Hiti á bilinu sjö til átján stig en lítið sést til sólar Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar 10. júlí 2022 07:59 Væta og vindur um landið. Vísir/Vilhelm Lítið um sól á næstu dögum samkvæmt Veðurstofunni en hiti á bilinu 7 til 18 stig í vikunni.
Í dag má búast við suðlægum áttum með mildu veðri en rigningu og súld, bjartara á Norður- og Austurlandi en þó má búast við skúraleiðingum þar eftir hádegi. Á morgun verður hægara og úrkomuminna framan af degi en djúp lægð kemur upp að landi seinnipart morgundags með meiri rigningu sunnan- og austanlands. Á þriðjudag birtir til fyrir sunnan og hlýnar. Lægðin færist til og verður komin austur af landinu með strekkings norðanátt og talsverðri rigningu ásamt svölu veðri á Norður- og Austurlandi. Smám saman dregur úr vindi og úrkomu en lengst af verður nokkuð svalt og blautt fyrir norðan. Um helgina er útlit fyrir óstöðugt og svalt loft yfir landinu og því má reikna með skúradembum í flestum landshlutum. Nánar um veður má sjá á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Mánudagur Hæg breytileg átt. Skýjað að mestu á landinu og smávæta á víð og dreif. Norðan 3-10 m/s seinnipartinn með rigningu suðaustan- og austanlands. Hiti yfirleitt á bilinu 10 til 18 stig. Þriðjudagur Norðan og norðvestan 8-13 með talsverða rigningu fyrir norðan. Skýjað með köflum sunnanlands og stöku skúrir síðdegis. Hiti frá 6 stigum fyrir norðan, upp í 18 stig á Suðausturlandi. Miðvikudagur Norðvestan 5-15, hvassast fyrir austan. Rigning fyrir norðan, en stöku skúrir syðra. Dregur smám saman úr vindi og úrkomu. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast sunnanlands. Fimmtudagur Norðvestan 8-13 við norðausturströndina, en annars hægari. Rigning með köflum á Norður- og Austurlandi, en annars skýjað með köflum og smáskúrir í öðrum landshlutum. Hiti breytist lítið. Föstudagur Norðlæg átt með dálítilli rigningu á norðanverðu landinu. Bjartara sunnantil með stöku skúrum síðdegis. Hiti 7 stil 15 stig, hlýjast á Suðurlandi. Laugardagur Norðlæg átt, skýjað að mestu og skúrir á víð og dreif, einkum sunnantil síðdegis. Fremur svalt.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira