Ætluðu að ræna eða myrða fosætisráðherra Hollands Samúel Karl Ólason skrifar 27. september 2021 14:28 Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, á gangi um götur Haag. EPA/Bart Maat Yfirvöld í Hollandi hafa aukið öryggisgæslu Mark Rutte, forsætisráðherra, töluvert vegna ógna frá glæpasamtökum í landinu. Það var gert eftir að lögreglan í Hollandi komst á snoðir um að glæpamenn ætluðu sér að reyna að ræna eða jafnvel myrða forsætisráðherrann fráfarandi.
Samkvæmt heimildum dagblaðsins De Telegraaf snýr ógnin að Mocro-mafíunni svokölluðu. Skipulögðum glæpasamtökum hefur vaxið ásmegin í Hollandi á undanförnum árum og hafa myrt opinbera aðila eins og blaðamanninn Peter R. de Vries. Hann var mjög þekktur blaðamaður sem var þyrnir í síðu glæpagengja og hafði verið lengi. De Vries var skotinn til bana þegar hann yfirgaf húsnæði sjónvarpsstöðvar þar sem hann hafði tekið þátt í umræðuþætti. Sjá einnig: Þekktasti blaðamaður Hollands dáinn eftir skotárás Heimildir Telegraaf herma að menn hafi sést fylgjast með ferðum Rutte en það sama gerðist þegar de Vries var myrtur. Rutte er þekktur fyrir að vera andvígur mikilli öryggisgæslu og að hjóla í vinnuna. Reuters segir hann iðulega stoppa og ræða við gangfarendur og taka með þeim myndir. Óljóst er hvort hann geti haldið því áfram.
Holland Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Leikur á hnífsegg í Brasilíu Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira