Innlent

Ingó tróð upp í fimm­tugs­af­mæli stjórnar­manns KSÍ

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Ingó veðurguð tróð upp í fimmtugsafmæli Tómasar Þóroddssonar, stjórnarmanni KSÍ fyrr í þessum mánuði.
Ingó veðurguð tróð upp í fimmtugsafmæli Tómasar Þóroddssonar, stjórnarmanni KSÍ fyrr í þessum mánuði. Vísir

Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, tróð upp í fimmtugsafmæli Tómasar Þóroddssonar stjórnarmanns KSÍ fyrir tíu dögum síðan. Tómas er einn þeirra sem skrifaði undir yfirlýsingu stjórnar KSÍ um að staðið sé með þolendum ofbeldis.

Tómas, sem er veitingamaður á Kaffi Krús á Selfossi auk þess að vera landshlutafulltrúi í stjórn KSÍ, hélt upp á fimmtugsafmæli sitt 20. ágúst síðastliðinn. Ingó veðurguð tróð þar upp og sást vel til þess í myndskeiðum á samfélagsmiðlum.

Myndbandi úr veislunni var meðal annars dreift á Twitter af Kristjáni Óla Sigurðssyni, sem kemur reglulega fram í vinsælu hlaðvarpi Hjörvars Hafliðasonar, Dr. Football, sem skrifar við færsluna: „Aðeins það besta hjá Tomma á Kaffi Krús“.

Uppfært klukkan 16:20: Eftir að fréttin birtist eyddi Kristján Óli myndbandinu af Twitter. 

Kristján Óli hefur eytt færslu sinni en hér má sjá skjáskot.

Ingólfur var fyrr á þessu ári sakaður um kynferðisofbeldi og sögum frá meintum þolendum dreift af aðgerðahópnum Öfgum. Ingólfi var í kjölfarið tilkynnt að hann myndi ekki sjá um brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum sem hann hefur gert undanfarinn tæpan áratug.

Þá var það tilkynnt í síðustu viku að Ingólfur muni ekki fara með hlutverk Danny Zuko í söngleiknum Grease sem verið er að setja á laggirnar, en til stóð lengi vel að hann færi með hlutverkið á móti Jóhönnu Guðrúnu, sem mun syngja hlutverk Sandy.

Guðni Bergsson, formaður KSÍ, tilkynnti í gær afsögn sína í kjölfar þess að Þórhildur Gyða Arnarsdóttir lýsti grófu ofbeldi sem hún varð fyrir af hálfu leikmanns í karlalandsliðinu í knattspyrnu. Í ljós kom að faðir Þórhildar hafði tilkynnt ofbeldið til Guðna og annarra starfsmanna KSÍ vorið 2018 en Guðni sagði í Kastljósi í síðustu viku að sambandinu hafi aldrei borist formlegar tilkynningar um kynferðisofbeldi sem leikmenn hefðu beitt.

Stjórn KSÍ sendi svo frá sér yfirlýsingu í gær þar sem þolendur voru beðnir afsökunar. Tekið verði vel á móti þolendum ofbeldis og þeir hvattir til að hafa samband við Knattspyrnusambandið og tilkynna ofbeldi sem leikmenn þess hafi beitt.

„Við viljum auk þess biðja þolendur eða aðra sem hafa upplýsingar um alvarlegt ofbeldi innan hreyfingarinnar að leita til okkar. Við munum taka vel á móti ykkur, við viljum að málin fari í viðeigandi farveg og viljum tryggja að ábyrgð ofbeldis verði sett á réttan stað, á herðar gerenda en ekki þolenda.“

Tómas Þóroddsson er einn þeirra stjórnarmanna sem skrifaði undir þessa yfirlýsingu. Yfirlýsingin endar á þessum orðum: 

„Knattspyrnuhreyfingin er hluti af samfélaginu, og við þurfum öll sem samfélag að gera betur í því að taka utan um þolendur og berjast gegn kynferðisofbeldi.“

Myndbandið, sem Kristján Óli deildi úr afmæli Tómasar, fór í mikla dreifingu á Twitter fyrir akkúrat tíu dögum síðan. Þar má sjá þekkt andlit úr íslenskum fótbolta dilla sér við söng Ingós. 155 hafa líkað við færsluna, þegar þetta er skrifað.

Viðbrögðin við færslunni voru þó flest neikvæð. Athugasemdir eru til dæmis: „Afsakið á meðan ég æli yfir allt,“ og „Bara níðingar sem fá að koma fram?“

„Kvenhatarar allra landa sameinist,“ skrifar einn í athugasemd.

„Djöfulsins viðbjóður…“

Og margir svöruðu bara með ælu-tjákni.

Ofbeldi innan KSÍ hefur verið til mikillar umræður undanfarið eftir að greint var frá því að Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður og leikmaður knattspyrnufélagsins Everton, hafi verið handtekinn af lögreglunni í Manchester í Englandi vegna gruns um að hann hafi brotið kynferðislega á einstaklingi undir lögaldri. 

Boltinn hélt áfram að rúlla og hefur hver sagan á fætur annarri komið fram í dagsljósið um meint ofbeldi af hálfu landsliðsmanna í knattspyrnu.

Ekki náðist í Tómas við vinnslu fréttarinnar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. 


Tengdar fréttir

Rúmenar fjalla um „risahneyksli“ á Íslandi

Rúmenskir fjölmiðlar velta sér í dag upp úr fréttum af næstu andstæðingum Rúmeníu í undankeppni HM karla í fótbolta; íslenska landsliðinu. Í fyrirsögnum er talað um „risahneyksli á Íslandi“.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×