Innlent

Ó­­þægi­­leg stemmning eftir að Ólafur sneri aftur

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Ólafur snýr aftur sem varafulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skipulags- og samgönguráði og innkaupa- og framkvæmdaráði.
Ólafur snýr aftur sem varafulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skipulags- og samgönguráði og innkaupa- og framkvæmdaráði. vísir

Ólafur Guð­munds­son, vara­borgar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokksins, hefur tekið aftur sæti sem vara­maður í ráðum sem hann sat í hjá borginni áður en hann vék úr þeim í byrjun árs vegna um­mæla sem hann lét falla um skot­á­rás á fjöl­skyldu­bíl Dags B. Eggerts­sonar borgar­stjóra. Borgar­full­trúi Pírata furðar sig á þessu og segir það hafa verið ó­þægi­legt að sitja fund með Ólafi í morgun.

Til­laga um að Ólafur tæki aftur sæti sem vara­maður í nefndunum var lögð fyrir og sam­þykkt á borgar­stjórnar­fundi í gær, sem var sá fyrsti eftir sumar­frí.

Rík hefð er fyrir því að allir borgar­full­trúar kjósi með til­lögum um breytingar á nefndar­mönnum því það er flokkanna sjálfra að velja sitt fólk inn í nefndir. 

Í gær sátu þó þær Dóra Björt Guð­jóns­dóttir Pírati og Ellen Jacqueline Calmon Sam­fylkingar­kona hjá við at­kvæða­greiðsluna.

Fannst óþægilegt á fundi með Ólafi í morgun

„Mér leið ein­hvern veginn í gær eins og það ætti bara að læða honum inn aftur í ljósi þess að um­ræðan hefur róast, kannski í von um að enginn myndi taka eftir því. Og svo var hann bara mættur í morgun á fund skipu­lags- og sam­göngu­ráðs,“ segir Dóra Björt í sam­tali við Vísi í dag.

Dóra Björt Guðjónsdóttir er borgarfulltrúi Pírata.Aðsend

Fannst þér ó­þægi­legt að mæta á fund með honum í morgun?

„Já, mér fannst það hrein­lega. Mér finnst skrýtið að ætla að láta allt í einu eins og ekkert hafi gerst bara vegna þess að nú hefur hin pólitíska um­ræða færst eitt­hvað annað.“

Týpískur Sjálfstæðisflokkur

Dóra Björt segir málið í heild sinni lýsandi fyrir Sjálf­stæðis­flokkinn.

„Þau segja eitt þegar það hentar og sýna skýra af­stöðu í takti við al­mennings­vilja vegna þess að það er vin­sælt. En ganga svo al­gjör­lega á bak orða sinna í næsta skrefi, svoldið í skjóli nætur í von um að enginn upp­götvi það. Fyrir mér er það ekkert nema fúsk, hræsni og á­byrgðar­leysi,“ segir hún.

„...þú verður bara að taka því Hr. borgar­stjóri“

Um­mælin lét Ólafur falla í kommenta­kerfi við við­tal Vísis við Dag þar sem hann lýsti því að sér væri brugðið vegna skot­á­rásarinnar. Þau voru á þessa leið:

„Byrjaðu á sjálfum þér... Hér er af­leiðing af því sem hampað hefur verið frá svo­kallaða hruninu 2008. Nú er byltingin komin heim og þú verður bara að taka því Hr. borgar­stjóri.“

Ólafur Guðmundsson hefur setið sem varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins síðan hann lét ummælin falla þó hann hafi vikið sem varamaður nefndanna. vísir/vilhelm

Orðin vöktu hörð við­brögð margra og var í kjöl­farið tekin á­kvörðun um það í flokknum að Ólafur myndi víkja úr þeim ráðum sem hann sat í sem vara­maður Sjálfstæðisflokksins. Það voru skipu­lags- og sam­göngu­ráð, öldunga­ráð og inn­kaupa- og fram­kvæmda­ráð. Hann hefur þó setið áfram sem varaborgarfulltrúi.

Það er þitt að taka afsökunarbeiðninni

Ólafur dró um­mælin sjálfur til baka og hefur sagst sjá eftir þeim. Hann hefur beðið Dag af­sökunar og telur sjálfur tíma til að snúa aftur sem vara­maður í ráðin.

„Þetta voru mis­tök sem ég gerði og ég baðst af­sökunar á þeim. Sú af­sökunar­beiðni var tekin gild af borgar­stjóra og þar með er málinu lokið í mínum huga,“ segir Ólafur.

„Það er eðli af­sökunar­beiðna að ég stíg á tánna á þér og segi fyrir­gefðu og þú segir ekkert mál en svo ertu að drepast í tánni… það er þitt að taka af­sökunar­beiðninni. Þannig þetta var nú ekkert meira en það. Þetta var ó­heppi­leg orð­ræða og eitt­hvað sem á ekki að tíðkast hjá neinum,“ segir hann.

Ólafur hafi lært sína lexíu

Þegar á­kvörðun var tekin um að Ólafur léti af störfum sínum í ráðum borgarinnar í lok janúar sagði Ey­þór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæðis­flokksins í borginni, að með því væri Sjálf­stæðis­flokkurinn að sýna for­dæmi með því að taka á svona málum. Ólafur myndi ekki starfa í nefndum borgarinnar á næstunni og að allir sem tengdust málinu hafi sam­mælst um þetta sem bestu lausnina.

Ey­þór segir ekkert at­huga­vert við að Ólafur komi nú til baka. Staðið hafi verið við fyrri orð um að hann myndi ekki starfa í nefndunum „á næstunni“ en nú væri tími til kominn að hann sneri aftur.

Eyþór segir tíma til kominn að Ólafur snúi aftur.vísir/vilhelm

„Við höfum séð það að um­ræðan hefur verið betri og ég held að aðrir flokkar mættu líka taka á orð­ræðu sem er hjá þeim. Það er bara verið að segja það að við erum að gæta að okkar orð­ræðu og við erum að gera það,“ segir Ey­þór. Það hafi ekki verið á­kveðið fyrir fram að Ólafur yrði að­eins frá í hálft ár en þegar um­ræður hafi komið upp um það aftur ný­lega hafi sá tími verið talinn hæfi­legur.

Teljiði þá að Ólafur hafi lært sína lexíu?

„Já. Og vonandi verður stjórn­mála­um­ræðan bara sann­gjarnari hjá öllum.“

Hélt að Ólafur yrði frá út kjör­tíma­bilið

Hildur Björns­dóttir, borgar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokksins tók skýra og opin­bera af­stöðu gegn orð­ræðu Ólafs á sínum tíma og gerðist þá nokkuð harð­orð um málið. Hún sagði þetta „sannar­lega ekki fyrstu um­mælin sem fara langt yfir vel­sæmis­mörk sem koma frá þessum vara­borgar­full­trúa en mér þykja um­mælin sem hann birti í gær [28. janúar um Dag] sér­lega ó­geð­felld“.

Hildur Björnsdóttir stóð í trú um að Ólafur yrði frá út kjörtímabilið.vísir/vilhelm

Innt eftir við­brögðum við endur­komu Ólafs inn í ráð borgarinnar segir hún:

„Það var á­kvörðun odd­vita að hann færi í tíma­bundið hlé vegna um­mæla sinna og að hann fengi annað tæki­færi til að koma aftur núna að hausti og þá er auð­vitað krafa á að hann endur­taki ekki þessa hegðun. Og ég bara treysti því að svo verði.“

Spurð hvort það hafi alltaf legið fyrir að Ólafur tæki sér að­eins hlé fram á haustið segir Hildur: „Mín túlkun var að þetta myndi endast út kjör­tíma­bilið en það var á­kvörðun odd­vita að gefa honum annað tæki­færi núna.“

Og ert þú sátt við það?

„Ég trúi á önnur tæki­færi og ég er að minnsta kosti til­búin að gefa honum annað tæki­færi og vona bara að hann standi undir því. En ef hann gerir það ekki þá verð ég auð­vitað veru­lega ó­sátt. En ég hef fulla trú á því að hann hafi lært sína lexíu og komi betri maður út úr þessu öllu saman.


Tengdar fréttir

„Nei, mér er ekki í nöp við Dag B. Eggertsson“

Ólafur Guðmundsson varaborgarfulltrúi botnaði skopmynd hins snjalla Gunnars Karlsson með því að segja að best væri að setja túrbó í bíl Vigdísar Hauksdóttur þar sem hún hefur verið stöðvuð á sínum kappakstursbíl af Degi B. Eggertssyni borgarstjóra.

„Orðræðan er mjög harkaleg og oft hatursfull“

„Ég fordæmi þessa árás og finnst hún alvarleg, því þarna er verið að beita skotvopnum fyrir utan heimili stjórnmálamanns. Ég lít þetta alvarlegum augum,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um skotárás á bíl borgarstjóra um liðna helgi sem lögregla hefur til skoðunar.

Degi afar brugðið vegna skotárásarinnar

Degi B. Eggertssyni borgarstjóra er afar brugðið vegna skotárásarinnar. Lögreglan hefur vaktað hús borgarstjóra frá því málið kom upp en hún hefur fundið byssukúlur í hurð bíls hans.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×