Óvíst hvort útflutningstakmarkanir hafi áhrif á Ísland Kjartan Kjartansson skrifar 24. mars 2021 13:58 Ekki er búið að samþykkja hertu útflutningsreglurnar í Evrópu en utanríkisráðuneytið vinnur að því að afla upplýsinga um þær og möguleg áhrif á Ísland. Vísir/Vilhelm Utanríkisráðuneytið segist ekki hafa fengið neinar upplýsingar sem gefi tilefni til að ætla að fyrirhugaðar útflutningstakmarkanir Evrópusambandsins á bóluefni gegn kórónuveirunni hafi áhrif á afhendingu bóluefnis hingað.
Búist er við að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti tillögur um hertar útflutningstakmarkanir á bóluefni gegn kórónuveirunni í dag. Aðgerðunum er sagt ætlað að tryggja að útflutningur á bóluefni sem er framleitt í aðildarríkjunum tefji ekki enn afhendingu á því innan álfunnar. Með reglunum fengju ríki heimild til þess að stöðva útflutning til landa þar sem bólusetning gegn veirunni er lengra á veg komin eða landa sem leyfa ekki útflutning á bóluefni sem er framleitt þar. Þær eru sagðar beinast sérstaklega að Bretlandi og Bandaríkjunum. Sveinn Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir að það reyni nú að afla sér upplýsinga um fyrirhugaðar reglur ESB. Það hafi þó ekki fengið neinar upplýsingar sem gefi tilefni til að ætla að reglurnar hefðu áhrif á afhendingu bóluefna til Íslands. Evrópusambandið hefur átt í deilum við bresk stjórnvöld vegna bóluefnis AstraZeneca. Það sakar bresk-sænska lyfjafyrirtækið um að standa ekki við gerða samninga um afhendingu bóluefnis og er ósátt við að það fái ekkert af því bóluefni sem sé framleitt í Bretlandi. Á sama tíma hafi Bretland fengið um ellefu milljónir skammta af þeim 45 milljónum sem hafa verið fluttir út frá aðildarríkjum þess.
Evrópusambandið Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bretland Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Fleiri fréttir Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Sjá meira