Lífið

Minnast Oliviu Newton-John: „Þinn Danny, þinn John“

Elísabet Hanna skrifar
Olivia og John sem Sandy og Danny í Grease árið 1978.
Olivia og John sem Sandy og Danny í Grease árið 1978. Getty/Paramount Pictures

Söng- og leikkonan Olivia Newton-John hefur kvatt þennan heim og minnast vinir og samstarfsmenn hennar með fögrum orðum. Hún var 73 ára að aldri er hún lést eftir þrjátíu ára baráttu við brjóstakrabbamein.

Þinn Danny

Olivia er líklega  þekktust fyrir glæstan tónlistarferil og leik sinn í kvikmyndinni Grease frá árinu 1978 þar sem hún fór með hlutverk Sandy Olsson. Það var leikarinn John Travolta sem lét Danny Zuko á móti henni. 

John sendi Oliviu fallega kveðju eftir að hún kvaddi þennan heim. Eiginkona hans, Kelly Preston, dó fyrir tveimur árum eftir tveggja ára baráttu við brjóstakrabbamein en einnig höfðu hjónin John og Kelly misst elsta son sinn árið 2009.

„Mín kæra Olivia, þú gerðir líf okkar allra miklu betra. Áhrifin sem þú hafðir voru ótrúleg. Ég elska þig svo mikið. Við sjáumst aftur þegar líður á veginn og við verðum öll saman á ný,“ sagði hann í kveðjunni og endaði á:

„Þinn frá augnablikinu sem ég sá þig fyrst og að eilífu! Þinn Danny, þinn John!“
Hluti af genginu úr Grease kom saman áið 2018 í tilefni þess að fjörutíu ár voru liðin frá útgáfu myndarinnar. Á myndinni má sjá Didi Conn, Randal Kleiser, Olivia Newton-John, John Travolta og Barry Pearl.Getty/Steve Granitz

Rizzo sendir hlýjar kveðjur

„Ég veit ekki hvort ég hafi þekkt yndislegri manneskju,“ sagði leikkonan Stockard Channing í yfirlýsingu til People. Stockard fór með hlutverk Betty Rizzo í kvikmyndinni Grease.  „Olivia var kjarninn í sumrinu, birtan hennar, hlýjan hennar og náðin er það sem kemur alltaf upp í hugann þegar ég hugsa til hennar,“ sagði hún og bætti við:

„Ég mun sakna hennar gríðarlega."
Við tökur á kvikmyndinni Grease.Getty/Archive Photos

Minnast hennar sem fyrirmynd og fyrsta skotið

Á samfélagsmiðlum minnast stjörnur utan kvikmyndarinnar frægu hennar einnig en hér að neðan má sjá nokkrar af þeim fjölmörgu kveðjum:

Gabrielle Union sagði meðal annars „Grease er mín #1 mynd allra tíma og gerði mig að ævilöngum Oliviu Newton John aðdáanda“. Einnig sagðist hún hafa horft á Xanadu ásamt systur sinni oftar en hún geti talið. „Sendi svo mikla ást og bænir til gjafarinnar sem hún var og hæfileikabúnt.“

Kate Hudson lýsti því í kveðju hversu mikill innblástur Olivia var fyrir sig í kvikmyndaheiminum og hvernig hún reyndi að syngja lögin hennar á sama hátt og hún. „Takk fyrir að deila ljósinu þínu með heiminum sem hreyfði við og mótaði litlar stelpur eins og mig,“ sagði hún einnig og hvetur alla til þess að syngja í minningu hennar. 

Hugh Jackman sagði kynni sín við Oliviu hafa verið ein mestu forréttindi lífs síns „Hún var ekki bara hæfileikaríkasta manneskjan sem ég þekki, hún var líka með stærsta hjartað, gjafmild og fyndin,“ sagði hann og bætti við: „Það er ekkert leyndarmál að Olivia var fyrsta skotið mitt. Ég kyssti plakat af henni á hverju kvöldi áður en ég fór að sofa. Arfleifð hennar verður aðeins sterkari á komandi árum.“

James Gunn sem er leikstjóri Marvel myndanna Guardians of the Galaxy minnist hennar einnig sem fyrsta alvöru skotsins síns sem barn. „Af tilviljun keypti ég einnig og bjó í dásamlega húsinu sem hún byggði í Malibu. Megi hún hvíla í friði.“


Tengdar fréttir

Olivia Newton-John er látin

Söng- og leikkonan Olivia Newton-John er látin, 73 ára að aldri. John Easterling, eiginmaður hennar, segir hana hafi látist friðsamlega í morgun umkringd vinum og fjölskyldu. Hún hafði barist við brjóstakrabbamein síðustu þrjátíu ár.

Kelly Preston látin

Preston lék í fjölmörgum kvikmyndum og þáttaröðum en hún er þekktust fyrir frammistöðu sína í Mischief (1985), Twins (1988) og Jerry Maguire (1996). Preston fæddist 13. október 1962 í höfuðborg Hawaii en réttu nafni hét hún Kelly Kamalelehua Smith.

John Travolta eignast son

John Travolta og eiginkona hans Kelly Preston eignuðust dreng í gær, sem hefur verið nefndur Benjamin. Benjamin er þriðja barn hjónanna en talsmaður þeirra sendi tilkynningu frá sér svohljóðandi: John, Kelly og dóttir þeirra Ella Bleu, eru himinlifandi yfir nýja fjölskyldumeðliminum. Bæði móður og barni heilsast vel." Frumburður þeirra, Jett, féll frá í janúar 2009.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×