Oddvitaáskorunin: „Skellihló allan tímann á meðan ég réri lífróður“ Samúel Karl Ólason skrifar 3. september 2021 15:00 Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2021 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.
Glúmur Baldvinsson leiðir lista Frjálslynda lýðræðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í þingkosningunum. „Ísland er lítið forríkt land með 370 þúsund íbúa og er þar með í stakk búið til að byggja hér fyrirmyndarríki jöfnuðar og spillingarleysis. Það hefur mistekist. Ástæðan fyrir því að ég vil í pólitík er að leiðrétta þetta og gera Ísland að fyrirmyndarríki jöfnuðar, jafnréttis og bræðralags.“ „Ísland á að vera fyrirmyndarríkið sem önnur ríki líta til með öfundaraugum og gera það að leiðarljósi sínu um betra samfélag. Að því mun ég stefna og þess vegna vil ég í pólitík. Því hef rétt er haldið á spilunum á hér engan að skorta neitt. Nóg er til handa öllum.“ Klippa: Oddvitaáskorun: Glúmur Baldvinsson Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Dýrafjörður fyrir vestan. Hvað færðu þér í bragðaref? Helst hvergi komist ég hjá því. Nú á dögum er ekki hægt að kaupa sér ís með dýfu án þess að lenda í gettu betur keppni. Úrvalið er orðið óþolandi mikið. Uppáhalds bók? Bör Börson eftir Johan Falkberget. Drepfyndið háð um fábjána sem verður billjóner og forsætisráðherra. Minnir um margt á nýríkt Íslands. Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? (skammast þín smá fyrir að hafa gaman af því – sakbitin sæla) Veit nú ekki alveg hvað guilty pleasure lag á að tákna en ætli ég segi ekki Creep með Radio Head. Minnir á mig. Hvar á Íslandi myndir þú helst vilja búa? (Ekki í þínu kjördæmi) Í Mosfellsdalnum eða Reykjabyggð í Mosfellsbæ. Dundaðir þú þér við eitthvað á tímum Covid og samkomutakmarkana? Hámhorf eða nýtt áhugamál, sem dæmi. Ástina. Ástina á dögum COVID. Hvað tekur þú í bekk? Síðast þegar ég var í formi fyrir hálfu ári náði ég mest 80 kg. En stóð mig betur í Dead lift. 110 kg. Burstar þú tennurnar fyrir eða eftir morgunmat? Fyrir morgunmat. Draumastarfið? (Fyrir utan þingsetu) Einræðisherra, Hollywood leikari eða rithöfundur Hemingway style. Hvað myndir þú segja við Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, ef þú myndir hitta hann í einrúmi? Ég myndi spyrja hvort hann væri að grínast og halda honum í einrúmi til eilífðar. Uppáhalds tónlistarmaður? Elvis Lennon. Besti fimmaurabrandarinn? Tveir gamlingjar hittast á förnum vegi. Höfðu ekki hist síðan á menntaskólaárum. „Gott að sjá þig aftur,“ segir Guðmundur við Sigurð. „Sömuleiðis Guðmundur minn,“ svarar Sigurður. „Heyrðu hvað er að sjá þig Sigurður þú ert með banana í eyrunum?“ „Ha?“ hváir Sigurður. „Jú þú ert með banana í eyrunum Sigurður.“ Sigurður heyrir ekkert og segir bara Ha í hækkandi tónstigi. Svo heldur þessi orðræða áfram um skeið þar til Guðmundur hallar sér alveg upp að Sigurði og æpir: „Sigurður þú ert með banana í eyrunum.“ Þá hristir Sigurður höfuðið og segir: Guðmundur minn ég heyri ekkert hvað þú segir því ég er nefnilega með banana í eyrunum. Glúmur og Snæfríður systir hans. Ein sterkasta minningin úr æsku? Þegar ég var um tíu ára ásamt vinum mínum í árabátnum Kommanum að róa inn fjörðinn Skutulsfjörð við Ísafjörð eftir fiskerí. Þá gerðist svo mikill mótvindur að litlum mátti muna okkur hefði rekið til Grænlands. En það hafðist fyrir rest að róa í land. En tæpt var það. Og það undarlegasta var var að ég skellihló allan tímann á meðan ég réri lífróður. Hver er fyrirmynd þín í pólitík? Blanda af Bobby Kennedy og Boris Johnson. Besta íslenska Eurovision-lagið? Hægt og hljótt eftir Valla og sungið af frænku minni Höllu Margréti. Besta frí sem þú hefur farið í? Með fjölskyldunni 1978 þegar við keyrðum alla leið frá Munchen til Brindisi Ítalíu og tókum ferju til Grikklands og keyrðum svo tilbaka í gegnum fyrrrum Júgóslavíu til Ítalíu. Lignano. Ítalía er mitt uppáhaldsland. Uppáhalds þynnkumatur? Skyr með rjóma. Hve oft hefur þú farið að sjá eldgosið? Einu sinni en gert fjórar tilraunir. Það kaus bara að gjósa ekki í þrjú skipti af fjórum. Uppáhalds Fóstbræðraatriði? Þegar Jón Gnarr hittir Benna og lýsir honum hvað kom fyrir Sigga. Sumsé hvernig Siggi eða hvað hann hét var barinn í klessu. Uppáhalds uppátækið frá framhaldsskólaárunum? Þegar ég stofnaði veðbanka í kringum íslenska körfuboltaleiki og vann sjálfur pottinn í tvö fyrstu skiptin fyrir hreina heppni. Þar með hvarf traustið á bankanum. Rómantískasta uppátækið? Þegar ég sá að blóm dyggðu ekki lengur til að friða þáverandi kærustu mína og núverandi barnsmóður sem þá var í MR. Svo ég keypti eins stórt tré og ég fann og lét senda henni bent í tíma í MR og fylgdist svo með atgangnum úr fjarlægð því margir þurftu að aðstoða hana við að burðast með tréið útí bíl. Það lukkaðist
Oddvitaáskorunin Alþingiskosningar 2021 Reykjavíkurkjördæmi suður Mest lesið Kynntust í Keflavík og gista saman í villu í Kenýa Ferðalög Bak við tjöld Víkurinnar: Háskalegar aðstæður og hættulegur ferðamaður á hjara veraldar Bíó og sjónvarp Embla Wigum flytur aftur á Klakann Lífið Skömminni skilað Gagnrýni Gefur endurkomu undir fótinn Lífið Steikt að sjá barn með rottu í bandi í París Lífið Guðrún er með sólarsellurafmagn í sautján fermetra húsi sínu Lífið „Léleg“ hönnun gervigreindar reyndist mannanna verk Menning Helgi Ómars útskrifaður sem heilsumarkþjálfi Lífið Sárþjáður Eyfi sendur með sjúkrabíl og skellt í aðgerð Lífið Fleiri fréttir Gefur endurkomu undir fótinn Steikt að sjá barn með rottu í bandi í París Guðrún er með sólarsellurafmagn í sautján fermetra húsi sínu Embla Wigum flytur aftur á Klakann Helgi Ómars útskrifaður sem heilsumarkþjálfi Stelur af Sigga Bond: „Þá ætla ég að tala við Hannes Hólmstein“ „Finn ekki fyrir pressu“ Þórunn Elísabet og Jón selja í Vesturbænum Götulistamaðurinn Jójó látinn Hvernig er best að byggja upp traust? Þótti ekki viðeigandi að gefa fagaðilum gervitittlinga „Guð skapaði þig og hann gerir ekki mistök“ „Finnst við oft gleyma þeim sem geta ekki tjáð sig“ Dreymir um að finna fólkið sem gaf hana frá sér Krúttlegustu áheyrnarprufur ársins Kossaflens á klúbbnum Sjóðheitar skvísur í hvolpajóga brutu næstum Internetið Sárþjáður Eyfi sendur með sjúkrabíl og skellt í aðgerð „Hálfur áratugur með þér my love“ Herra stal hundi Sunnevu og tók með í Bannað að hlæja Enn veldur Britney áhyggjum „Ég er tilbúin að vera þetta ofurpar sem okkur er ætlað að verða“ Trúlofuðu sig í laxveiði Höfundur hinna erótísku Rutshire Chronicles-bóka látinn Áróðursvélar Netanjahús séu á fullu blasti í Eurovision Stjörnulífið: „Mesta milf Íslands“ „Ég hef tapað vinum á því að eiga peninga“ Sonur Tinu Turner látinn Óraunverulegt að kaupa íbúð í miðborg London Krakkatían: Bannað að hlæja, Friðarsúlan og Iceguys Sjá meira
Bak við tjöld Víkurinnar: Háskalegar aðstæður og hættulegur ferðamaður á hjara veraldar Bíó og sjónvarp
Bak við tjöld Víkurinnar: Háskalegar aðstæður og hættulegur ferðamaður á hjara veraldar Bíó og sjónvarp