Elvar Már komst á lista yfir þá bestu í sinni deild Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. janúar 2017 11:30
Íslenski leikstjórnandinn Elvar Már Friðriksson hefur átt flott tímabil með Barry-háskólanum á Flórída og kemur nú til greina sem einn af bestu leikmönnunum á hans stigi í bandaríska háskólakörfuboltanum. Barry spilar í 2. deild bandaríska háskólakörfuboltans og datt heldur betur í lukkupottinn þegar Elvar hætti hjá LIU Brooklyn og kom suður til Flórída. Elvar Már og liðsfélagi hans komust báðir á lista vegna Bevo Francis verðlaunanna en hundrað leikmenn voru tilnefndir. Listinn sem þeir eru á heitir „Bevo Francis Award Watch List“ en sagt er frá þessu á heimasíðu Barry-skólans. Á síðasta tímabili komst leikmaður Barry, Yunio Barrueta, alla leið í úrslitin en listinn er smá saman skorinn niður. 50 manna listi verður þannig gefinn út 15. febrúar næstkomandi. Elvar Már er á sínu öðru ári hjá Barry-skólanum en hann er með 14,6 stig og 8,1 stoðsendingu að meðaltali á þessu tímabili. Elvar er í fimmta sæti í allri deildinni yfir flestar stoðsendingar að meðaltali í leik. Liðsfélagi Elvars sem er einnig tilnefndur er Adrian Gonzalez sem er á síðasta ári í skólanum og hefur skorað 22,1 stig að meðaltali í leik í vetur. Hann er með frábæra skotnýtingu, 65 prósent, og þar hjálpa örugglega frábærar stoðsendingar frá Elvari. Elvar Már Friðriksson er 22 ára gamall Njarðvíkingur en hann lék með íslenska landsliðinu síðasta sumar.
Körfubolti Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Óttast að Isak hafi fótbrotnað Enski boltinn Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Fótbolti Hjalti Þór ráðinn aðalþjálfari Álftaness Körfubolti Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport HM í pílu: Littler flaug áfram og kvöldinu lauk með spennutrylli Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Fótbolti Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Fleiri fréttir Hjalti Þór ráðinn aðalþjálfari Álftaness Kolbrún María kom við sögu í endurkomu Hannover Næstframlagshæstur í grátlegu tapi Fékk næstum 4,5 milljóna króna sekt fyrir að sýna dómara fingurinn „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum Jokic tók NBA-met af Abdul-Jabbar í nótt KR á frábærum stað en getur ekki unnið titilinn Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 93-83 | Enn taplausir í Sláturhúsinu „Ánægður að spila ekki betur en þetta en vinna samt“ „Svo lengi sem það er ekki jákvæð og góð umfjöllun um okkur erum við sáttir“ „Hefðum þurft að hafa heppnina með okkur í liði“ ÍR - Valur 82-85 | Baráttusigur í Breiðholti „Sáttur að geta farið heim, borðað vel og fengið mér nokkra kalda“ Tindastóll - KR 130-117 | Kláruðu gestina í seinni hálfleik Þór Þ. - Grindavík 94-106 | Baráttusigur gegn löskuðu liði Þórs Liðsfélagar Guðbjargar ekki fæddir þegar hún spilaði fyrsta leikinn Þola þeir ekki gott umtal? „Helmingur minna leikmanna skilur ekki íslensku“ „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Sjá meira
Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum