Innlent

Sam­úðar­kveðjur berast víða að til íbúa Blöndu­óss

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Samúðarkveðjur hafa borist frá fjölda fólks til íbúa Blönduóss í kjölfar atburðarins voveiflega í gærmorgun.
Samúðarkveðjur hafa borist frá fjölda fólks til íbúa Blönduóss í kjölfar atburðarins voveiflega í gærmorgun. Vísir/Helena

Samúðarkveðjur hafa borist víða að til íbúa Blönduóss eftir voveiflega atburðinn sem átti sér stað þar í gærmorgun. Nú síðast sendi Guðni Th. Jóhannesson samúðarkveðju til íbúa en einnig hafa borist kveðjur frá Katrínu Jakobsdóttir forsætisáðherra og ýmsum sveitarfélögum.

Á vefsíðu Forsetaembættisins sendir Forseti Íslands íbúum Blönduóss kveðju vegna voðaatburðarins um nýliðna helgi. 

Í bréfi sem forseti sendi til Guðmundar Hauks Jakobssonar, forseta sveitarstjórnar Húnabyggðar, segir „að á þessari sorgarstundu hugsi Íslendingar til heimafólks þar og allra sem nú eiga skilið stuðning og samúð.“ 

Einnig biður hann forseta sveitarstjórnar að koma á framfæri þökkum til allra sem sinnt hafa löggæslu, hjúkrun og áfallahjálp á vettvangi.

Stjórnmálamenn hugsa til íbúa Blönduóss

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, skrifaði færslu á Facebook í dag þar sem hún sagði ekki annað hægt en „að tárast yfir ávarpi Guðmundar Hauks Jakobssonar“ þegar hann bað um stuðning þjóðarinnar.

Þá segir hún að hugur „okkar allra sé hjá þeim sem eiga um sárt að binda sem og öllum íbúum Húnabyggðar“ og að mestu skipti „að halda vel utan um hvert annað og standa saman í sorginni.“

Fleiri stjórnmálamenn hafa tjáð sig um atburðinn voveiflega. 

Í færslu sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, skrifaði á Facebook sagði hún „Megi allt gott umvefja fallega samfélagið á Blönduósi og Húnabyggð allri í þessum hrikalegu aðstæðum.“ Enn fremur sagðist hún viss um að með tímanum tækist samfélaginu að vinna úr þessum atburðum í krafti smæðar sinnar.

Þá tók Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, sér sérstakan tíma til að skila kveðjum til íbúa Blönduóss í viðtali við fréttamann Stöðvar 2 um ótengt mál.

Samúðarkveðjur frá sveitarfélögum

Kveðjur hafa borist einnig borist frá ýmsum sveitarfélögum til íbúa Blönduóss.

Fyrir hönd íbúa Skagafjarðar sendi sveitarstjórn Skagafjarðar innilegar samúðarkveðjur til Blönduóss. Jafnframt sagði sveitarstjórnin í kveðjunni að hugur Skagfirðinga væri hjá „okkar kæru nágrönnum og öllum þeim sem eiga um sárt að binda vegna atburðanna.“

Jafnframt sendi bæjarstjórn Akureyrar samúðarkveðjur til „allra þeirra sem eiga um sárt að binda eftir þá voveiflegu atburði sem áttu sér stað á Blönduósi í gærmorgun.“ Þar segir að engin orð fái lýst sorg og vanmætti bæjarstjórnarinnar gagnvart „svo skelfilegum atburði“ og að þau hugsi „með hluttekningu og hlýhug“ til vina sinna á Blönduósi.

Einnig sendi sveitarstjórn Húnaþings vestra kærleikskveðjur til Blönduóss þar sem þau sögðust harmi slegin og að hugur þeirra sé hjá öllum íbúum Húnabyggðar.

Kirkjan á Blönduósi.Vísir/Helena

Tengdar fréttir

Ekki annað hægt en að tárast yfir á­kalli um stuðning

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að ekki hafi verið annað hægt en að tárast yfir ákalli forseta sveitarstjórnar Húnabyggðar í gær, þar sem hann óskaði eftir stuðningi þjóðarinnar eftir skotárás á Blönduósi í gærmorgun.

Best að segja börnum sann­leikann um harm­leikinn en velja orðin vel

Fjölmargir þáðu áfallahjálp í Blönduóskirkju vegnar harmleiksins í bænum um helgina að sögn sóknarprestsins. Hann segir samráðshóp um áfallahjálp hittast í dag varðandi frekari viðbrögð. Best sé að segja börnum sannleikann, en velja orð sín vel.

Biðla til lands­manna að standa með í­búum Blönduóss

Sveitarstjórn Húnabyggðar hefur gefið frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem segir að íbúar Húnabyggðar séu í áfalli eftir að skotárás var framin í bænum í morgun. „Við erum brotin og þiggjum alla þá góðu strauma sem þið getið veitt okkur,“ segir forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×