Samhugur sem á vart sinn líka 16. janúar 2005 00:01
Landssöfnunin vegna hamfaranna í Asíu, Neyðarhjálp úr norðri, sem náði hápunkti á laugardagskvöldið, gekk vonum framar. 110 milljónir króna söfnuðust í átakinu. Aldrei hefur svo miklum fjármunum verið safnað hérlendis handa þeim sem eiga um sárt að binda erlendis. Alls létu Íslendingar því 225 milljónir króna af hendi rakna til viðbótar við milljónirnar 150 sem ríkisstjórnin leggur fram. "Þetta kom öllum þeim sem að þessu stóðu algerlega í opna skjöldu, þetta fór fram úr björtustu vonum," segir Elín Þ. Þorsteinsdóttir verkefnisstjóri um þessi sterku viðbrögð. "Það sem er efst í huga er mikið þakklæti til allra sem lögðu sitt af mörkum, fyrir örlæti og hlýhug. Við vitum að þúsundir manna eiga um sárt að binda og við lögðum okkar af mörkum til að bæta líðan þessa fólks." 22.500 manns hringdu í söfnunarnúmerin þrjú og gáfu 49 milljónir. Fyrirtæki, félagasamtök og sveitarfélög gáfu sömuleiðis af miklum myndarskap, auk einstaklinga sem hringdu í 755-5000 og reiddu fram stærri framlög. Segir Elín dæmi um fjölskyldur sem gáfu allt að 100.000 krónur. Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, segir að aldrei hafi jafn mikið fé safnast hér á landi handa bágstöddum erlendis, einna helst sé hægt að bera þessa söfnun saman við Samhug í verki, landssöfnun sem efnt var til vegna snjóflóðanna á Súðavík og Flateyri árið 1995. Þá safnaðist tæpur hálfur milljarður króna í tveimur söfnunarlotum. "Samhugurinn nú er svipaður og náðist í þessum söfnunum þegar þjóðin sjálf varð fyrir hörmungum. Mér finnst afskaplega ánægjulegt að upplifa að við getum líka sýnt þennan samhug þegar fólk í fjarlægum löndum lendir í slíkum hamförum," segir Jónas en hann var einn forsvarsmanna Samhugar í verki á sínum tíma. Búist er við að ráðstöfun fjárins hefjist strax í þessari viku, fyrst til neyðaraðstoðar en síðan til uppbyggingarstarfs á hamfarasvæðunum.
Asía - hamfarir Fréttir Innlent Mest lesið „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Innlent Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð Innlent „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Innlent Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Innlent „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Bjartsýni um að ljúka þingstörfum á morgun Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Landsréttur sýknar Sindra og Ísidór af hryðjuverkaákæru „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Þingmenn beðnir um að vera á tánum og tímamót í golfsögu Íslendinga nálgast Mótmælendur ekki kærðir eftir truflun á þingfundi Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Bein útsending: Samtal um þjóðaröryggi – Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu Myndaveisla: Norðlendingar fögnuðu á 17. júní Sjá meira