Innlent

Reyndust vera að bræða tjöru­pappa

Atli Ísleifsson skrifar
Slökkviliðsbílar voru afturkallaðir eftir að í ljós kom hvers eðlis eldurinn var.
Slökkviliðsbílar voru afturkallaðir eftir að í ljós kom hvers eðlis eldurinn var. Vísir/Vilhelm

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að tilkynnt var um eld í þaki einbýlishúss í Bakkaflöt í Garðabæ út á ellefta tímanum í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði voru slökkviliðsbílar afturkallaðir eftir að ljóst var að einungis hafi þarna verið iðnaðarmenn að störfum að bræða tjörupappa.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×