Vafi vegna nýrra kosningalaga ástæða þess að málin voru felld niður Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. mars 2022 15:36 Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis, Guðrún Sighvatsdóttir og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir til vinstri, Ingi Tryggvason fyrir miðju, Katrín Pálsdóttir og Bragi Rúnar Axelsson til hægri. Lögreglustjórinn á Vesturlandi telur að ný kosningalög sem tóku gildi um áramótin kveði ekki á með beinum hætti um skyldu til að innsigla kjörgögn að lokinni talningu í kosningum. Því sé vafi á því hvort að meint brot starfsmanna yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis í síðustu Alþingiskosningum varði refsingu. Sá vafi var túlkaður starfsmönnunum í hag. Greint var frá því í dag að lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur fellt niður mál á hendur starfsmönnum yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis í kjölfar Alþingiskosninganna í september. Talning í kjördæminu gekk ekki áfallalaust fyrir sig og komu upp ábendingar þess efnis að lög hefðu verið brotin meðal annars vegna þess að atkvæði hefðu verið skilin eftir óinnsigluð að lokinni talningu. Lögreglustjórinn á Vesturlandi sektaði alla starfsmenn yfirkjörstjórnar í október. Starfsmennirnir neituðu að greiða sektina. Nýju kosningalögin ekki skýr um skyldu til að innsigla kjörgögn að mati lögreglustjórans Starfsmennirnir hafa nú fengið bréf frá lögreglustjóranum á Vesturlandi þar sem þeim er tilkynnt að mál þeirra, þar sem þeim var gefið að sök að hafa ekki sett kjörseðla undir innsigli, þegar yfirkjörstjórn og starfsmenn á hennar vegum yfirgáfu talningstað, hafi verið látin niður falla. Salur Hótels Borgarness, þar sem talningin fór fram.Vísir/Vilhelm Í umræddu bréfi, sem fréttastofa hefur undir höndum, segir lögreglustjóri að þann 1. janúar 2022 hafi ný kosningalög tekið gildi sem að mati lögreglu séu ekki nægilega skýr um skyldu til innsiglunar kjörgagna líkt og henni þótti um þágildandi kosningalög. Því telur lögreglustjóri vafa um refsinæmi ætlaðs brots yfirkjörstjórnarmanna eftir gildistöku nýju kosningalaganna. Að mati lögreglustjóra er ekki fjallað með jafn skýrum hætti um skyldu til innsiglunar kjörgagna líkt og gert var í þágildandi kosningalögum nr. 24/2000. Ekki er með beinum hætti fjallað um skyldu til innsiglunar kjörgagna að lokinni talningu í gildandi kosningalögum nr. 112/2021. Umrædd kosningalög voru samþykkt af Alþingi á síðasta ári og tóku þau sem fyrr segir gildi um áramótin. Þau komu í stað kosningalaga frá árinu 2000, sem kosið var eftir í Alþingiskosningunum í haust. Í lögunum frá árinu 2000 er skýrt kveðið á um skyldu yfirkjörstjórnar til að innsigla alla notaða kjörseðla að lokinni talningu, sbr. 104. grein þeirra laga: 104. grein þágildandi kosningalaga frá árinu 2000 Að talningu lokinni skal loka umslögum með ágreiningsseðlum með innsigli yfirkjörstjórnar og eiga umboðsmenn lista rétt á að setja einnig fyrir þau innsigli sín. Yfirkjörstjórn sendir [ráðuneytinu] 1) eftirrit af gerðabók sinni viðvíkjandi kosningunni ásamt ágreiningsseðlunum sem [ráðuneytið] 1) leggur fyrir Alþingi í þingbyrjun með sömu ummerkjum sem það tók við þeim. Þá skal yfirkjörstjórn setja alla notaða kjörseðla undir innsigli og skal gildum og ógildum kjörseðlum haldið sér. Kjörseðlana skal geyma þar til Alþingi hefur úrskurðað um gildi kosninganna, sbr. 120. gr., enda sé þeirra eigi þörf vegna kæru sem beint hefur verið til lögreglustjóra. Að því búnu skal eyða kjörseðlunum og skrá yfirlýsingu um það í gerðabók yfirkjörstjórnar. Yfirkjörstjórn skal búa um allar kjörskrár í innsigluðum umbúðum og senda [ráðuneytinu] 1) sem geymir þær í eitt ár, en að því búnu skal eyða þeim Í nýju kosningalögunum er ekki minnst á að innsigla þurfi kjörgögn að lokinni talningu, en tekið er fram að „ráðherra setji reglugerð, að fenginni tillögu landskjörstjórnar, m.a. um framkvæmd talningar við almennar kosningar, meðferð ágreiningsseðla, meðhöndlun kjörgagna og kjörskráa og um frágang að lokinni talningu, þ.m.t. um eyðingu kjörseðla og annarra gagna.“ Vafinn túlkaður starfsmönnum yfirkjörstjórnar í hag Í bréfi lögreglustjórans kemur fram að málsgögn hafi verið yfirfarin með hliðsjón af því hvort ætlað brot hafi varðað við refsiákvæði hinna nýrru kosningalaga. Í ljósi þess að vafi sé á refsinæmi hins meinta brots yfirkjörstjórnarmanna með gildistöku nýrra kosningalaga verði að túlka þann vafa þeim í hag. Lögreglan á Borgarnesi rannsakaði málið.Vísir/Vilhelm Telur lögreglustjóri að með hliðsjón af rannsóknargögnum verki ekki talið að það sem fram hafi komið við rannsókn málsins sé nægjanlegt eða líklegt til sakfellis. Hafa málin því verið felld niður. Á annan tug kæra barst vegna þingkosninganna í haust og hóf undirbúningskjörbréfanefnd rannsókn á talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi í kjölfarið. Alþingi staðfesti svo í lok nóvember kjörbréf allra þeirra 63 þingmanna sem Landskjörstjórn gaf út að lokinni endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi. Alþingi samþykkti tillögu meirihluta kjörbréfanefndar þess efnis og var því ekki boðað til uppkosningar. Ekki náðist í Gunnar Örn Jónsson, lögreglustjórann á Vesturlandi við vinnslu fréttarinnar. Lögreglumál Norðvesturkjördæmi Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Alþingiskosningar 2021 Tengdar fréttir Mál yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis fellt niður Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur fellt niður mál á hendur starfsmönnum yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis í kjölfar Alþingiskosninganna í september. Að minnsta kosti tveir starfsmenn yfirkjörstjórnar hafa fengið send bréf þess efnis. Þeirra á meðal Ingi Tryggvason, sem gegndi formannsstöðu, og Katrín Pálsdóttir sem sæti átti í yfirkjörstjórn. 14. mars 2022 12:34 Enginn í yfirkjörstjórn greitt sektina og styttist í ákærur Enginn þeirra fimm sem sátu í yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis í síðustu þingkosningum hefur greitt sekt sem þeim var gert að greiða til að ljúka máli sem varðar talningu atkvæða í kjördæminu. Fresturinn til að ljúka málinu er löngu liðinn. 27. janúar 2022 06:32 Meðlimir í yfirkjörstjórn neita að greiða sekt og kvitta ekki undir svör við kærum Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur boðið allri yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis að ljúka máli sem varðar talningu atkvæða í kjördæminu með sekt. Samkvæmt heimildum fréttastofu ætla nefndarmenn ekki að greiða sektina og ágreiningur er um talninguna innan kjörstjórnarinnar. 20. október 2021 12:01 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Greint var frá því í dag að lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur fellt niður mál á hendur starfsmönnum yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis í kjölfar Alþingiskosninganna í september. Talning í kjördæminu gekk ekki áfallalaust fyrir sig og komu upp ábendingar þess efnis að lög hefðu verið brotin meðal annars vegna þess að atkvæði hefðu verið skilin eftir óinnsigluð að lokinni talningu. Lögreglustjórinn á Vesturlandi sektaði alla starfsmenn yfirkjörstjórnar í október. Starfsmennirnir neituðu að greiða sektina. Nýju kosningalögin ekki skýr um skyldu til að innsigla kjörgögn að mati lögreglustjórans Starfsmennirnir hafa nú fengið bréf frá lögreglustjóranum á Vesturlandi þar sem þeim er tilkynnt að mál þeirra, þar sem þeim var gefið að sök að hafa ekki sett kjörseðla undir innsigli, þegar yfirkjörstjórn og starfsmenn á hennar vegum yfirgáfu talningstað, hafi verið látin niður falla. Salur Hótels Borgarness, þar sem talningin fór fram.Vísir/Vilhelm Í umræddu bréfi, sem fréttastofa hefur undir höndum, segir lögreglustjóri að þann 1. janúar 2022 hafi ný kosningalög tekið gildi sem að mati lögreglu séu ekki nægilega skýr um skyldu til innsiglunar kjörgagna líkt og henni þótti um þágildandi kosningalög. Því telur lögreglustjóri vafa um refsinæmi ætlaðs brots yfirkjörstjórnarmanna eftir gildistöku nýju kosningalaganna. Að mati lögreglustjóra er ekki fjallað með jafn skýrum hætti um skyldu til innsiglunar kjörgagna líkt og gert var í þágildandi kosningalögum nr. 24/2000. Ekki er með beinum hætti fjallað um skyldu til innsiglunar kjörgagna að lokinni talningu í gildandi kosningalögum nr. 112/2021. Umrædd kosningalög voru samþykkt af Alþingi á síðasta ári og tóku þau sem fyrr segir gildi um áramótin. Þau komu í stað kosningalaga frá árinu 2000, sem kosið var eftir í Alþingiskosningunum í haust. Í lögunum frá árinu 2000 er skýrt kveðið á um skyldu yfirkjörstjórnar til að innsigla alla notaða kjörseðla að lokinni talningu, sbr. 104. grein þeirra laga: 104. grein þágildandi kosningalaga frá árinu 2000 Að talningu lokinni skal loka umslögum með ágreiningsseðlum með innsigli yfirkjörstjórnar og eiga umboðsmenn lista rétt á að setja einnig fyrir þau innsigli sín. Yfirkjörstjórn sendir [ráðuneytinu] 1) eftirrit af gerðabók sinni viðvíkjandi kosningunni ásamt ágreiningsseðlunum sem [ráðuneytið] 1) leggur fyrir Alþingi í þingbyrjun með sömu ummerkjum sem það tók við þeim. Þá skal yfirkjörstjórn setja alla notaða kjörseðla undir innsigli og skal gildum og ógildum kjörseðlum haldið sér. Kjörseðlana skal geyma þar til Alþingi hefur úrskurðað um gildi kosninganna, sbr. 120. gr., enda sé þeirra eigi þörf vegna kæru sem beint hefur verið til lögreglustjóra. Að því búnu skal eyða kjörseðlunum og skrá yfirlýsingu um það í gerðabók yfirkjörstjórnar. Yfirkjörstjórn skal búa um allar kjörskrár í innsigluðum umbúðum og senda [ráðuneytinu] 1) sem geymir þær í eitt ár, en að því búnu skal eyða þeim Í nýju kosningalögunum er ekki minnst á að innsigla þurfi kjörgögn að lokinni talningu, en tekið er fram að „ráðherra setji reglugerð, að fenginni tillögu landskjörstjórnar, m.a. um framkvæmd talningar við almennar kosningar, meðferð ágreiningsseðla, meðhöndlun kjörgagna og kjörskráa og um frágang að lokinni talningu, þ.m.t. um eyðingu kjörseðla og annarra gagna.“ Vafinn túlkaður starfsmönnum yfirkjörstjórnar í hag Í bréfi lögreglustjórans kemur fram að málsgögn hafi verið yfirfarin með hliðsjón af því hvort ætlað brot hafi varðað við refsiákvæði hinna nýrru kosningalaga. Í ljósi þess að vafi sé á refsinæmi hins meinta brots yfirkjörstjórnarmanna með gildistöku nýrra kosningalaga verði að túlka þann vafa þeim í hag. Lögreglan á Borgarnesi rannsakaði málið.Vísir/Vilhelm Telur lögreglustjóri að með hliðsjón af rannsóknargögnum verki ekki talið að það sem fram hafi komið við rannsókn málsins sé nægjanlegt eða líklegt til sakfellis. Hafa málin því verið felld niður. Á annan tug kæra barst vegna þingkosninganna í haust og hóf undirbúningskjörbréfanefnd rannsókn á talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi í kjölfarið. Alþingi staðfesti svo í lok nóvember kjörbréf allra þeirra 63 þingmanna sem Landskjörstjórn gaf út að lokinni endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi. Alþingi samþykkti tillögu meirihluta kjörbréfanefndar þess efnis og var því ekki boðað til uppkosningar. Ekki náðist í Gunnar Örn Jónsson, lögreglustjórann á Vesturlandi við vinnslu fréttarinnar.
104. grein þágildandi kosningalaga frá árinu 2000 Að talningu lokinni skal loka umslögum með ágreiningsseðlum með innsigli yfirkjörstjórnar og eiga umboðsmenn lista rétt á að setja einnig fyrir þau innsigli sín. Yfirkjörstjórn sendir [ráðuneytinu] 1) eftirrit af gerðabók sinni viðvíkjandi kosningunni ásamt ágreiningsseðlunum sem [ráðuneytið] 1) leggur fyrir Alþingi í þingbyrjun með sömu ummerkjum sem það tók við þeim. Þá skal yfirkjörstjórn setja alla notaða kjörseðla undir innsigli og skal gildum og ógildum kjörseðlum haldið sér. Kjörseðlana skal geyma þar til Alþingi hefur úrskurðað um gildi kosninganna, sbr. 120. gr., enda sé þeirra eigi þörf vegna kæru sem beint hefur verið til lögreglustjóra. Að því búnu skal eyða kjörseðlunum og skrá yfirlýsingu um það í gerðabók yfirkjörstjórnar. Yfirkjörstjórn skal búa um allar kjörskrár í innsigluðum umbúðum og senda [ráðuneytinu] 1) sem geymir þær í eitt ár, en að því búnu skal eyða þeim
Lögreglumál Norðvesturkjördæmi Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Alþingiskosningar 2021 Tengdar fréttir Mál yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis fellt niður Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur fellt niður mál á hendur starfsmönnum yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis í kjölfar Alþingiskosninganna í september. Að minnsta kosti tveir starfsmenn yfirkjörstjórnar hafa fengið send bréf þess efnis. Þeirra á meðal Ingi Tryggvason, sem gegndi formannsstöðu, og Katrín Pálsdóttir sem sæti átti í yfirkjörstjórn. 14. mars 2022 12:34 Enginn í yfirkjörstjórn greitt sektina og styttist í ákærur Enginn þeirra fimm sem sátu í yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis í síðustu þingkosningum hefur greitt sekt sem þeim var gert að greiða til að ljúka máli sem varðar talningu atkvæða í kjördæminu. Fresturinn til að ljúka málinu er löngu liðinn. 27. janúar 2022 06:32 Meðlimir í yfirkjörstjórn neita að greiða sekt og kvitta ekki undir svör við kærum Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur boðið allri yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis að ljúka máli sem varðar talningu atkvæða í kjördæminu með sekt. Samkvæmt heimildum fréttastofu ætla nefndarmenn ekki að greiða sektina og ágreiningur er um talninguna innan kjörstjórnarinnar. 20. október 2021 12:01 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Mál yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis fellt niður Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur fellt niður mál á hendur starfsmönnum yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis í kjölfar Alþingiskosninganna í september. Að minnsta kosti tveir starfsmenn yfirkjörstjórnar hafa fengið send bréf þess efnis. Þeirra á meðal Ingi Tryggvason, sem gegndi formannsstöðu, og Katrín Pálsdóttir sem sæti átti í yfirkjörstjórn. 14. mars 2022 12:34
Enginn í yfirkjörstjórn greitt sektina og styttist í ákærur Enginn þeirra fimm sem sátu í yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis í síðustu þingkosningum hefur greitt sekt sem þeim var gert að greiða til að ljúka máli sem varðar talningu atkvæða í kjördæminu. Fresturinn til að ljúka málinu er löngu liðinn. 27. janúar 2022 06:32
Meðlimir í yfirkjörstjórn neita að greiða sekt og kvitta ekki undir svör við kærum Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur boðið allri yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis að ljúka máli sem varðar talningu atkvæða í kjördæminu með sekt. Samkvæmt heimildum fréttastofu ætla nefndarmenn ekki að greiða sektina og ágreiningur er um talninguna innan kjörstjórnarinnar. 20. október 2021 12:01