Hamilton kvartar undan ákvörðunum Ferrari: „Þetta var frekar slæmt“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júlí 2026 08:01 Lewis Hamilton tapaði dýrmætum stigum í baráttunni um heimsmeistaratitil ökuþóra í ungverska kappakstrinum í gær. epa/Zoltan Balogh Lewis Hamilton var ekki sáttur með ákvarðanir Ferrari í ungverska kappakstrinum í gær og sagði þær hafa kostað sig mikilvæg stig í baráttunni um heimsmeistaratitilinn.
Hamilton endaði í 4. sæti en eftir að hafa fengið fimm sekúndna refsingu færðist hann niður um eitt sæti. Englendingurinn varð því af mikilvægum stigum í baráttunni um heimsmeistaratitil ökuþóra. Seint í keppninni var Hamilton kallaður inn á þjónustusvæðið til að skipta um dekk á meðan sýndaröryggisbíll var á brautinni. Hann fékk ný dekk en þetta kostaði hann sæti á brautinni í baráttunni við Max Verstappen og Kimi Antonelli. Hamilton náði ekki að vinna sætin sem hann tapaði til baka og fyrir þetta þjónustuhlé fékk hann refsinguna. „Þetta var frekar slæmt. Frekar svekkjandi,“ sagði Hamilton eftir keppni gærdagsins. „Ég held klárlega að við hefðum ekki átt að taka þjónustuhléið en kallið kom rétt áður en ég fór inn og ég hafði engan tíma til að rökræða það.“ Hamilton segir að stoppið hafi reynst dýrkeypt fyrir sig. „Ég hefði aldrei stoppað ef það hefði þýtt að ég gæfi eftir stöðu mína á brautinni. Ég hefði kannski getað haldið 2. sætinu. Hann [Verstappen] var að ná mér en líklegast hefði það verið 3. sætið [fyrir framan Antonelli] og það hefði verið miklu betra. Í staðinn tapaði ég fullt af stigum,“ sagði Hamilton. Fyrir ungverska kappaksturinn var Hamilton 45 stigum á eftir Antonelli í keppni ökuþóra. Nú munar fimmtíu stigum á þeim. Keppendur í Formúlu 1 fá nú nokkrar vikur til að safna kröftum fyrir seinni hluta tímabilsins. Næsta keppni fer fram í Hollandi 23. ágúst.
Akstursíþróttir Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fleiri fréttir Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Fær verðlaunagripinn aftur þrem mánuðum eftir að hafa gefið hann frá sér Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Lando Norris stofnar sitt eigið lið Hadjar frá í aðra keppni Norris langar ekki að vinna með öðrum liðum og framlengir við McLaren Ferrari heiðrar Schumacher á heimavelli Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Norris náði öðrum sigri Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Norris náði ráspólnum aftur Russell vann sprettinn í þriðja sinn Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina „Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið“ Verstappen skrifaði undir nýjan samning Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Nýliðarnir skipta um liðsstjóra Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Fór á skeljarnar í sumarfríinu Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Sjá meira