrnefndan Tate og rithöfundinn Jordan Peterson, sem Beggi hitti í sumar þegar Peterson kom til landsins og hélt fyrirlestur.

Óhætt er að segja að athugasemdum hafi rignt við myndbandið og snúa sumar að því að umrætt feðraveldi hafi ekkert með það að gera að tala karlmenn niður, feðraveldið hafi neikvæð áhrif á karlmenn sjálfa. 

Gagnrýnin athugasemd

„Þér hefur ekki dottið í hug að lesa þér til sjálfur í stað þess að endurtaka bara það sem Jordan Peterson segir? [...] Eitruð karlmennska er heldur ekki eitthvað sem karlar nota sér í hag, heldur er eitruð karlmennska eitthvað sem hefur neikvæð áhrif á karla og samfélagið allt, rétt eins og feðraveldið. „Það er ekki bara í lagi að vera karlmaður - heldur nauðsynlegt“ þetta er líka bein tilvísun í orð Jordan Peterson.“

Margir hafa líka fagnað myndbandinu og tekið undir með Begga. Hann hefur undanfarna daga deilt í hringrás sinni á Instagram færslum þar sem fólk fagnar myndbandinu og skilaboðum hans um karlmennsku. Einn þeirra sem deildi myndbandinu, sem Beggi deildi svo áfram í hringrás sinni, skrifar að óhugnanlegt sé að sjá athugasemdir sem setji hann í sama box og Tate. 

Einn af þeim sem lofsamaði Begga fyrir myndbandið.Skjáskot

„Takk Beggi Ólafs þú talar fyrir marga sem þora ekki, í samfélagi sem er stýrt af ótta og pc rétttrúnaði,“ skrifar sá við deilinguna. 

Öfgafólk tengir

Svo er dæmi um öfgafólk sem tengir við skilaboð Begga. Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachmann, lögfræðingur og plötusnúður, vakti athygli á því á Twitter að Nordic Masculinity, nafnlaus aðgangur á Instagram sem talar harðlega gegn hópum innan hinsegin samfélagsins, lofsamaði og endurbirti erindi Begga.

Gyða Margrét Pétursdóttir prófessor í kynjafræði sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að orðræða sem þessi hafi lengi verið kölluð „drengjaorðræða“ í fræðunum. Hugmyndin á bak við slíka orðræðu sé að barátta fyrir jafnrétti kynjanna hafi komið niður á körlum og orðið til að skerða réttindi þeirra og stöðu í samfélaginu. Slík orðræða sé ekki ný af nálinni. 

Beggi geri út á skaðlegar karlmennskuhugmyndir í myndbandinu

Varðandi hugmyndina um eitraða karlmennsku hafi það hugtak verið gagnrýnt af fræðimönnum. Frekar eigi að tala um skaðlega karlmennsku eða skaðlega karlmennskuímynd, sem segja megi að Beggi gerist sekur um í myndbandinu. 

„Það má eiginlega segja að í þessum pistli sé Beggi að gera út á skaðlegar karlmennskuhugmyndir þegar hann er að leggja áherslu á að karlar eigi að vera skaffarar. Það er akkúrat það sem hefur verið lögð svo mikil áhersla á í fræðunum að afbyggja,“ sagði Gyða í samtali við Fréttablaðið

„Þessar hug­myndir hafa ein­mitt gert það að verkum að karlar eru síður í því hlut­verki og hafa minni mögu­leika en til dæmis konur á að rækta sam­band við börnin sín af því að þeir eru hlaðnir þessum klafa fyrir­vinnu­hlut­verksins sem birtist síðan í því að karlar taka styttra fæðinga­or­lof en konur og sinna minna börnum og öðru því sem fylgir því að halda heimili.“

„Tími karlmanna er loksins kominn, mikið var“

Eins og áður segir hefur Beggi verið harðlega gagnrýndur á samfélagsmiðlum fyrir myndbandið. Ólöf Tara, einn stjórnarmeðlima Öfga, skrifar á Twitter að það sé hlægilegt að Beggi fái lof fyrir hugrekki þegar hann lýsi skoðunum sem séu samfélagslega samþykktar. 

Fleiri velta fyrir sér hvað Begga þyki karlmennska vera. 

Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachmann, lögfræðingur og plötusnúður, birti myndbandið á Twitter og skrifaði að tími karlmanna væri loksins runninn upp. 

Myndbandið vakti hörð viðbrögð og fólk flykktist að til að gagnrýna Begga. 

Margir hafa líkt Begga við áðurnefndan Andrew Tate, sem nýlega var sparkað af öllum samfélagsmiðlum Meta, móðurfélags Facebook og Instagram. Tate hefur verið mikið á milli tannanna á fólki fyrir umdeilda hegðun á samfélagsmiðlum, sér í lagi fyrir orðræðu hans í garð kvenna og að ýta undir eitraða karlmennsku. 

Að sögn Tate þarf maður að vera moldríkur, myndarlegur, hávaxinn, vel gefinn, í góðu formi, frjáls til að gera það sem hann vill, þekkja mikilvægt fólk og svo mætti lengi telja til að vera alvöru karlmaður. Eitt af aðalatriðunum, eins og Beggi kemur að orði, er að geta séð fyrir sínu fólki. 

„Alveg sama um þessar tussur“

„Karlmaður sem er ekki hættulegur, maður sem er ekki vel á sig kominn líkamlega verður aldrei farsæll,“ segir Tate í einu myndbanda sinna.

„Kvenfólk er grundvallarþáttur í að hægt sé að líta á karlmann sem farsælan. Fólk heldur að ég sé með þessum hórum af því að ég vil kynlíf, það hefur ekkert með það að gera að ég hangi með þessum tíkum. Ég er með þessum tíkum svo allir viti hver aðalmaðurinn er. Mér er alveg sama um þessar tussur.“

Eitt þeirra ummæla sem þekktast er frá Tate er þegar hann tjáði sig fyrir nokkrum árum á Twitter um þau athæfi sem Harvey Weinstein gerðist sekur um. Hann sagði athæfið ekki eiga að flokkast sem kynferðisleg áreitni og að það væri fórnarlömbum kynferðisofbeldis að kenna að þau lentu í ofbeldinu. 

Skemmst er frá því að segja að Tate er búsettur í Rúmeníu, að hans sögn vegna þess að auðveldara er að komast undan nauðgunarákærum í Austur-Evrópu. Tate hefur verið ítrekað verið sakaður, og kærður, fyrir kynferðisofbeldi, heimilisofbeldi og mansal. 

Vísir fjallaði ítarlega um Tate á dögunum: 

Fréttastofa  hefur reynt undanfarna daga að ná tali af Begga vegna færslu hans og umræðunnar í kringum hana. Beggi vildi ekki ræða málið við Vísi en nefndi þó að bók frá honum væri væntanlega í útgáfu í október.


Tengdar fréttir

Hold­gervingur eitraðrar karl­mennsku slær í gegn á TikTok

Fyrrum bardagakappinn Andrew Tate hefur slegið í gegn á TikTok síðustu vikur, þá sérstaklega meðal ungra karlmanna. Ummæli Tate verður þó að flokka oft á tíðum sem afar umdeild en hann talar oftar en ekki niður til kvenna og ýtir undir eitraða karlmennsku. Fleiri og fleiri ungir karlmenn fylgjast með Tate á hverjum einasta degi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×