Samþykkir að verða varaforsetaefni flokksins á næsta ári Atli Ísleifsson skrifar 24. ágúst 2021 10:04 Rodrigo Duterte hefur gegnt embætti forseta Filippseyja frá árinu 2015. EPA Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, hefur samþykkt að verða varaforsetaefni stjórnarflokksins í forsetakosningunum í landinu á næsta ári. Stjórnarskrá landsins kemur í veg fyrir að Duterte geti boðið sig sjálfur fram sem forseti á næsta ári og er þetta af mörgum talin leið fyrir forsetann til að framlengja valdatíma sinn.
Guardian segir frá því að stjórnarflokkurinn, PDP-Laban, hafi greint frá ákvörðuninni nú um tveimur vikum fyrir landsþing flokksins hefst þar sem búist er við að öldungadeildarþingmaðurinn Christopher „Bong“ Go, einn nánasti samstarfsmaður Dutertes, verði útnefndur sem forsetaefni flokksins í kosningunum á næsta ári. Karlo Nograles, aðstoðarframkvæmdastjóri flokksins, segir Duterte vera með þessari „fórn“ að hlusta á háværar kröfur fólksins. Stjórnarskrá Filippseyja gerir ráð fyrir að forseti geti einungis setið eitt sex ára kjörtímabil, en kjörtímabili Dutertes lýkur í júní á næsta ári. Fréttaskýrendur telja margir að Duterte sé með þessu vera að tryggja sér áframhaldandi völd bakdyramegin. Andstæðingar forsetans segja Duterte ætla að sér að taka við völdum, fari svo að Go sigri í kosningunum og segi svo af sér. Duterte hefur sjálfur reynt að skapa þá ímynd af sér að hann hafi takmarkaðan áhuga á því að gegna embætti forseta. Hann hefur ítrekað lýst því yfir að hann vilji að Go verði arftaki sinn og aðstoðaði hann Go að tryggja sér þingsæti í öldungadeildinni árið 2019. Samhliða þingstörfum hefur hinn 76 ára Go starfað sem sérlegur aðstoðarmaður Dutertes. Duterte hefur vakið mikla athygli fyrir miskunnalausa baráttu sína gegn fíkniefnasölum í landinu og sömuleiðis óheflaða orðræðu.
Filippseyjar Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Sjá meira