Sport

Tárvot Osaka vildi losna við konu sem sýndi óþverraskap

Sindri Sverrisson skrifar
Naomi Osaka felldi tár eftir að áhorfandi kallaði til hennar í leiknum gegn Veroniku Kudermetova í Kaliforníu um helgina.
Naomi Osaka felldi tár eftir að áhorfandi kallaði til hennar í leiknum gegn Veroniku Kudermetova í Kaliforníu um helgina. AP Photo/Mark J. Terrill

Japanska tennisstjarnan Naomi Osaka barðist við að halda aftur af tárunum eftir að hafa orðið fyrir aðkasti úr röðum áhorfenda á Indian Wells-mótinu um helgina, á sama velli og Williams-systur urðu fyrir kynþáttaníði á fyrir tveimur áratugum.

„Naomi, þú sökkar!“ heyrðist kona kalla úr áhorfendaskaranum á mótinu, þegar Osaka mætti hinni rússnesku Veroniku Kudermetova í 2. umferð mótsins um helgina og tapaði 2-0.

Osaka, sem tók sér langt hlé á síðasta ári til að hlúa að andlegri heilsu sinni, hafði átt erfitt uppdráttar í fyrra setti leiksins þegar áhorfandinn kallaði á hana, og kallið hafði augljós áhrif á hana.

Osaka bað í fyrstu um að dómari vísaði áhorfandanum í burtu. Eftir að hafa tapað fyrra settinu 6-0 bað hún svo dómarann um að fá að tala til áhorfenda en báðum beiðnunum var hafnað. Umsjónarmaður á mótinu ákvað að ef fleiri niðrandi köll heyrðust þá yrði sökudólgurinn fundinn.

Eftir að hafa tapað seinna settinu gegn Kudermetovu 6-4, og þar með leiknum, fékk Osaka hins vegar leyfi til að tala til áhorfenda.

Hún rifjaði upp atvik frá árinu 2001 á sama velli, þar sem þær Venus og Serena Williams, þá rétt að hefja glæstan feril sinn, urðu fyrir kynþáttaníði og bauli. Systurnar sniðgengu mótið í 14 ár.

„Ég vildi bara þakka ykkur fyrir. Mér finnst eins og að ég gráti alveg nóg fyrir framan myndavélar,“ sagði Osaka við áhorfendur eftir tapið um helgina.

„Í hreinskilni sagt þá hef ég áður orðið fyrir aðkasti áhorfenda, og það hefur í raun ekki angrað mig, en að lenda í því hér… Ég sá myndband af því þegar hér voru hrópuð ókvæðisorð að Venus og Serenu. Ef þið hafið ekki horft á það þá ættuð þið að gera það og ég veit ekki hvers vegna, en þetta festist í hausnum á mér og spilaðist þar aftur og aftur,“ sagði Osaka.

Þetta var fyrsta mót Osaka síðan á Opna ástralska mótinu í janúar þar sem hún féll úr keppni í þriðju umferð.

Þessi 24 ára gamla tennisstjarna hefur unnið risamót á hverju ári frá árinu 2018; tvívegis Opna bandaríska og tvívegis Opna ástralska. Hún dró sig hins vegar úr keppni á Opna franska mótinu í fyrra, eftir að hafa neitað að mæta á fjölmiðlafundi á mótinu, og greindi frá andlegum erfiðleikum sem komu einnig í veg fyrir að hún keppti á Wimbledonmótinu í fyrra.


Tengdar fréttir

Utan vallar: Hatrið orðið lýjandi fyrir ungt í­þrótta­fólk

Þegar fólk nær ákveðnu stigi af frægð og frama hættum við sjá það sem manneskjur. Þau eru ekki lengur mennsk í okkar augum, það er ekki hlutverkið sem við höfum gefið þeim. Við höfum afmennskað þau að mörgu ef ekki öllu leyti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×