Matseðill vikunnar: Mexíkó veisla þrír réttir Heimkaup.is 12. apríl 2022 11:16 Hér koma uppskriftir að Mexíkó lasagne, Chili con Carne og Mexíkókjúklingarétti. Hráefnið má nálgast með einum smelli á Heimkaup.is Mexíkó veisla stendur yfir á Heimkaup. Þrjár vinsælustu uppskriftirnar er að finna hér fyrir neðan og hægt að nálgast allt hráefnið með einum smelli.
Mexíkó lasagna Mexikó lasagna er hættulega góður heimilismatur sem er bæði einfaldur og einstaklega bragðgóður. Smelltu hér til að nálgast hráefnið í réttinn. Innihald 4-5 kjúklingabringur ½ laukur saxaður 1 stór rauð paprika 1 bréf taco krydd 1 stór krukka af salsa sósu ( þið veljið hvort hún eigi að vera mild eða sterk) 150 ml matreiðslurjómi 100 gr rjómaostur Tortillur (1 pakki af minni gerðinni) Mozzarella ostur rifinn Smá kóríander til að setja yfir í lokin ( má sleppa) Aðferð Byrjið á að hita ofninn á 180 gráður. Skerið lauk og papriku fínt og kjúklingabringurnar í litla bita. Steikið laukinn og paprikuna á pönnu upp úr olíu þar til það fer aðeins að mýkjast. Bætið svo kjúklingnum á pönnuna og steikið áfram. Hellið kryddinu yfir og steikið í smá stund til viðbótar. Hellið salsasósunni og matreiðslurjóma yfir og látið suðuna koma upp. Hrærið rjómaosti saman við sé hann notaður. Látið malla á pönnunni saman í nokkrar mínútur. Setjið tortillaköku í botn á eldföstu formi, það fer aðeins eftir hvernig form þið notið en stundum klippi ég kökurnar til svo að þær passi betur í formið. Setjið kjúklingablönduna yfir og síðan til skiptis tortillakökur og kjúklingablönduna, passið að hafa nóg af vökva/safa af pönnunni með til að mýkja kökurnar. Stráið mozzarella osti yfir og setjið svo formið inn í ofn þar til osturinn er bráðnaður og kominn með fallegan lit. Mexíkó kjúklingaréttur Hérna kemur uppskrift að góðum kjúklingarétti. Lítil fyrirhöfn fylgir þessum rétti og hann þykir alltaf jafn góður. Léttur réttur með smá mexíkósku ívafi. Smelltu hér til að nálgast hráefnið í réttinn. Innihald 4-5 kjúklingabringur 1 dós ostasósa úr krukku1 1 dós salsasósa úr krukku 170 g Doritos snakk (veljið ykkar uppáhaldsbragðtegund) 100 g rifinn ostur 1 dós sýrður rjómi Aðferð Byrjið á að skera niður kjúklingabringurnar í bita og steikið upp úr olíu á pönnu og kryddið. Blandið mexíkóskri ostasósu og salsasósu saman í potti við vægann hita. Leggið helminginn af sósublöndunni í botninn á eldföstu formi, setjið kjúklingabitana ofan á og brjótið niður snakk yfir, endurtakið tvisvar sinnum. Stráið rifnum osti yfir ásamt því að setja nokkrar klípur af sýrðum rjóma aðeins yfir réttinn. Eldið í ofni í um 25–30 mínútur á 180 gráðum. Berið fram með góðu salati og sýrðum rjóma til hliðar. Chili con Carne - Gott í matinn Einfaldur réttur þó hráefnin séu mörg. Með chiliréttinum er afbragðsgott að bera fram hrísgrjón, maísbaunir, salat og kalda sósu. Smelltu hér til að nálgast hráefnið. Hráefni 2 msk. olía 2 msk. smjör 2 stk. gulir laukar 4 stk. hvítlauksrif 1 msk. kúmen, heilt 1⁄2 stk. gul paprika 1⁄2 stk. rauð paprika 1⁄2 stk. græn paprika 500 g nautahakk Saltflögur, eftir smekk Grófur svartur pipar, eftir smekk Chiliflögur, eftir smekk 1 msk. Worchestershiresósa 2 stk. grænmetiskraftur 1 dós niðursoðnir saxaðir tómatar 1 dós bakaðar baunir 1 dós nýrnabaunir 1 msk. hunang 1 box rjómaostur með svörtum pipar 100 g suðusúkkulaði Steinselja til að skreyta með Aðferð Hitið olíu og smjör á pönnu eða notið djúpan pott. Skerið laukinn og hvítlaukinn smátt og bætið við ásamt kúmeni. Látið laukinn verða glæran og finnið dásamlegan ilminn fylla eldhúsið. Skerið paprikurnar i teninga og bætið við. Látið svitna í pottinum. Setjið nautahakkið saman við og látið það brúnast með grænmetinu. Kryddið með salti, pipar, chiliflögum og worchestershiresósu. Farið varlega með chiliflögurnar. Það þarf oftast ekki mikið af þeim. Opnið dósirnar og setjið innihaldið í pottinn. Hrærið og látið suðuna koma upp og lækkið þá hitann eitthvað. Látið malla hægt og rólega í klukkutíma ef hægt er. Setjið hunangið, rjómaostinn og súkkulaðið út í og látið það bráðna með. Skreytið með steinselju þegar borið er fram.
Matur Hús og heimili Matseðill vikunnar Mest lesið Nýbökuðu hjónin kíktu í kaffi til Guðna Lífið Eva Ruza og Gunna Dís inn fyrir Gísla og Felix Lífið Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi Lífið Ási selur íbúðina eftir sambandsslitin Lífið Missti allar tærnar þrjátíu árum eftir að konan skar undan honum Lífið Bergur og Inga Lóa selja eitt glæsilegasta hús Garðabæjar Lífið Sofia Vergara með fjallmyndarlegum lækni Lífið Þorði loks á 22, gekk að Felix og sagði hæ Lífið Laufey í Vogue ásamt Rihönnu Lífið Galvaskar á Gugguvaktinni Lífið Fleiri fréttir 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Match Attax Extra viðburður í Fótboltalandi á laugardaginn! Elira flutt á yndislegan stað á Kirkjusandi Sjá meira