Robert Durst þarf að svara fyrir ummælin í The Jinx Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. október 2018 16:45 Fred Durst var þungamiðjan í þáttunum The Jinx. HBO
Bandaríski auðkýfingurinn Robert Durst, umfjöllunarefni heimildarþáttaraðarinnar The Jinx, þarf að svara til saka vegna andláts vinkonu hans, sem talið er að hafa verið myrt árið 2000. Hann situr nú þegar inni en Durst hlaut sjö ára dóm árið 2016 fyrir brot á lögum um vopnaburð.Hér á eftir verður drepið á vendingum í The Jinx. Þeim sem hafa áhuga á að sjá þættina er ráðlagt að lesa ekki lengra.Saksóknarar halda því fram að hinn 75 ára gamli Durst hafi ákveðið að koma Susan Berman fyrir kattarnef svo að hún gæti ekki lengur svarað spurningum lögreglumanna um hvarf eiginkonu hans, Kathleen Durst. Auðkýfingurinn hefur neitað allri aðkomu að málunum tveimur, sem stangast á við ummæli hans sem heyra mátti í lok fyrrnefndrar þáttaraðar. Durst steig þá úr mynd en virðist hafa gleymt að enn var kveikt á hljóðnema hans. „Hvurn fjárann gerði ég? Ég myrti þau auðvitað öll,“ mátti heyra Durst segja við sjálfan sig í lokaþættinum. Örfáum klukkustundum áður en þátturinn fór í loftið árið 2015 var Durst handtekinn vegna gruns um að hann hafi ráðið Berman bana.Ummælin tilefni til réttarhalda Auðkýfingurinn var leiddur fyrir dómara í gær en á vef breska ríkisútvarpsins segir að hann hafi síendurtekið truflað dómhald. Þannig hafi hann ítrekað reynt að yfirgefa dómsalinn og óskað viðstöddum góðrar helgar. Verjendur Durst segja að það sé enginn grundvöllur fyrir málarekstrinum. Hvorki fingraför né nokkuð erfðaefni geti bendlað Durst við dauða Berman. Dómarinn í málinu sagði þó að með ummælum sínum í The Jinx hafi auðkýfingurinn gengist við fjölda morða - nema að hann geti fært sannfærandi rök fyrir máli sínu.
Bandaríkin Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Sakamálið varð að þáttaröð og svo aftur að sakamáli Auðkýfingurinn Robert Durst, sem sakaður er um að hafa myrt að minnsta kosti tvær konur og einn karl sem honum tengdust, er nú kominn aftur í fangelsi. Hann var til ummfjöllunar í vinsælli þáttaröð á HBO. 30. apríl 2015 11:00 Robert Durst í sjö ára fangelsi Auðkýfingurinn var handtekinn degi eftir að síðasti þátturinn af The Jinx: The Life and Deaths of Robert Durst fór í loftið. 27. apríl 2016 15:33 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira
Sakamálið varð að þáttaröð og svo aftur að sakamáli Auðkýfingurinn Robert Durst, sem sakaður er um að hafa myrt að minnsta kosti tvær konur og einn karl sem honum tengdust, er nú kominn aftur í fangelsi. Hann var til ummfjöllunar í vinsælli þáttaröð á HBO. 30. apríl 2015 11:00
Robert Durst í sjö ára fangelsi Auðkýfingurinn var handtekinn degi eftir að síðasti þátturinn af The Jinx: The Life and Deaths of Robert Durst fór í loftið. 27. apríl 2016 15:33