Fjölskyldur langveikra barna fengu veglega jólagjöf frá sjúkraflutningsmönnum á Suðurlandi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 23. desember 2016 16:18 Sjúkraflutningamenn á Suðurlandi með fjölskyldunum tveimur frá Flúðum og Hveragerði sem fengu 800.000 króna styrk í dag. Vísir/Magnús Hlynur
Sjúkraflutningamenn á Suðurlandi afhentu í dag fjölskyldum tveggja langveikra barna 800.000 króna styrk, eða 400.000 krónur til hvorrar fjölskyldu. Peningarnir eru ágóði af dagatalatsölu sjúkraflutningamanna fyrir árið 2017. Þetta var í tíunda skipti sem sjúkraflutningamenn láta gott af sér leiða með þessu móti. Fjölskyldurnar sem fengu styrkina í ár búa á Flúðum og Hveragerði. Á Flúðum voru það Pólverjarnir Lucyana Karpa og Krzysztof Banczak sem fengu styrk vegna sonar síns, Filip Wladyslaw Banczak. Fékk heilablæðingu tveggja daga gamallFilip fæddist 29. janúar 2011 á sjúkrahúsinu á Selfossi. Þegar hann var tveggja sólarhringa gamall fékk hann heilablæðingu og var fluttur með hraði í aðgerð til Reykjavíkur. Aðgerðin gekk vel en læknarnir voru ekki allt of vongóðir með framhaldið og voru fyrstu dagar eftir aðgerðina mjög erfiðir þar sem beðið var milli vonar og ótta um hvort Filip mundi lifa af. En kraftaverkið gerðist og Filip vaknaði og er í dag öflugur og duglegur 5 ára strákur. Heilablæðingin olli því að Filip hefur greinst með CP tvenndarlömun og væga þroskahömlun. Filip notar göngugrind til að komast um gangandi og er mjög öflugur að nota hana. Foreldrar Filips eru pólsk og hafa búið á Íslandi frá árinu 2008.Með mjög sjaldgæft heilkenniÍ Hveragerði voru það þau Adda María Óttarsdóttir og Liam Killa sem fengu styrk vegna Óskars Louis Killa sem fæddist 21. maí 2015. Vikugamall fékk hann greiningu en hann er með Möbius Syndrome. Möbius syndrome er mjög sjaldgæft heilkenni. Talið er að 1-10 af hverri milljón manns fæðist með Moebius syndrome, en ekki er vitað upp á hár hvað veldur , þó ýmsar ráðgátur séu til um það. Þó er vitað að þessi truflun í þroskaferlinu eigi sér stað í kringum 7-12 viku meðgöngu. Það sem er einkennandi fyrir Möbius er skemmd á heilataugum, sérstaklega þeirri 6. og 7. Þannig að vöðvaspenna er mjög lítil í andlits og augnvöðvum. Óskar getur ekki lyft augabrúnum, getur ekki hreyft augun til hliðar, hann getur ekki blikkað augunum og grætur ekki tárum. Því þarf alltaf að setja augndropa í augu hans til að viðhalda raka á þeim. Hann fæddist með litla tungu, og á erfitt með að borða og kyngja, og einnig hefur það mikil áhrif á tal hans. Fingur hans er mjög óvenjulegar, það vantar fingur, sumir fingurnir eru samvaxnir og hendurnar eru mjög nettar. En hann mun geta bjargað sér með flest, því hann nær gripi.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira