Kennarar vilja raunhæf svör frá ríkisstjórn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. mars 2014 11:23 Frá fundinum í dag. visir/gva
Félag framhaldsskólakennara og Félag stjórnenda í framhaldsskólum krefst þess að laun félagsmanna verði samanburðarhæf við laun viðmiðunarstétta. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á baráttufundi framhaldsskólakennara sem haldinn var í Framheimilinu í dag. Áætlað er að um fimm hundruð kennarar og stjórnendur í framhaldsskólum hafi setið á fundinn. Fundurinn var sendur út beint og frá honum sýnt hér á Vísi. Útsendingin gaf kennurum um allt land kost á að fylgjast með því sem framundan fór. Þá krafðist fundurinn að ríkisstjórn Íslands gerði raunhæfar ráðstafanir til að leysa kjaradeilu framhaldsskólakennara og ríkisins. Þriðja vika verkfalls hófst í dag. Hér að neðan má sjá ályktun fundarins í heild sinni.Ályktun samþykkt á baráttufundi Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum 31. mars 2014Baráttufundur Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum, haldinn í Framheimilinu 31. mars 2014. kl. 13.00, krefst þess að ríkisstjórn Íslands geri raunhæfar ráðstafanir til að leysa kjaradeilu framhaldsskólakennara og ríkisins.Fundurinn krefst þess að laun félagsmanna verði samanburðarhæf við laun viðmiðunarstétta. Tryggt verði að launaþróun verði sú hina sama og hjá viðmiðunarhópum og að ríkið skuldbindi sig til að tryggja nægilegt fé til reksturs framhaldsskólanna svo sómi sé að.Fundurinn skorar á ráðherra mennta- og fjármála að styðja við menntun og skólastarf í landinu með því að beita sér fyrir því, að samninganefnd ríkisins fái nú þegar auknar heimildir til að semja við samninganefndir Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum.Baráttufundur Félags framhaldsskólakennara og félags stjórnenda í framhaldskólum lýsir fullum stuðningi við samninganefndir félaganna í yfirstandandi kjaraviðræðum við ríkið. Mikilvægt er að nú náist fram eðlilegar og réttlátar leiðréttingar á kjörum framhaldsskólakennara. Ennfremur kallar fundurinn eftir því að stjórnvöld sýni vilja í verki til að leysa kjaradeiluna strax svo skólastarf skaðist ekki frekar en orðið er.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira