Segjast hafa lagaheimild til að birta úrskurði Stefán Árni Pálsson skrifar 31. mars 2014 13:55 Yfirlýsing frá Innanríkisráðuneytinu. visir/kristján
Innanríkisráðuneytið hefur sent frá sér yfirlýsingu varðandi frétt Fréttablaðsins um að ráðuneytið hafi birt úrskurði í útlendingamálum í heild sinni á vefnum úrskurðir.is án þess að hafa lagaheimild til þess. Í yfirlýsingunni kemur fram að stjórnvöld hafi á grundvelli upplýsingalaga fulla heimild til þess, að eigin frumkvæði, að birta upplýsingar sem þau hafi undir höndum. Fram kemur í tilkynningunni að sérstaklega séu nefndir til sögunnar úrskurðir sem upp hafi verið kveðnir, svo lengi sem þar sé ekki að finna upplýsingar um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt sé og eðlilegt að leynt fari og að öðru leyti gætt að lagaákvæðum er varði persónuvernd. „Innanríkisráðuneytið hóf í síðasta mánuði birtingu úrskurða í útlendingamálum og tilkynnti um þá ákvörðun á vef ráðuneytisins 20. febrúar síðastliðinn. Með hliðsjón af framkvæmd í nágrannalöndum og að höfðu samráði við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna var ákveðið að birta úrskurðina á vefnum www.urskurdir.is. Þar er einnig að finna úrskurði annarra ráðuneyta og kærunefnda svo og dóma Félagsdóms,“ segir í fréttatilkynningunni. Innanríkisráðuneytið telur að við birtingu úrskurða ráðuneytisins sé að fullu tekið tillit til persónuverndar einstaklinga. „Í úrskurðum innanríkisráðuneytisins sem birtir hafa verið eru tekin út nöfn einstaklinga, ríkisborgararéttur þeirra eða þjóðerni, landaheiti, viðkvæmar upplýsingar, svo sem heilsufars- og fjárhagsupplýsingar sem og aðrar upplýsingar sem á einhvern hátt geta tengt einstaklinga við úrskurðinn.“ Í tilkynningunni segir einnig að úrskurðir sem hafa verið birtir varða dvalarleyfi og vegabréfsáritanir. „Úrskurðir í hælismálum hafa ekki verið birtir. Þar er oft um mjög viðkvæmar upplýsingar að ræða og eru þeir því ólíkir úrskurðum er varða dvalarleyfi og vegabréfsáritanir. Hvernig staðið verður að birtingu úrskurða í hælismálum er til skoðunar hjá Persónuvernd,“ segir í tilkynningunni en ráðuneytið vill einnig ítreka að með birtingu úrskurða er leitast við að styrkja réttaröryggi og fyrirsjáanleika í beitingu regluverksins og stuðla að bættri málsmeðferð í málefnum útlendinga hér á landi.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira