Sport

Dagskráin í dag: Stórmót í golfinu, fallslagir í Pepsi Max og landsleikir frænda vorra

Valur Páll Eiríksson skrifar
Verður Håland á skotskónum í dag?
Verður Håland á skotskónum í dag? Laurens Lindhout/Soccrates/Getty Images

Mikið úrval er á rásum Stöðvar 2 Sport þennan laugardaginn. Stórmót eru á dagskrá í golfinu er tímabilið klárast, gríðarmikilvægir leikir í Pepsi Max-deild kvenna og þá eru fjórar frændþjóðir okkar frá Norðurlöndum í eldlínunni í undankeppni HM 2022.

Golf

Opna ítalska mótið á Evrópumótaröð karla heldur áfram í dag og hefst bein útsending frá mótinu klukkan 11:30 á Stöð 2 Golf.

Þá er Solheim Cup, þar sem bestu kvenkylfingar Evrópu og Bandaríkjanna etja kappi, á dagskrá á sama tíma. Bein útsending frá því hefst klukkan 11:30 á Stöð 2 Sport 4 og Stöð 2 eSport.

Lokamót PGA-mótaraðarinnar í ár, stórmótið Tour Championship, er á dagskrá klukkan 17:00 á Stöð 2 Golf.

Fótbolti

Pepsi Max-deild kvenna

Þrír leikir eru á dagskrá í Pepsi Max-deild kvenna í dag er 17. og næst síðasta umferð deildarinnar hefst. Fylkir, Tindastóll og Keflavík verða öll í eldlínunni en þau berjast fyrir lífi sínu á botni deildarinnar.

Fylkir mætir Þór/KA í Árbæ og hefst bein útsending frá þeim leik klukkan 13:50 á Stöð 2 Sport 2.

Þá fær Selfoss lið Tindastóls í heimsókn og Keflavík mætir Íslandsmeisturum Vals. Bein útsending frá þeim leikjum hefjast klukkan 13:50 á stod2.is og í Stöð 2-appinu.

Undankeppni HM 2022

Fjórir leikir verða sýndir í undankeppni HM karla sem fer fram í Katar á næsta ári. Fjórar Norðurlandaþjóðir eru í eldlínunni.

Finnar mæta Kasakstan í fyrsta leik dagsins sem hefst klukkan 12:50 á Stöð 2 Sport 3.

Norðmenn heimsækja Letta og hefst bein útsending frá þeim leik klukkan 15:50 á Stöð 2 Sport 3.

Úkraína mætir Frakklandi í stórleik dagsins klukkan 18:35 á Stöð 2 Sport 2.

Þá er frændaslagur er Færeyjar mæta Danmörku klukkan 18:35 á Stöð 2 Sport 3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×