Innlent

For­setinn byrjar bingó í Kola­portinu

Árni Sæberg skrifar
Guðni Th. Jóhannesson forseti er með bók um landhelgismálið í smíðum.
Guðni Th. Jóhannesson forseti er með bók um landhelgismálið í smíðum. Stöð 2/Egill

Kolaportsmessa dagsins verður sérlega hátíðleg en sjálfur forseti Íslands mun heiðra messugesti með nærveru sinni. Að lokinni messu mun forsetinn draga fyrstu kúluna í bingói sem er sérhannað til að kenna íslensku.

Unnið er að því að efla Kolaportsmessu sem er menningarviðburður sem haldinn hefur verið reglulega í um tuttugu ár, að sögn Bjarna Karlssonar sem hefur meðal annars þjónað Kolaportinu.

Kolaportsmessur sækir breiður hópur fólks. „Það þarf enginn að útskýra komu sína í Kolaportið, alls konar fólk mætir og það er meira að segja kalt á krana, ef menn vilja það,“ segir Bjarni.

Í samvinnu við nýja rekstraraðila, þá Ívar Trausta Jósafatsson og Gunnar Hákonarsonar, hefur messan fengið nýtt og betra húsnæði.

Í dag munu þeir Ívar Trausti og Gunnar fylgja Guðna Th. Jóhannesson í kynningarferð um Kolaportið þar sem hann mun heilsa upp á söluaðila og gesti.

Fyrst mun hann þó flytja ávarp í messu sem séra Bjarni Karlson leiðir ásamt Ragnheiði Sverrisdóttur djákna. Að sögn Bjarna er Ragnheiður „legend“ í kirkjustarfi á Íslandi.

Guðrún Árný Karlsdóttir flytur óskalög í salnum áður en messan hefst svo gott er að koma snemma í góð sæti

Heimsókn forseta mun ljúka með því að hann dregur fyrsta hugtakið í svokölluðu BROS-BINGÓ sem er skemmtilegur leikur þar sem þátttakendur auka íslenskan orðaforða undir handleiðslu Daða Guðjónssonar kennara, sem hannaði leikinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×