Mun stýra starfshópi um barnaheimilið á Hjalteyri Atli Ísleifsson skrifar 7. desember 2021 11:10 Vigdís Häsler Sveinsdóttir lögfræðingur. Stjórnarráð Íslands Jón Gunnarsson innanríkisráðherra hefur skipað þriggja manna starfshóp undir forystu Vigdísar Häsler Sveinsdóttur lögfræðings til að afla nauðsynlegra gagna og upplýsinga um starfsemi heimilisins á Hjalteyri.
Starfshópnum er ætlað að afla gagnanna til að unnt sé að taka ákvarðanir um hvort og með hvaða hætti starfsemin verði tekin til frekari rannsóknar og þá hver aðkoma viðkomandi sveitarfélaga skuli vera. Frá þessu segir í tilkynningu á vef dómsmálaráðuneytisins. Aðrir í starfshópnum eru Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson, lögmaður, og Halldór Þormar Halldórsson, umsjónarmaður sanngirnisbóta. Þá segir að starfsmaður hópsins sé Ingibjörg Gyða Guðrúnardóttir, tengiliður sanngirnisbóta. Kastljósinu hefur verið beint að starfsemi barnaheimilisins á Hjalteyri, sem starfrækt var í Richardshúsi á áttunda áratugnum, í kjölfar umfjöllunar fréttastofu. Í tilkynningu á vef ráðuneytisins segir að löggjöfin sem gilti um starfsemi vistheimilanefndar, lög nr. 26/2007 um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn, hafi verið felld úr gildi þar sem ekki hafi verið talin þörf á frekari könnunum vistheimilanefndar til að ljúka uppgjöri sanngirnisbóta. „Verkefni hins nýstofnaða starfshóps munu ná til þess að lýsa tildrögum að starfsemi heimilisins, lýsa því hvernig opinberu eftirliti var háttað og skila tillögum til stjórnvalda um frekari viðbrögð og afmörkun verkefnisins. Hópurinn á að lokum að lýsa þeim lagahindrunum sem eru fyrir frekari rannsókn málsins og eftir atvikum að leggja fram tillögu að því hvort niðurstöður starfshópsins kalli á lagabreytingar. Miðað er við að starfshópurinn taki meðal annars til nánari skoðunar rannsóknir og skýrslur vistheimildanefndar. Starfshópurinn hefur þegar tekið starfa,“ segir í tilkynningunni. Bæjarstjóri fagnar Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, segist í færslu á Facebook fagna því að fram fari ítarleg rannsókn á starfsemi vistheimilisins. „Sýnir að dómsmálaráðherra Jón Gunnarsson ætlar að taka þetta mál föstum tökum. Það er mikilvægt að þetta tímabil vistheimila á Íslandi verði gert upp í eitt skipti fyrir öll og að hlustað verði á þá einstaklinga sem þar dvöldu. Í mínum huga skiptir ekki máli hvort heimilin voru rekin af ríki, sveitarfélögum, félagasamtökum eða einstaklingum eins og á Hjalteyri - rannsókn á allri þessari starfsemi þarf skilyrðislaust að fara fram,“ segir Ásthildur.
Barnaheimilið á Hjalteyri Hörgársveit Akureyri Stjórnsýsla Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Vistheimili Tengdar fréttir Daglegar pyntingar á Hjalteyri og enginn vildi hlusta Enn og aftur stígur fram maður sem segist hafa verið beittur hræðilegum pyntingum af hjónum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar. Hann hefur í áranna rás reynt að ná eyrum yfirvalda til að fá hjónin rannsökuð en segist aldrei hafa fengið áheyrn. 5. desember 2021 20:30 Tóku barn úr vistun vegna grunsamlegrar hegðunar Hjalteyrarhjónanna: Létu Garðabæ vita Garðabær fékk ítrekað ábendingar og eða kvartanir vegna hjóna sem önnuðust fjölda barna í bænum að sögn foreldra sem voru með barn í leikskóla hjá þeim. Foreldrarnir segjast hafa ákveðið að taka barnið sitt úr skólanum vegna grunsamlegrar hegðunar þeirra. Hjónin sem hafa verið ásökuð um ofbeldi og pyntingar gagnvart börnum störfuðu í 17 ár í Garðabæ. Maður sem var hjá þeim á Hjalteyri segist hafa reynt að láta Garðabæ og önnur yfirvöld vita af ofbeldinu sem þau beittu þar. 5. desember 2021 18:30 Skipar starfshóp til að rannsaka Hjalteyrarmálið Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra ætlar að skipa starfshóp til að fara yfir málefni barnaheimilisins á Hjalteyri strax eftir helgi. 4. desember 2021 14:56 Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira
Daglegar pyntingar á Hjalteyri og enginn vildi hlusta Enn og aftur stígur fram maður sem segist hafa verið beittur hræðilegum pyntingum af hjónum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar. Hann hefur í áranna rás reynt að ná eyrum yfirvalda til að fá hjónin rannsökuð en segist aldrei hafa fengið áheyrn. 5. desember 2021 20:30
Tóku barn úr vistun vegna grunsamlegrar hegðunar Hjalteyrarhjónanna: Létu Garðabæ vita Garðabær fékk ítrekað ábendingar og eða kvartanir vegna hjóna sem önnuðust fjölda barna í bænum að sögn foreldra sem voru með barn í leikskóla hjá þeim. Foreldrarnir segjast hafa ákveðið að taka barnið sitt úr skólanum vegna grunsamlegrar hegðunar þeirra. Hjónin sem hafa verið ásökuð um ofbeldi og pyntingar gagnvart börnum störfuðu í 17 ár í Garðabæ. Maður sem var hjá þeim á Hjalteyri segist hafa reynt að láta Garðabæ og önnur yfirvöld vita af ofbeldinu sem þau beittu þar. 5. desember 2021 18:30
Skipar starfshóp til að rannsaka Hjalteyrarmálið Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra ætlar að skipa starfshóp til að fara yfir málefni barnaheimilisins á Hjalteyri strax eftir helgi. 4. desember 2021 14:56