Lífið

Stjörnulífið: Glimmer, glamúr og Söngvakeppnin

Elísabet Hanna og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Mikill glamúr einkenndi helgina sem var að líða.
Mikill glamúr einkenndi helgina sem var að líða. Skjáskot/Instagram

Helgin var undirlögð í glitri og glamúr þar þar Söngvakeppni sjónvarpsins fór fram. Frikki Dór var með tónleika, nýútskrifaðir dávaldar og sólin lét sjá sig.

Það voru Eyþórsdætur sem unnu afgerandi sigur í Söngvakeppni sjónvarpsins en þær mættu Reykjavíkurdætrum í lokaeinvígi keppninnar. Allir keppendur stóðu sig með mikilli prýði og fylgdust Íslendingar spenntir með. 

Reykjavíkurdætur eru stoltar og þakklátar eftir helgina sem var að líða þar sem þær lentu í öðru sæti í söngvakeppni sjónvarpsins.

Friðrik Dór var með tónleikana Opnum hliðin í Hörpu á föstudaginn þar sem stemningin var gríðarleg.

Jón Jónsson var vissulega ekki með stórtónleika eins og Frikki Dór bróðir sinn um helgina en hann náði þó að henda í nokkur lög í beinni útsendingu frá Söngvakeppninni.

Það hefur ekki verið neitt nema vinskapur á milli dætranna og sytranna í Söngvakeppninni enda allt glæsilegar konur að gera flotta tónlist sem enduðu að lokum í fyrsta og öðru sæti.

Systkinin Már Gunnarsson og Ísold Wilberg voru spennt fyrir ítalska pastanu en vona að systurnar sem hlutu sigurinn nái að bragða vel á því.

Stefán Óli hefur notið þess að taka þátt í Söngvakeppninni með stórkostlegu teymi sem hefur staðið við bakið á honum. Hann hafði aldrei áður stigið á svið fyrir keppnina og á augljóslega heima þar í framtíðinni.

Eldey Erla, frumburður fjölmiðlakonunnar Ragnhildar Steinunnar og Hauks Inga stóð líka á sviði um helgina eins og mamma sín, stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu. Þar fór hún með hlutverk í leiksýningunni Framúrskarandi vinkona.

Þess væri óskandi að þetta væri ekki spegilmynd Kötlu Njálsdóttur heldur væri búið að klóna hana en hún er búin að sigra hug og hjörtu allra Íslendinga með sínum skemmtilega og fallega persónuleika. Heimurinn væri betri með fleiri Kötlum og hefur það skinið í gegn í Söngvakeppninni.

Dávaldurinn Sailesh þarf ekki lengur að koma til landsins þar sem þáttastjórnendur Normsins þær Sylvía Friðjóns og Eva Mattadóttir eru útskrifaðar úr Dáleiðsluskóla Íslands.

Þura Stína stillti sér upp með Bassa Maraj og voru þau eflaust að eiga lowkey samræður um sviðsframkomu og almennan glæsileika.

Erna Hrund býr yfir mikilli ástríðu fyrir Rósinni og Bachelor þáttunum og var mætt í pallíettu kjól í Hörpu að taka upp nýjan þátt sem hefur eflaust glatt marga.

Álfgrímur Aðalsteinsson setti upp þennan svip þegar atkvæðin í Söngvakeppninni voru talin en hann tók þátt í atriði Reykjavíkurdætra. 

Móeiður Lárusdóttir er með gullfallega kúlu sem geymir annað barn hennar og fótboltamannsins Harðar Magnússon.

Nýtt lag og plata er væntanleg frá Júlí Heiðari á næstu mánuðum en hann og Fannar Freyr voru að skrifa undir hjá Sony í vikunni. Hann fylgdist svo stoltur með ástinni sinni keppa með Reykjavíkurdætrum á laugardaginn var.

Börn Elísabetar Gunnars voru með stjörnu í augunum um helgina.

Fyrr í vikunni fagnaði Elísabet einmitt Alþjóðlegum baráttudegi kvenna ásamt Rósu Maríu Árnadóttur sem var líka afmælisbarn dagsins.

Sunneva Einarsdóttir deildi með fylgjendum sínum fallegu og innilegu myndbandi frá Kúbu þar sem hún naut lífsins um daginn ásamt kærastanum sínum Benedikt Bjarnasyni.

Það virðist fara Brynju Dan afskaplega vel að ferðast aftur í tímann.

Patrekur Jamie skemmti sér konunglega á Söngkvakeppninni og það er aldrei að vita nema Æði strákarnir taki þátt einn daginn. 

Dansararnir Tara Sif og Birgitta Líf voru glæsilegar í rauðum glimmer kjólum áður en þær stigu á svið fyrir Tinu Turner atriði.

Rakel María hefur uppgötvað nýjustu Instagram stjörnu Íslands og er það hið magnaða Múlagljúfur. Hún kannaði það ásamt kærastanum sínum Garpi I. Elísabetarson í þættinum þeirra Okkar eigin Ísland. 

Kolbrún Pálína fann vorið um helgina en virðist hafa týnt því aftur miðað við gulu viðvörunina sem er í dag.

Fanney Dóra náði líka að grípa nokkra sólargeisla á meðan þeir létu sjá sig.

Á Instagram fór Nökkvi Fjalar yfir síðustu mánuði eftir að hann flutti til London. Og ræddi Embla Wigum einnig um flutningana í  þeirra í Stökki helgarinnar hjá Vísi.

Stjórnmálakonan Hildur Björnsdóttir var menningarleg um helgina og skellti sér á safn.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×