„Í dag erum við mjög þakklát fyrir að hafa tekið áhættuna“ Elísabet Hanna skrifar 3. maí 2022 13:31 Inga Elín er spennt að taka þátt í HönnunarMars þetta árið. Aðsend. Inga Elín er hönnuður sem sló heldur betur í gegn með veltibollunum sem Íslendingar virðast ekki fá nóg af. Hún opnaði Gallerí á Skólavörðustíg í miðju Covid ásamt syni sínu og er spennt að taka þátt í HönnunarMars í ár með nýrri hönnun, skýjadiskum. Blaðamaður hafði samband við Ingu Elínu sem er í óðaönn að undirbúa sig fyrir hátíðina sem hefst á miðvikudaginn og hefur varla undan að anna eftirspurn. Hvernig er stemningin fyrir HönnunarMars?Stemningin er góð og mikil eftirvænting fyrir nýju diskunum sem við erum að kynna. Mér finnst mjög gleðilegt að fólk fái að hittast aftur eftir tvö erfið Covid ár. View this post on Instagram A post shared by Inga Eli n Galleri (@ingaelin) Hefur þú áður tekið þátt?Já, ég hef oft tekið þátt áður, en það er sérstaklega gaman að halda sýningu í stemningunni hér á Skólavörðustígnum. Hvernig kviknaði hugmyndin að bollunum og svo diskunum?Hugurinn leitar að hugmyndum úr ýmsum áttum, og oft á ferðalögum mínum. Ég hannaði bollana út frá gömlum pottum sem voru notaðir hér á árum áður í Jótlandi. „Litlu diskarnir sem ég kynni nú á Hönnunarmars er undir áhrifum frá skýjum himinsins og jafnvel fallegum öldum hafsins.“ View this post on Instagram A post shared by Inga Eli n Galleri (@ingaelin) Hver voru fyrstu skrefin í að framkvæma þær?Fyrstu skrefin að hönnun bollana voru að renna 20-30 mismunandi form sem ég hafði séð fyrir mér. Hönnunin hefur þó tekið ýmsum breytingum frá upphafi. Hvernig viðbrögð hefur hönnunin verið að fá?Hönnunin hefur fengið frábærar viðtökur og sem dæmi voru Veltibollarnir að koma aftur eftir að hafa verið uppseldir frá því í Desember. „Einu vandræðin okkar í galleríinu er að eiga nóg til að selja og við höfum því ekki getað aukið opnunartímann þrátt fyrir afléttingar allra takmarkana.“ View this post on Instagram A post shared by Inga Eli n Galleri (@ingaelin) Hvað hefur verið skemmtilegasta verkefnið hjá þér til þessa?Það hefur verið mjög gefandi og skemmtilegt að móta fyrirtækið í kringum mín verk með syni mínum. Það hefur gefið mér mikinn innblástur og styrkt okkar samband. Hvernig var að opna gallerí á þessum skrítnu tímum?Sem betur fer ákváðum við að opna galleríið, þrátt fyrir óvissuna sem fylgdi fyrstu takmörkunum Covid faraldursins. Það var einfaldlega orðið of seint til að hætta við en við færðum markaðsetninguna mikið yfir á netið. „Í dag erum við mjög þakklát fyrir að hafa tekið áhættuna og þróað fyrirtækið okkar í samræmi við breytta tíma.“ View this post on Instagram A post shared by Inga Eli n Galleri (@ingaelin) Hvað er framundan?Framundan er að koma fleiri af mínum verkum í framleiðslu svo ég geti helgað mig meira í sköpun stærri verka. HönnunarMars 2022 fer fram 4. til 8. maí. Alla dagskránna má finna á vef hátíðarinnar. Frítt er inn á alla viðburði fyrir utan DesignTalks ráðstefnuna í Hörpu. HönnunarMars er opinn öllum og dagskráin er fjölbreytt svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hér má finna alla okkar umfjöllun um HönnunarMars 2022. Tíska og hönnun HönnunarMars Tengdar fréttir Orð frá ókunnugum í sundi enduðu á kaffibollum Samskipti manna og fugla, fagurfræði fuglabaða, samræður ókunnugra og gott kaffi er meðal viðfangsefna hjá Studio allsber á HönnunarMars í ár. Þetta skapandi teymi var stofnað árið 2020 og samanstendur af þeim Agnesi Freyju Björnsdóttir, Silvíu Sif Ólafsdóttur og Sylvíu Dröfn Jónsdóttur en þær leira keramikmuni með dass af leikgleði og einföldu handverki. Blaðamaður hafði samband við þær og tók púlsinn fyrir HönnunarMars. 1. maí 2022 07:30 „Við erum öll ólík en það er mjög hvetjandi að vinna saman“ Verslunin Apotek Atelier var opnuð í nóvember síðastliðnum á Laugavegi 16 og selur íslenska og vandaða hönnun. Rýmið er rekið af þremur íslenskum fatahönnuðum, Halldóru Sif með Sif Benedicta, Ýr Þrastardóttur með Another Creation og Sævari Markúsi sem hannar undir eigin nafni. 29. apríl 2022 13:30 Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Fleiri fréttir Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Sjá meira
Blaðamaður hafði samband við Ingu Elínu sem er í óðaönn að undirbúa sig fyrir hátíðina sem hefst á miðvikudaginn og hefur varla undan að anna eftirspurn. Hvernig er stemningin fyrir HönnunarMars?Stemningin er góð og mikil eftirvænting fyrir nýju diskunum sem við erum að kynna. Mér finnst mjög gleðilegt að fólk fái að hittast aftur eftir tvö erfið Covid ár. View this post on Instagram A post shared by Inga Eli n Galleri (@ingaelin) Hefur þú áður tekið þátt?Já, ég hef oft tekið þátt áður, en það er sérstaklega gaman að halda sýningu í stemningunni hér á Skólavörðustígnum. Hvernig kviknaði hugmyndin að bollunum og svo diskunum?Hugurinn leitar að hugmyndum úr ýmsum áttum, og oft á ferðalögum mínum. Ég hannaði bollana út frá gömlum pottum sem voru notaðir hér á árum áður í Jótlandi. „Litlu diskarnir sem ég kynni nú á Hönnunarmars er undir áhrifum frá skýjum himinsins og jafnvel fallegum öldum hafsins.“ View this post on Instagram A post shared by Inga Eli n Galleri (@ingaelin) Hver voru fyrstu skrefin í að framkvæma þær?Fyrstu skrefin að hönnun bollana voru að renna 20-30 mismunandi form sem ég hafði séð fyrir mér. Hönnunin hefur þó tekið ýmsum breytingum frá upphafi. Hvernig viðbrögð hefur hönnunin verið að fá?Hönnunin hefur fengið frábærar viðtökur og sem dæmi voru Veltibollarnir að koma aftur eftir að hafa verið uppseldir frá því í Desember. „Einu vandræðin okkar í galleríinu er að eiga nóg til að selja og við höfum því ekki getað aukið opnunartímann þrátt fyrir afléttingar allra takmarkana.“ View this post on Instagram A post shared by Inga Eli n Galleri (@ingaelin) Hvað hefur verið skemmtilegasta verkefnið hjá þér til þessa?Það hefur verið mjög gefandi og skemmtilegt að móta fyrirtækið í kringum mín verk með syni mínum. Það hefur gefið mér mikinn innblástur og styrkt okkar samband. Hvernig var að opna gallerí á þessum skrítnu tímum?Sem betur fer ákváðum við að opna galleríið, þrátt fyrir óvissuna sem fylgdi fyrstu takmörkunum Covid faraldursins. Það var einfaldlega orðið of seint til að hætta við en við færðum markaðsetninguna mikið yfir á netið. „Í dag erum við mjög þakklát fyrir að hafa tekið áhættuna og þróað fyrirtækið okkar í samræmi við breytta tíma.“ View this post on Instagram A post shared by Inga Eli n Galleri (@ingaelin) Hvað er framundan?Framundan er að koma fleiri af mínum verkum í framleiðslu svo ég geti helgað mig meira í sköpun stærri verka. HönnunarMars 2022 fer fram 4. til 8. maí. Alla dagskránna má finna á vef hátíðarinnar. Frítt er inn á alla viðburði fyrir utan DesignTalks ráðstefnuna í Hörpu. HönnunarMars er opinn öllum og dagskráin er fjölbreytt svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hér má finna alla okkar umfjöllun um HönnunarMars 2022.
HönnunarMars 2022 fer fram 4. til 8. maí. Alla dagskránna má finna á vef hátíðarinnar. Frítt er inn á alla viðburði fyrir utan DesignTalks ráðstefnuna í Hörpu. HönnunarMars er opinn öllum og dagskráin er fjölbreytt svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hér má finna alla okkar umfjöllun um HönnunarMars 2022.
Tíska og hönnun HönnunarMars Tengdar fréttir Orð frá ókunnugum í sundi enduðu á kaffibollum Samskipti manna og fugla, fagurfræði fuglabaða, samræður ókunnugra og gott kaffi er meðal viðfangsefna hjá Studio allsber á HönnunarMars í ár. Þetta skapandi teymi var stofnað árið 2020 og samanstendur af þeim Agnesi Freyju Björnsdóttir, Silvíu Sif Ólafsdóttur og Sylvíu Dröfn Jónsdóttur en þær leira keramikmuni með dass af leikgleði og einföldu handverki. Blaðamaður hafði samband við þær og tók púlsinn fyrir HönnunarMars. 1. maí 2022 07:30 „Við erum öll ólík en það er mjög hvetjandi að vinna saman“ Verslunin Apotek Atelier var opnuð í nóvember síðastliðnum á Laugavegi 16 og selur íslenska og vandaða hönnun. Rýmið er rekið af þremur íslenskum fatahönnuðum, Halldóru Sif með Sif Benedicta, Ýr Þrastardóttur með Another Creation og Sævari Markúsi sem hannar undir eigin nafni. 29. apríl 2022 13:30 Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Fleiri fréttir Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Sjá meira
Orð frá ókunnugum í sundi enduðu á kaffibollum Samskipti manna og fugla, fagurfræði fuglabaða, samræður ókunnugra og gott kaffi er meðal viðfangsefna hjá Studio allsber á HönnunarMars í ár. Þetta skapandi teymi var stofnað árið 2020 og samanstendur af þeim Agnesi Freyju Björnsdóttir, Silvíu Sif Ólafsdóttur og Sylvíu Dröfn Jónsdóttur en þær leira keramikmuni með dass af leikgleði og einföldu handverki. Blaðamaður hafði samband við þær og tók púlsinn fyrir HönnunarMars. 1. maí 2022 07:30
„Við erum öll ólík en það er mjög hvetjandi að vinna saman“ Verslunin Apotek Atelier var opnuð í nóvember síðastliðnum á Laugavegi 16 og selur íslenska og vandaða hönnun. Rýmið er rekið af þremur íslenskum fatahönnuðum, Halldóru Sif með Sif Benedicta, Ýr Þrastardóttur með Another Creation og Sævari Markúsi sem hannar undir eigin nafni. 29. apríl 2022 13:30