Erlent

Robert Durst á­kærður fyrir að hafa myrt eigin­konu sína

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Robert Durst hefur verið ákærður fyrir morðið á fyrstu eiginkonu sinni, Kathie Durst, sem hvarf fyrir nær fjórum áratugum síðan.
Robert Durst hefur verið ákærður fyrir morðið á fyrstu eiginkonu sinni, Kathie Durst, sem hvarf fyrir nær fjórum áratugum síðan. Getty/Myung J. Chung

Bandaríski fasteignaerfinginn og morðinginn Robert Durst hefur verið ákærður fyrir að hafa myrt fyrstu eiginkonu sína, Kathie Durst, sem hvarf fyrir nær fjórum áratugum síðan. 

Ákærudómstóll í New York fylki tilkynnti í gær að Durst yrði ákærður vegna málsins. Hann hefur lengi verið grunaður um að hafa orðið eiginkonu sinni að bana en hann afplánar nú lífstíðardóm í Kaliforníu fyrir að hafa myrt vinkonu sína, sem hjálpaði Durst að fela morðið á Kathie. Fréttastofa AP segir frá.

Durst var sakfelldur fyrir morðið í Los Angeles 14. október síðastliðinn en var stuttu síðar lagður inn á sjúkrahús vegna Covid-19, þar sem hann þurfti að vera í öndunarvél. Hann var í síðustu viku færður yfir á fangelsissjúkrahús. Handtökuskipun hefur nú verið gefin út á hendur honum í New York fylki. 

Kathie Durst hvarf 31. janúar 1982, þá aðeins 29 ára gömul og á síðasta ári sínu í læknisnámi. Hún og Robert, sem þá var 38 ára gamall höfðu verið gift í nær níu ár og bjuggu í bænum South Salem í New York. 

Lík Kathie fannst aldrei en að sögn Roberts hafði hún farið til New York borgar, þar sem hún stundaði nám, kvöldið sem síðast sást til hennar. Aldrei fengust sannanir fyrir því að hún hafi farið til New York. Robert skildi formlega við hana árið 1990 og vísaði þar til þess að hún hafi yfirgefið hann en hún var ekki úrskurðuð látin fyrr en árið 2017 að beiðni fjölskyldu hennar. 

„Myrti þau öll, að sjálfsögðu“

Málið vakti mikla athygli á sínum tíma en gleymdist nær alveg þar til málið var til umfjöllunar í HBO heimildaþáttunum The Jinx sem komu út árið 2015. Í þáttunum voru tekin ítarleg og viðamikil viðtöl við Robert en mesta athygli vakti þó að Robert náðist á upptöku viðurkenna að hafa myrt fólk eftir að hann fór afsíðis enn með hljóðnema fastan á sér og sagði: „Myrti þau öll, að sjálfsögðu.“

Durst var, eins og áður segir, sakfelldur fyrir að hafa myrt Susan Berman vinkonu sína í desember árið 2000. Á þeim tíma var Berman að undirbúa sig undir það að s´tiga fra og segja lögreglu frá aðkomu sinnin að morðinu á Kathie. Að sögn saksóknara hafði Berman sagt vinum sínum að hún hafi logið til um fjarvistarsönnun Durst.

Eftir morðið á Berman fór Durst í felur. Hann flutti til Galveston í Texas og þóttist þar vera mállaus kona. Durst myrti þar nágranna sinn, limlesti lík hans og kastaði út í sjó. Durst bar fyrir sig sjálfsvörn í málinu og var sýknaður af morðákæru en var sakfelldur fyrir að hafa fargað sönnunargögnum og fyrir að hafa losað sig við líkið. 


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×