Innlent

Dæmdur fyrir nauðgun undir fölsku flaggi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gabríel var í samskiptum við konuna á Snapchat í lengri tíma.
Gabríel var í samskiptum við konuna á Snapchat í lengri tíma. Vísir

Gabríel Varada Snæbjörnsson hefur verið dæmdur í fjögurrra ára fangelsi fyrir nauðgun og brot gegn blygðungarsemi ungrar konu. Gabríel vilti á sér heimildir um tuttugu mánaða skeið, kúgaði konuna til kynmaka með öðrum mönnum og til að senda sér kynferðislegt myndefni. Þá nauðgaði hann henni á hótelherbergi á höfuðborgarsvæðinu.

Landsréttur staðfest í dag fjögurra ára dóm sem Gabríel hlaut í Héraðsdómi Reykjaness í maí 2019. Hann var 22 til 24 ára þegar brotin áttu sér stað en konan tveimur árum yngri. Maðurinn beitti blekkingum á samfélagsmiðlum en þar þóttist hann vera annar ungur karlmaður sem konan þekkti. Þannig fékk hann konuna til að eiga í kynferðislegum samskiptum við sig og braut gegn henni.

Samskipti Gabríels við ungu konuna fóru fram í gegnum Snapchat. Þar stofnaði hann reikning í nafni hins unga mannsins sem konan kannaðist við, og stóðu fölsku samskiptin þar í langan tíma.

Leitaði til Bjarkarhlíðar

Í gegnum þennan falska Snapchat-reikning fékk maðurinn konuna til að hitta sig í tvígang á hóteli í Kópavogi þar sem hann fór fram á hún yrði bundin og með bundið fyrir augu á meðan þau höfðu samræði. Konan taldi sig vera að hitta unga manninn en ekki hinn dæmda.

Þegar leið á samskiptin fór maðurinn að stjórna konunni með hótunum þar sem hann neyddi hana til að stunda kynferðismök með öðrum mönnum. Hann neyddi hana til að taka þau upp og senda sér myndir, myndupptökur eða hljóðupptökur af þeim samskiptum. Ella myndi hann birta myndir af konunni sjálfri. Þannig hélt hann konunni í gíslingu.

Konan leitaði til Bjarkarhlíðar, miðstöðvar þolenda ofbeldis, árið 2017 vegna kynferðisofbeldis sem hún taldi sig hafa orðið af hálfu unga mannsins sem hún taldi sig hafa verið í samskiptum við og hitt í tvígang á hótelinu. Við rannsókn málsins kom hins vegar hið sanna í ljós. Hinn dæmdi hafði villt á sér heimildir og þóst vera ungi maðurinn sem var ómeðvitaður um allt sem fram hafði farið.

Einarður ásetningur og sératkvæði

Gabríel var dæmdur til fjögurra ára fangelsisvistar og horfði Landsréttur sérstaklega til þess hve framganga og háttsemi hans hefði verið þann langa tíma sem um ræddi og brot hans áttu sér stað. Hann hefði leikið tveimur skjöldum í samskiptum sínum við konuna í lengri tíma.

Ásetningur hans var því metinn einarður og brot hans bæði alvarleg og óvenjuleg. Var hann dæmdur til að greiða konunni 1,8 milljónir króna í miskabætur.

Jón Höskuldsson og Kristbjörg Stephensen voru sammála niðurstöðunni en Hildur Briem, settur landsréttardómari í málinu, skilaði sératkvæði í málinu. Taldi hún að dæma ætti Gabríel til vægari refsingar og til greiðslu lægri miskabóta.


Tengdar fréttir

Kallaður nauðgari og beittur ofbeldi án þess að vita ástæðuna fyrir því

26 ára karlmaður var í gær dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa villt á sér heimildir í um tuttugu mánuði og þannig fengið unga konu til að eiga í kynferðislegum samskiptum við sig. Hann kúgaði hana til kynmaka með öðrum mönnum og nauðgaði henni á hótelherbergi þar sem hún hélt að hann væri annar maður. Verkefnastjóri í Bjarkarhlíð segir málið með alvarlegri kynferðisbrotamálum sem sést hafa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×