Eknar verða sex brautir hvorn daginn, þar á meðal verða hefðbundnari torfærubrautir, tímabrautir og svo það sem Hellukeppnirnar eru þekktastar fyrir ánna og mýrina sem eru á svæðinu. Þá má sjá bílana keyra á vatni.
Nánari upplýsingar er að finna á Facebook-viðburðinum: Sindratorfæran á Hellu 2022.
Venju samkvæmt eru keppendur, lið og bílar búin að taka ýmsum breytingum í vetur. Helst ber þar að nefna að Haukur Viðar Einarsson, hefur ásamt liði sínu sett um 1700 hestafla mótor í Hekluna. Haukur varð þriðji í Íslandsmeistaramótinu í fyrra, en með allt þetta afl er ljóst að Haukur og Heklan ætla sér stóra hluti.

Geir Evert Grímsson keppti á nýsmíðuðum bíl í fyrra en með vél sem var ekki ætluð bílnum og hann hefur ásamt sínu liði nú sett öflugri vél í bílinn og það má því vænta enn frekari tilþrifa frá honum.

Guðmundur Elíasson smíðaði svo nýjan bíl í vetur. Guðmundur er einn af Víkur þríeykinu. Þeir Ingi már Björnsson og Ingar Jóhannesson eru hinir tveir keppendurnir sem búa á Vík í Mýrdal.
Þetta er í fyrsta skipti í tvö ár sem áhorfendur fá aðgang að keppninni á Hellu. Það er því von á að mikil spenna verði í fólki að koma og sjá bílana skauta yfir ánna og takast á við mýrina ásamt því að glíma við aðrar brautir. Auk þess verður keppnin í beinni útsendingu á Facebook-síðu Flugbjörgunarsveitarinnar Hellu.