Innlent

Ók á meira en 100 í íbúðargötu á flótta undan lögreglu og klessti svo á

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Hér má sjá einn þeirra þriggja bíla sem varð fyrir bílnum í gærkvöldi.
Hér má sjá einn þeirra þriggja bíla sem varð fyrir bílnum í gærkvöldi. vísir/vilhelm

Þrír bílar skemmdust mikið þegar öku­maður sem lög­regla veitti eftir­för missti stjórn á bíl sínum og klessti á þá seint í gær­kvöldi. Lög­regla segir mildi að enginn hafi orðið fyrir bílnum sem er talinn hafa verið á yfir 100 kíló­metra hraða á klukku­stund.

Mikil hætta skapaðist á Sogaveginum á miðnætti í gærkvöldi þegar ökumaður missti stjórn á bíl sínum og keyrði hér inn í þrjá kyrrstæða bíla. Eins og sjá má á myndunum sem fylgja fréttinni var aðkoman í dag vægast sagt óhugguleg og ljóst að það var mikil mildi að ekki fór verr.

Lögregla fékk tilkynningu rétt fyrir miðnætti í gær um bíl sem ók hratt í borginni og rásaði um göturnar.

Hún fann hann síðan á Bústaðavegi en þegar honum var gefið merki um að stöðva gaf hann í.

„Hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og þá upphófst eftirför; hann sinnti ekki stöðvunarskyldu, keyrði upp á gangstéttar og gegn rauðu ljósi og svo endaði þetta hérna á Sogaveginum þegar hann keyrði yfir hraðahindrun og þar hentist bíllinn í loftköstum og lenti á þremur bílum hér,“ segir Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 

Ekki hægt að kenna hraðahindrun um

Margir íbúa götunnar vildu kenna einmitt þessu atriði um slysið; það er að segja sjálfri hraðahindruninni. En eins og sést í myndbandinu sem fylgir er vegurinn ansi holóttur þar sem hún er að hefjast.

„Ég segi að það sé af og frá,“ segir Guðmundur Páll.

„Hérna er 30 kíklómetra hámarkshraði og það eru margar hraðahindranir hér á Sogaveginum. Það eru krakkar sem búa hérna í hverfunum fyrir neðan sem að sækja skóla hérna Breiðagerðis og Réttarholtsskóla og það er bara nauðsynlegt að hafa þessa hraðahindrun.“

Hraða ökumannsins er hér um að kenna að sögn Guðmundar, sem er grunaður um að hafa verið á meira en 100 kílómetra hraða á klukkustund í þessari þrjátíu götu.

Hann er einnig grunaður um að hafa verið undir áhrifum vímuefna.

„Hann meiddist eitthvað eða slasaðist eitthvað og var fluttur á slysadeild og er þar í dag en er ekki með alvarleg meiðsli sem betur fer,“ segir Guðmundur Páll.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×