Innlent

Gæslu­­­stjóri snið­­­gengur Þjóð­há­­­tíð og rit­stjóri safnar undir­skriftum

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Þjóðhátíðarnefnd sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem tilkynnt var að Ingó myndi ekki annast brekkusönginn í ár eins og til stóð.
Þjóðhátíðarnefnd sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem tilkynnt var að Ingó myndi ekki annast brekkusönginn í ár eins og til stóð. vísir/vilhelm

Baldur Már Róbertsson, sem hefur stýrt gæsluhópi á Þjóðhátíð síðustu átta ár, segir að hvorki hann né nokkur á hans vegum muni koma nálægt hátíðinni í ár. Tryggvi Már Sæmundsson, ritstjóri Eyjar.net og útflutningsstjóri, hefur þá stofnað til undirskriftarlista til að mótmæla því að Ingólfur Þórarinsson, eða Ingó veðurguð, hafi verið afbókaður af Þjóðhátíð.

Baldur segist vera afar ósáttur við ákvörðun þjóðhátíðarnefndar um að hætta við að fá Ingó veðurguð til að sjá um brekkusönginn eftir það sem Baldur kallar „nafnlausar upphrópanir á netinu sem taka fólk af lífi án dóms og laga“. Framkvæmdastjóri forvarnarhópsins Bleika Fílsins fagnar því að losna við mann með slík viðhorf úr gæslunni.

„Ég er ekki sáttur við það að einhver hópur sem kallar sig Öfgafemínista geti komið með einhverjar nafnlausar ásakanir á hendur mönnum sem að mínu besta viti eru ekki þekktir fyrir ofbeldi,“ segir Baldur Már við Vísi og vísar þar til hópsins Öfga á TikTok, sem birti sögur fleiri en tuttugu kvenna, sem lýsa kynferðislegu ofbeldi af hálfu Ingós.

Í kjölfarið fóru fleiri og fleiri að greina frá sögum af Ingó á Twitter.

Baldur segir þjóð­há­tíðar­nefndina ekki hafa neitt fyrir sér í á­kvörðun sinni annað en þessar nafn­lausu sögur. „Við vitum ekkert hvað er á bak við þetta. Kannski er hann sekur en maður veit það ekki – getum við dæmt um það?“

Undarlegt viðhorf gæslumanns

Í ára­raðir hefur Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum verið gagn­rýnd sem fyrir­bæri vegna fjölda kyn­ferðis­brota sem eru framin þar ár­lega. Árið 2017 voru tíu nauðgarnir til­kynntar til lög­reglu eftir Þjóð­há­tíð og árið 2018 voru þær átta.

Spurður hvort sér þyki það ekki sniðugt hjá nefndinni að bregðast við á­sökunum af festu og trúa þol­endum eftir mikla gagn­rýni síðustu árin segir Baldur ekki telja svo vera. „Nei, mér finnst það ekki. Ekki miðað við að þeir hafa ekkert fyrir sér í þessari á­kvörðun.“

Baldur tjáði þessi við­horf sín upp­runa­lega í um­ræðu­hópi Vest­mann­eyinga á Face­book, Heima­kletti. Færsla hans þar vekur mis­jöfn við­brögð. Þar er við­horf þeirra sem eru fegnir við að losna við mann með skoðanir eins og Baldur úr gæslunni afar á­berandi og bregst kona nokkur, sem kveðst hafa verið í gæslu­hópi hans við orðum hans:

„Ég hef farið út sem hluti af þínum hóp Baldur, og eftir þessi skrif held ég að Eyja­menn séu betur settir en ekki að þú sleppir því að mæta með þinn hóp. Ef þetta er við­horfið gegn þol­endum of­beldis þá ert þú ekki maðurinn til að sinna gæslu­störfum í dalnum,“ skrifar hún.

Jóhanna Ýr Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Bleika fílsins.

Þetta tekur Jóhanna Ýr Jóns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri for­varnar­hópsins Bleika fílsins í Vest­manna­eyjum, undir í sam­tali við Vísi.

„Já, auð­vitað eiga svona við­horf ekki að við­gangast hjá gæslu­mönnum,“ segir hún.

Sjálfum finnst Baldri grund­vallar­munur á þessu tvennu. Hann segir að­stæður allt aðrar á Þjóð­há­tíð og að sjálf­sögðu tæki hann mark á konu sem kæmi að honum til að til­kynna um kyn­ferðis­of­beldi á há­tíðinni, það væri til dæmis gert undir nafni. 

Hann segist hafa lent í þeirri stöðu áður á há­tíðinni og brugðist við með viðeigandi hætti.

Skref í rétta átt

Jóhann Ýr gefur ekki mikið fyrir skoðanir Baldurs á málinu í heild sinni og telur þjóð­há­tíðar­nefnd hér vera að taka stórt skref í rétta átt.

„Þó þetta hafi verið stutt og snaggara­leg yfir­lýsing hjá þeim þá er þetta af hinu góða og við fögnum þessu,“ segir hún.

„Auð­vitað verðum við að trúa þol­endum og ég get ekki skilið hvernig ein­hver trúir frekar einum manni heldur en stórum hóp af ungum stúlkum. Svo vænir fólk þær um lygar en hamrar á sama tíma á því að allir séu sak­lausir uns sekt þeirra er sönnuð.“

Hún segist ekki hafa orðið vör við að viðhorf Baldurs til málsins sé útbreitt meðal fólks og segir umræðuna komna mun lengra en fyrir örfáum árum. Fólk sé farið að átta sig á því að ákveðnir hlutir séu ekki í lagi og þeim verði ekki leyft að viðgangast lengur.

Engar kvartanir til nefndarinnar

Hörður Orri Grettis­son, for­maður þjóð­há­tíðar­nefndar, vildi ekkert tjá sig frekar um á­kvörðun nefndarinnar þegar Vísir leitaðist eftir því í dag.

Hann segist þó ekki hafa orðið var við nei­kvæð við­brögð fólks við henni og segir að sér hafi ekki borist neinar kvartanir eða at­huga­semdir við hana frá starfs­fólki, eins og Baldri.

Safnar undirskriftum til að mótmæla

Tryggvi Már Sæmundsson, ritstjóri Eyjar.net og útflutningsstjóri, hefur stofnað til undirskriftarlista til að mótmæla því að Ingólfur hafi verið afbókaður af Þjóðhátíð.

„Í gær tilkynnti þjóðhátíðarnefnd að Ingólfur Þórarinsson kæmi ekki fram á Þjóðhátíð í ár. Með fylgdi texti um að þessi ákvörðun nefndarinnar svaraði fyrir sig sjálf og yrði ekki rædd frekar af hennar hálfu. Ekkert nýtt hafði komið fram í umræðunni um málið milli þess að Ingó var tilkynntur til leiks þar til að nefndin bognaði og tilkynnti um afbókun listamannsins,“ segir Tryggvi.

Tryggvi Már Sæmundsson, ritstjóri Eyjar.net og útflutningsstjóri.

„Engin meint fórnarlömb hafa stigið fram. Meira að segja öfgahópurinn segist ekki hafa nafngreint neinn. Hvorki meinta þolendur né meintan geranda. Kjarni málsins er þessi: Það er ótækt með öllu að dómstóll götunnar stjórni því hverjir komi fram á viðburðum á Íslandi. Engin kæra liggur fyrir og því er engin rannsókn í gangi af hálfu lögreglunnar.“

Hann segir mikilvægt að landsmenn aðstoði þjóðhátíðarnefnd ÍBV að endurskoða þá ákvörðun um að afbóka Ingó á Þjóðhátíð.

Þegar þessi frétt er skrifuð hafa 114 manns skrifað undir listann.


Tengdar fréttir

Fimm ára fangelsi fyrir nauðgun á Þjóðhátíð

Birkir Árnason hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu á útisalerni á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um síðustu verslunarmannahelgi. Þetta er sama niðurstaða og Héraðsdómur Suðurlands hafði áður komist að.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×