Frestur til umsagna við ESB tillögu rennur út eftir viku Heimir Már Pétursson skrifar 31. mars 2014 11:56 Þrjátíu umsagnir hafa borist við tillögu utanríkisráðherra um viðræðuslit. Tíu umsagnir við tillögur VG og Pírata. vísir/valli
Frestur til að skila inn umsögnum vegna þingsályktana um framtíð viðræðna við Evrópusambandið til utanríkismálanefndar, rennur út eftir viku. Fjörtíu umsagnir hafa borist við tillögurnar flestar við tillögu utanríkisráðherra um viðræðuslit. Það kemur ekki á óvart að Samtök mjólkur- og kjötvinnslufyrirtækja hvetja til þess að tillaga utanríkisráðherra um að draga umsókn Íslands að Evrópusambandinu til verði samþykkt óbreytt og ítreka samtökin andstöðu sína við aðild Islands að ESB og telja að hætta eigi aðildarviðræðum og draga umsókn Íslands til baka. Undir þetta álit Samtaka mjólkur- og kjötvinnslufyrirtækja skrifar Guðni Ágústsson formaður samtakanna og fyrrverandi ráðherra og formaður Framsóknarflokksins. Frekari rökstuðningur fylgir ekki umsögninni. Þrjátíu umsagnir hafa borist utanríkismálanefnd vegna tillögu utanríkisráðherra, flestar frá einstaklingum. Nokkur bæjarfélög hafa sent inn umsögn og krefjast þess að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um málið, en það eru Akureyrarbær, Ísafjarðarbær, Kópavogsbær, Reykjavíkurborg og Sandgerðisbær. Landssamband íslenskra útvegsmanna ítrekar andstöðu sína við aðild að Evrópusambandinu og undirstrika mikilvægi þess að tryggja verði að Íslendingar fari sjálfír með forræði yfír fískveiðiauðlindinni, hafí samningsforræði við skiptingu veiðiréttar úr deilistofnum og tali eigin máli á vettvangi alþjóðastofnana, enda sé um að ræða einn mikilvægasta þáttinn í efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar. Frestur til að skila inn umsögnum rennur út hinn 8. apríl eða næst komandi þriðjudag. Við annan tón kveður hins vegar hjá Jóni Steindóri Valdimarssyni formanni Já-Íslands sem segir að það væri fullkomið óráð að slíta viðræðunumog fari gegn hagsmunum íslensku þjóðarinnar í fjölmörgum atriðum, ekki síst hagsmunum atvinnulífs okkar til framtíðar og ungu kynslóðarinnar.
Mest lesið Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Veður „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Innlent Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Innlent Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Sjá meira