Lífið

Leita að olíufursta til að fjármagna ferðalag um landið á jógabíl

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Jógakennararnir Íris Ösp Heiðrúnardóttir og Andrea Rún Carlsdóttir leggja af stað í hringferð á föstudag. Þær kenna jóga frítt á leiðinni en taka við frjálsum framlögum og grínast með að þær leiti að olíufursta. 
Jógakennararnir Íris Ösp Heiðrúnardóttir og Andrea Rún Carlsdóttir leggja af stað í hringferð á föstudag. Þær kenna jóga frítt á leiðinni en taka við frjálsum framlögum og grínast með að þær leiti að olíufursta.  Mynd úr einkasafni

Jógakennararnir Íris Ösp Heiðrúnardóttir og Andrea Rún Carlsdóttir ætla að ferðast um landið í sumar og kenna jóga á leiðinni. Verkefnið heitir Jógabíllinn og eru vinkonurnar sjálfar skaparar, bílstjórar og jógaleiðbeinendur.

„Jógabíllinn er Happy Campers húsbíll sem mun keyra um landið og leiða landsmenn í jóga gegn frjálsum framlögum, í raun jóga stúdíó á hjólum.“

Íris og Andrea segja að á leiðinni muni þær stoppa á ferðamannastöðum á víð og dreif um landið, smakka góða matinn sem landsmenn hafa upp á að bjóða, klífa falleg bæjarfjöll og taka sundsprett í fjörum og heitu laugum landsins.

Þær segja að það þurfi alls ekki að hafa bakgrunn í jóga til þess að geta tekið þátt í tímunum, allir ættu að geta tekið þátt.

„Á meðan önnur kemur til með að leiða tímann. Hin mun svo ganga á milli og aðstoða fólk til þess að allir fái sem mest út úr jógatímanum, þannig að ef þú ert að stíga þín fyrstu skref í jóga muntu læra helling á því að koma og jógast með okkur. Allir velkomnir,“ segir Íris. „Jóga er fyrir alla, hvernig sem þú kýst að taka þátt þá viljum við sjá þig, frænda þinn og ömmu þína.“

Límdar saman

Íris hafði lengi verið með þessa hugmynd í maganum en þegar þær hittust urðu töfrar til og á innan við viku varð Jógabíllinn að veruleika.

„Við erum báðar mjög framtaks- og vinnusamar og þess vegna byrjaði boltinn að rúlla frekar hratt og stækkaði verkefnið í takt við það. Það má segja að Jógabíllinn hafi reykspólað af stað.“

Íris og Andrea kynntust á Instagram og hittust svo í fyrsta skipti í eigin persónu þegar Íris fór í nudd til Andreu fyrir jólin.

„Við höfum rosalega lík áhugasvið og þess vegna lágu leiðir okkar ítrekað saman. Rétt fyrir páska hittumst við síðan reglulega á Klambratúni, með góðu millibili að sjálfsögðu, til þess að iðka jóga með nokkrum fleiri frábærum konum. Þá byrjaði sambandið að styrkjast og byrjuðum við að ganga saman á fjöll og bera saman bækur okkar. Við höfum nánast verið límdar saman síðan, eins og sálusystur og getum við ekki beðið eftir að æra hvor aðra með æsingnum í okkur í Jógabílnum í maí.“

Ferðast frjálsar um Ísland

Þær gefa sér þrjár vikur til að fara fyrsta hringinn í kringum landið en vona að verkefnið haldi áfram í sumar.

„Fyrsti jógatíminn verður í Mosfellsbæ á föstudaginn 8. maí næstkomandi klukkan 17:00 og svo ætlum við að loka hringnum með pompi og prakt í Hljómskálagarðinum föstudaginn 29. maí.“

Áhugasamir geta fylgst með á Facebook og Instagram síðum verkefnisins til þess að sjá staðsetningu jógabílsins.

„Markmiðið er að deila jógaboðskapnum, skoða landið okkar fagra, borða góðan mat, hlæja af góðum bröndurum, baða okkur í köldum sjónum og dreifa ást, hlátri, gleði og glimmeri sem víðast.“

Það kostar ekkert að taka þátt en þær taka við frjálsum framlögum. „Happy Campers er aðal styrktaraðili verkefnisins og komum við til með að keyra Jógabílinn um landið á Happy Campers húsbíl í sumar. Við erum enn að leita af „olíufursta“ til að aðstoða okkur með þann part ferðalagsins og erum að vinna að samstarfi við fleiri fyrirtæki sem hafa áhuga á að taka þátt. Við viljum taka fram að við erum að leggja í þetta ferðalag út frá góðvild og ánægju okkar á að fá að ferðast frjálsar um og leiða jóga og tökum þess vegna öllum þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu með okkur á einn eða annan hátt fagnandi.“

Íris og Andrea kynntust á Instagram og hafa verið óaðskiljanlegar síðan.Mynd úr einkasafni

Fjallageitur sem elska náttúrulaugar

Hægt er að senda þeim skilaboð á netfangið jogabillinn@gmail.com eða í gegnum samfélagsmiðla Jógabílsins. Planið þeirra er að skoða fjöll og firnindi, fossa og fjörur næstu vikurnar.

„Okkur langar rosa mikið að komast í sauðburð og kynnast heimafólk alls staðar um landið, kynnast ömmum og bæjarstjórum og drekka með þeim kaffi.. Dansa, syngja, anda, leika og hafa gaman fyrst og fremst. Við ætlum að vera duglegar að nýta tímann og þetta tækifæri sem við höfum fengið í að skoða okkur vel um. Við höfum hvorugar komið á Austfirðina í langan tíma svo við erum rosalega spenntar fyrir því svæði. Við erum búnar að manifesta það að Prins Póló heyri bænir okkar og bjóði okkur í kaffi og Bulsur. Við erum líka rosalega spenntar að skoða Stokksnes og Vestrahorn. Við erum dálitlar fjallageitur svo við hlökkum mikið til að ganga fjöll og firnindi og leyfa okkur að týnast dálítið í tíma og rúmi. Við hlökkum líka til að komast í kaffi og ömmuknús á Ísafirði og Súðavík og að baða okkur í öllum þeim heitu laugum sem á vegi okkar verða. Við vonum að Snæfellsnesið bjóði okkur velkomnar með öllum sínum töfrum. Annars hlökkum við mikið til að fá að skoða landið og leyfa Íslandi að koma okkur á óvart.“

Sjá einnig:

Vont veður aðeins hugarástand

Íris segir að hún hafi alltaf verið mjög dugleg við að ferðast um landið.

„Ég er í raun alin upp við að fara í allskonar ferðalög um landið með ömmu og afa og í styttri ferðir í tjaldi með mömmu þegar ég var yngri. Á eldri árum hef ég reynt eins og ég get að ferðast innanlands en á seinni tíð hafa ferðir til útlanda kallað meira á mig. Núna er ég spennt fyrir því að skoða „túristalaust“ Ísland og ferðast um landið mitt eins og ég hafi aldrei komið hingað áður.“

Þær stefna að því að kenna jóga utandyra en munu færa sig inn ef veðrið er þeim ekki hagstætt.

„Þá treystum við á góðvild bæjarbúa að leyfa okkur að nota sólskála eða íþróttahús fyrir viðburðinn okkar. Í versta falli seinkum við dagskránni örlítið. Annars er vont veður bara hugarástand.“

Fyrsti hringurinn er nú þegar skipulagður og leggja þær af stað á föstudaginn.

„Við lítum á fyrsta hringinn sem eins konar generalprufu en eftir það sjáum við fyrir okkur styttri ferðir á ákveðna landshluta eða jafnvel annan hring. Við erum mjög opnar fyrir hverju sem gæti komið í kjölfar Jógabílsins og hvetjum alla sem hafa áhuga á að fá okkur í heimsókn að hafa samband. Við vonumst til þess að sjá sem flesta í tímunum okkar um landið, krafturinn leynist í fjöldanum og við munum að sjálfsögðu virða tveggja metra regluna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×