Formúla 1

Verstappen ræsti fjórtándi en kom langfyrstur í mark

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Max Verstappen vann belgíska kappaksturinn með yfirburðum.
Max Verstappen vann belgíska kappaksturinn með yfirburðum. Dan Mullan/Getty Images

Heimsmeistarinn Max Verstappen var í algjörum sérflokki þegar belgíski kappaksturinn í Formúlu 1 fór fram í dag. Hollendingurinn var fjórtándi í rásröðinni en tryggði sér þrátt fyrir það afgerandi sigur.

Verstappen tók út refsingu þar sem liðið hafði notað of marga vélavarhluti og því þurfti hann að ræsa aftastur. Fimm aðrir ökumenn tóku út samskonar refsingu og því gat Hollendingurinn unnið sig upp í fjórtánda sæti í tímatökunum í gær, sem hann svo gerði.

Mikil læti voru í ræsingunni í dag og strax á fyrsta hring keyrði Fernando Alonso aftan á sjöfalda heimsmeistarann Lewis Hamilton með þeim afleiðingum að Mercedes bíll Hamilton fór nánast á flug og hann þurfti að hætta keppni.

Það tók ríkjandi heimsmeistarann Max Verstappen ekki nema tólf hringi að vinna sig upp úr fjórtánda sæti og upp í það fyrsta. Ef frá eru taldir örfáir hringir eftir fyrsta þjónustuhlé Hollendingsins var hann í forystu það sem eftir lifði keppninnar og kom að lokum í mark tæpum tuttugu sekúndum á undan liðsfélaga sínum hjá Red Bull, Sergio Perez.

Carlos Sainz kom þriðji í mark á Ferrari bíl sínum og George Russell varð fjórði á Mercedes.

Eins og svo oft áður á tímabilinu var Ferrari liðið í algjöru rugli í keppnisáætlun sinni og ákveðið var að kalla Charles Leclerc, helsta keppinaut Verstappen, inn á þjónustusvæðið á næst seinasta hring dagsins til að freista þess að stela hraðasta hring dagsins. Það heppnaðist ekki betur en svo að hann missti Fernando Alonso og Leclerc kom því sjötti í mark á eftir Alonso sem varð fimmti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×