Lífið

Stjörnulífið: „Haldið ykkur frá hálfvitum“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Stjörnulífiið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga.
Stjörnulífiið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga. Samsett/Instagram

Tíu manna samkomubann á Íslandi og skemmtanalífið í algjöru lágmarki. En Íslendingar láta það ekki stoppa sig og njóta lífsins í útivist, bakstri og kaffibollum uppi í rúmi. 

Aron Can er mættur aftur í hljóðverið að taka upp nýtt efni.

Erna Hrund vörumerkjastjóri og snyrtivörusnillingur eignaðist sitt þriðja barn, litla stúlku. 

„Hjartað stækkaði um nokkur númer þegar þessi draumur kom í heiminn.“

Una Sighvatsdóttir, sérfræðingur hjá embætti forseta Íslands, nýtur lífsins þessa dagana í Egyptalandi. Hún segir bull að tala um x-mörg undur veralda en leist þó prýðilega á pýramídana í Egyptalandi

Sunneva Einars, Birgitta Líf og Ástrós fóru ásamt fleiri vinkonum í stelpuferð á nýja hótelið í Gróðurhúsinu í Hveragerði. Þær fóru meðal annars á hestbak í áhrifavaldaferðinni.

Útvarpskonan Eva Ruza skellti sér í myndatöku sem gekk ekki alveg áfallalaust fyrir sig.

Hressandi óvissutúr á gönguskíðum við Reyðarvatn á Uxahryggjum hjá parinu Ilmi Kristjáns leikkonu og Magnúsi Viðar framleiðanda.

Þórunn Antonía minnir fylgjendur sína að halda fast í húmorinn á tímum sem þessum.

„Bonnie og Clyde eru ekkert að láta leiðindi og lægðina á sig fá. Lífið er gjöf haldið ykkur frá hálfvitum og haldið fast i húmorinn.“

Listakonan og ljósmyndarinn Saga Sig smellti af einni speglasjálfu í flottum grænum jakka. 

„Self made engin gráða,“ skrifar rapparinn Herra Hnetusmjör. 

Eins og við sögðum frá hér á Lífinu fyrir helgi tilkynnti leik- og söngkonan Unnur Eggerts að hún á von á stúlku.

Marín Manda er þakklát fyrir viðbrögðin við nýju sjónvarpsþáttunum sínum Spegilmyndin.

Þjálfarinn Kristbjörg Jónsdóttir greindist með Covid og viðurkennir að það hafi ekki verið auðvelt. Kristbjörg er að kenna strákunum sínum heima og segist hafa verið föst heima alla daga þessa nýja árs.

Lagið Ef ástin er hrein er orðið eins árs. Eitt allra vinsælasta lag síðasta árs hefur þó ekki verið flutt oft á tónleikum. 

„Tækifæri til lifandi flutnings hafa vissulega verið af skornum skammti en við hlökkum til að syngja það fyrir ykkur oft og mörgum sinnum í bjartri framtíð,“ sögðu Jón Jónsson og GDRN í sameiginlegri tilkynningu. 

Gummi Kíró tók lyftusjálfu í tilefni sunnudags.

Knattspyrnukonan Sara Björk er byrjuð að æfa aftur. „Skref fyrir skref.“

Svala Björgvins átti Öskubuskuaugnablikí bleikum kjól og skóm í stíl inni í sturtuklefa.

Rúrik Gíslason var í myndatöku fyrir þýskt tímarit. Myndatakan fór fram hér á landi.

Ebba Guðný stjörnukokkur bakaði súkkulaðibitabollakökur.

Katrín Tanja og Annie Mist skemmtu sér ótrúlega vel saman á Wodapalooza í Miami um helgina. 

Um helgina ræddu þær við fjölmiðla og töluðu meðal annars um nýju barnabókina sem þær gáfu út saman.

Ása Regins og krakkarnir kynnast skíðamenningunni á Ítalíu.

Linda Pé rifjaði upp nokkur gullin augnablik með dóttur sinni í gegnum árin.

Elísabet Gunnars náði ekki að eyða áramótunum með börnunum og var svo í sóttkví helgina á eftir. Núna náði hún loksins að fagna með þeim árinu 2022.

Íslenska karlalandsliðið í handbolta fór vel af stað á EM og vann fyrstu tvo leikina. Fyrst gegn Portúgal á föstudag og svo gegn Hollandi í gær.

Sigvaldi Bjarni Guðjónsson var valinn maður leiksins báðum leikjunum og var markahæstur í liðinu í gær með átta mörk, sum hver afar mikilvæg.

Sönghjónin Salka Sól og Arnar Freyr kynntu til leiks Frosta Eyfeld Arnarsson, sem deilir fornafni með afa sínum Frosta.

Birgitta Haukdal fær ekki nóg af skíðabrekkunum í Ölpunum.

Helga Braga og Óli Stef skemmtu sér vel saman. 

Íris Svava er farin á vit ævintýranna. Hún keypti sér miða til Kanada, aðra leið.

Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður og verslunareigandi viðraði hundinn sinn í flottri kápu. Hún nýtti snjóinn um helgina líka til þess að fara á gönguskíði.

Matgæðingurinn og málarinn Jói Fel fór úr að ofan fyrir Instagram.

„55 ára miðaldra karlmaður. Sit uppi með þetta útlit núna. Held að fari aðeins að síga á næstunni þegar Felino fer á fullt.“

Förðunarfræðingurinn og hárgreiðslukonan Rakel María Hjaltadóttir fór í ísklifur með kærastanum upp á Skessuhorn.

„Ekki láta brosið blekkja ykkur samt, ég var að pissa í mig af hræðslu á sama tíma og ég var að springa úr endorfíni og hamingju!“

Camilla Rut fékk næturpössun og kaffibolla beint í rúmið.

Einkaþjálfarinn Margrét Edda Gnarr á von á öðru barni. Hún sagði frá þessum gleðifréttum á Instagram.

Móeiður rifjar upp skemmtileg augnablik úr ferðinni til Dubai en hún er þó mætt aftur heim í snjóinn í Rússlandi núna. 

Erna Kristín á von á tvíburum og er dugleg að sýna allar hliðar meðgöngunnar.


Tengdar fréttir

Unnur Eggerts afhjúpar kynið

Unnur Eggertsdóttir hefur tilkynnt á Instagram að hún á von á stúlku. Unnur á von á sínu fyrsta barni með unnustanum, Travis. Leik- og söngkonan er einn stofnanda skólans Skýið og er um þessar mundir búsett á milli Reykjavíkur og New York.

Margrét Edda Gnarr á von á öðru barni

Einkaþjálfarinn Margrét Edda Gnarr á von á öðru barni. Hún tilkynnti þetta á Instagram um helgina. Fyrir eiga Margrét Edda og Ingimar Elíasson saman einn son. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×