Innlent

„Hvað get ég sagt? Ég er saklaus“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Marek Moszczynski í dómsal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Marek Moszczynski í dómsal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Vísir/vilhelm

Marek Moszczynski, karlmaður á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir að hafa orðið þremur að bana með íkveikju að Bræðraborgarstíg í fyrra, baðst undan því að gefa skýrslu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann vísaði í fyrri skýrslur sem teknar voru af honum hjá lögreglu og ítrekaði að hann væri saklaus.

Marek er sá fyrsti í Íslandssögunni til að vera ákærður fyrir að bana þremur. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Bræðraborgarstíg 1 í Gamla vesturbænum í Reykjavík síðdegis þann 25. júní í fyrra. Gríðarmikill eldur logaði þá í húsinu, þar sem margir bjuggu– flestir verkafólk af erlendu bergið brotið.

Þrettán íbúar hússins voru heima. Þrír létust en öðrum tókst að komast út, sumir með því að kasta sér úr glugga á þriðju hæð hússins.

Marek neitaði sök við þingfestingu málsins í september. Hann er metinn ósakhæfur samkvæmt yfirmati geðlækna.

„Mikill harmleikur“

Aðalmeðferð í málinu gegn Marek hófst tímanlega klukkan 9:15 í dómsal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Eftir nokkrar tilfæringar með gögn sem þurfti að leggja fram tilkynnti Stefán Karl Kristjánsson verjandi Mareks þéttskipuðum dómnum; héraðsdómaranum Barböru Björnsdóttur, meðdómara hennar og geðlækni, að Marek hygðist ekki gefa skýrslu. Hann hefði þegar gefið skýrslu hjá lögreglu og þar hefði sannleikur hans komið fram.

Marek kom þó fyrir dóminn ásamt túlki sínum og svaraði nokkrum spurningum. Hann játti því að allt hefði verið satt og rétt sem fram kom af hans hálfu í skýrslu hjá lögreglu.

„Hvað get ég sagt, ég er saklaus. Mikill harmleikur,“ sagði Marek.

Stefán Karl Kristjánsson verjandi Mareks ásamt Marek og túlki í dómsal í morgun.Vísir/vilhelm

Veikur í fyrsta sinn á ævinni

Inntur eftir því hvort hann myndi eitthvað eftir deginum sem bruninn varð sagðist hann muna allt saman. „Þó að ég hafi verið veikur,“ bætti hann við. Eins og áður segir er Marek metinn ósakhæfur samkvæmt yfirmati geðlæknis.

Þá sagði hann veikindi sín hafa komið upp þennan dag, 25. júní, í fyrsta sinn á ævinni. Marek sagðist ekki vita hvað það var sem gerðist. „Mikið stress. Var á spítala,“ sagði hann. Veikindin hefðu byrjað í kjölfar þessa.

Þá vildi hann engu frekar við bæta heldur staðfesti það sem hann hefði þegar sagt. Hann hefði verið yfirheyrður tvisvar, þrisvar hjá lögreglu.

Að því búnu sneri Marek aftur til verjanda síns. Lögreglumenn fylgdu honum loks út úr salnum svo hann gæti fengið sér sígarettu.

„Hrópandi mótsögn“

Þinghaldi var lokað að kröfu ákæruvaldsins þegar næsta vitni kom fyrir dóm skömmu fyrir klukkan tíu. Blaðamönnum var því vísað úr dómsal. Stefán Karl verjandi Mareks gerði athugasemd við þetta og sagði það „íroníu“ og „hrópandi mótsögn“ að þinghaldi væri lokað fyrir tiltekið vitni. 

Sjálfur hafði Stefán Karl óskað eftir því að allt þinghaldið yrði lokað og vísaði til þess að gögn í málinu væru þess eðlis að þau ættu ekkert erindi við almenning. Hann fór til vara fram á að málið yrði þá lokað að hluta. Ákæruvaldið var þessu ósammála. 

Líka ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni

21 árs kona og 24 ára karlmaður, bæði frá Póllandi, létust í brunanum. Önnur 26 ára kona lést af völdum höfuðáverka en hún féll niður af þriðju hæð hússins þegar hún reyndi að flýja eldinn. Fjögur af þeim tíu sem lifðu af slösuðust.

Marek er ákærður fyrir brennu, manndráp og tilraun til manndráps með því að hafa kveikt eld á gólfi í herbergi sínu á annarri hæð hússins, á gólfi í sameiginlegu rými á sömu hæð og undir stiga sem lá upp á þriðju hæð hússins. Þannig hafi hann valdið eldsvoða sem hafði í för með sér almannahættu.

Í framhaldi af brunanum hélt Marek að rússneska sendiráðinu við Garðastræti og sló tvo lögreglumenn með gúmmímottu. Fyrir þann verknað er hann ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni.

Reiknað er með því að aðalmeðferð málsins standi yfir mánudag, þriðjudag og miðvikudag en ljúki svo með málflutningi ákæruvaldsins og verjanda á föstudag.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Meintur morðingi svarar fyrir sig í héraðsdómi

Aðalmeðferð í Bræðraborgarstígsbrunanum hefst við Héraðsdóm Reykjavíkur í dag. Marek Moszczynski, karlmaður á sjötugsaldri, er sá fyrsti í Íslandssögunni til að vera ákærður fyrir að bana þremur. Reiknað er með því að hann gefi skýrslu fyrstur fyrir dómi í dag.

Hinn á­kærði metinn ó­sak­hæfur

Marek Moszczynski, karlmaður á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir manndráp og íkveikju á Bræðraborgarstíg síðasta sumar, er metinn ósakhæfur samkvæmt yfirmati geðlækna.

Krefst kyrrsetningar á Bræðraborgarstíg eitt og þrjú

Lögmaður þeirra, sem urðu fyrir líkams- eða eignatjóni vegna brunans á Bræðraborgarstíg í sumar og aðstandanda þeirra sem létust, hefur farið fram á kyrrsetningu á Bræðraborgarstíg eitt og þrjú. Hann segir það gert til að tryggja skaðabótakröfur umbjóðenda sinna gagnvart húseigandanum, sem er fyrirtækið HD verk.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×