Umfjöllun: England - Svíþjóð 4-0 | England fór sannfærandi áfram í úrslitaleikinn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Leikmenn enska liðsins fagna hér marki Lucy Bronze. 
Leikmenn enska liðsins fagna hér marki Lucy Bronze.  Vísir/Getty

England bar sigurorð af Svíþjóð, 4-0, þegar liðin áttust við í undanúrslitum Evrópumóts kvenna í fótbolta á Bramall Lane í kvöld.

Enska liðið komst yfir eftir rúmlega hálftíma leik en þar var að verki Beth Mead. Lucy Bronze, Alessia Russo og Fran Kirby skoruðu svo mörk Englands í seinni hálfleik. 

Mead lagði upp tvö marka heimakvenna og Bronze eitt. 

Það kemur í ljós annað kvöld hvort það verður Frakkland eða Þýskaland sem mætir enska liðinu í úrslitaleik mótsins sem fram fer á Wembley á sunnudaginn kemur. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira