Lífið

Stjörnulífið: „Ég tek hatt minn ofan og nær öll föt líka“

Elísabet Hanna Maríudóttir og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Stjörnulífiið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga.
Stjörnulífiið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga. Samsett/Instagram

Breytingar á samkomutakmörkunum glöddu marga um helgina og iðaði miðbærinn af lífi. Bankastræti Club var til dæmis troðfullur af fólki og er ljóst að margir hafa saknað djammsins. Birgitta Líf eigandi staðarins var auðvitað sjálf á staðnum, nýkominn úr skíðaferð í Ölpunum. 

Ástrós Trausta fagnaði ástinni sinni um helgina.

Hárið fékk að fjúka hjá Elísabetu Gunnars.

Sunneva Einars þurfti líka að láta klippa af hárinu sínu, eftir að hafa óvart brennt af því með kerti. 

Fanney Ingvars átti góða helgi með fjölskyldunni í sveitinni.

Lilja Gísla var ein af þeim fáu sem var ekki á Tene, í Ölpunum eða á djamminu um helgina.

Sandra Helga nýtur lífsins í Los Angeles.

Helgi Ómars hafði það notalegt í Houston síðustu daga.

Hildur Björnsdóttir birti fallega mynd frá brúðkaupinu.

Fanney Dóra fór út að leika í snjónum með dóttur sinni og bíður spennt eftir sólinni.

Listamaðurinn Young Nigo Drippin gaf út lagið Sæki etta af væntanlegri plötu, Stjörnulífið. Flutti hann lagið bæði á Bankastræti Club og Prikinu um helgina við góðar undirtektir. Yung Nigo Drippin heitir í raun Brynjar og kemur úr Hafnarfirði.

Erna Hrund nýtur lífsins í fæðingarorlofinu með dóttur sinni.

Móeiður tilkynnti að hún á von á annari stúlku.

Inga Lind birti fallega hjónamynd frá Austurríki.

Leikkonan Kristín Péturs birti fleiri myndir frá skíðaferðinni.

Nýgift Katrín Edda bætist í hóp skíðaóðu Íslendinganna og virðist ánægð með nýja áhugamálið.

Guðrún Sørtveit var flott í bleiku um helgina.

Söngkonan GDRN á von á barni eins og við sögðum frá á Vísi í vikunni.

Katrín Tanja birti fallegar vinkonumyndir frá Boston.

Leikkonan Birna Rún Eiríksdóttir var í tökum í Sky Lagoon um helgina.

Hugrún Birta Egilsdóttir fagnar því að vera komin í 40 keppenda úrslit í Miss World.

Kolbrún Anna Vignisdóttir sminka á RÚV er á Kanarí.

Daði lofar nýrri tónlist á næstunni.

Birta Abiba ber saman janúar í Barcelona og Reykjavík.

Felix Bergsson var með stjörnur í augunum á Benidormfest.

Ómar Ingi birti flotta myndasyrpu frá EM.

Thelma Guðmunds var í kósýgallanum um helgina. 

Friðrik Dór eignaðist þriðju dótturina og gaf út plötuna Dætur, sem fjallað hefur verið um á Vísi síðustu daga.

Ása Regins fagnaði tíu ára brúðkaupsafmæli og birti myndband af Emil að syngja í brúðkaupinu.

Björk Guðmundsdóttir hélt vel heppnaða tónleika í Los Angeles.

Friðrik Ómar er á Tenerife og fagnaði þar að ná upp í 15.000 fylgjendur á Instagram.

„Ég tek hatt minn ofan og nær öll föt líka“

Það er greinilega kalt á toppnum hjá Birgittu Líf og Kristínu Péturs.

Fegurðardrottningin Hildur María birti líka mynd úr Ölpunum. 

Erna Kristín var ekki með í skíðaferðinni en ákvað samt að birta sína eigin mynd.

„Myndin sem ég myndi pósta hefði mér verið boðið.“


Tengdar fréttir

GDRN er ófrísk af sínu fyrsta barni

Tónlistarkonan Guðrún Eyfjörð, betur þekkt undir listamannsnafninu GDRN, á von á sínu fyrsta barni með sambýlismanni sínum, Árna Steini Steinþórssyni.

„Hæfileg væmni, fullkomið popp“

Hjartaknúsarinn, tónlistarmaðurinn og faðirinn Friðrik Dór sendi frá sér plötuna Dætur nú á aðfaranótt föstudags 28. janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×