Halldóra verulega ósátt með fyrstu viðbrögð MS vegna aðskotahlutar í Hleðsludrykk Birgir Olgeirsson skrifar 9. júní 2016 15:04 Halldóra H. Halldórsdóttir með stykkið sem hún fann í Hleðsludrykknum frá MS. Vísir/Facebook „
Ég hef aldrei kvartað yfir neinu svona áður en ég gat ekki setið á mér við þetta,“ segir Halldóra H. Halldórsdóttir sem fann aðskotahlut í Hleðsludrykk frá Mjólkursamsölunni. Halldóra keypti drykkinn á sunnudag og setti fernuna í ísskápinn á heimili sínu. Á fernunni stóð að best væri að neyta vörunnar fyrir 8. júní. Þegar hún ætlaði síðan að drekka Hleðsluna fann hún myglubragð en við nánari skoðun kom innihaldið í ljós. Einhver aðskotahlutur sem átti ekki heima í fernunni. „Ég fylltist viðbjóði. Þetta var ógeðslegt á bragðið. Verra en myglubragð.“Líklegast hráefni sem blandaðist ekkiMS sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins á áðan en í henni segir að aðskotahluturinn hafi verið tekinn til skoðunar innan MS og sýni sent Matís til skoðunar. Að sögn MS staðfestu fyrstu niðurstöður að ekki var um kjöt- eða fiskafurð að ræða. Líklegasta skýringin á þessum tímapunkti að sögn MS er sú að ákveðin hráefni í framleiðslunni hafi ekki leyst nægilega vel upp og orðið að 4-5 cm hlaupkenndu stykki sem mygla myndaðist í.Sjá einnig: Aðskotahlutur fannst í Hleðslu frá MS: Segja þetta ekki vera kjöt- eða fiskafurðTalið er að stykkið sé hráefni sem notað er í Hleðslu sem blandaðist ekki nægjanlega vel.Halldóra er hins vegar ekki sátt við viðbrögð MS. „Þeir eru að segja núna að það séu fyrstu niðurstöðukomnar í hús en sögðu við mig þegar ég mætti að það tæki langan tíma að fá út úr þessu,“ segir Halldóra.Óblíðar móttökur í MS Hún sagði á Facebook að hún hefði hlotið óblíðar móttökur þegar hún fór með stykkið í MS. Starfsmaður á gæðasviði MS hafi tekið á móti henni með miklum hroka. „Það var eins og hann væri fyrir fram búinn að ákveða hvað hann ætlaði að segja,“ segir Halldóra en í yfirlýsingunni sem MS sendi frá sér kom fram að móttökurnar sem Halldóra fékk væru ekki í samræmi við verklag Mjólkursamsölunnar. Baðst MS velvirðingar á því og harmaði málið. Halldóra segir starfsmann gæðasviðsins hafa sagt stykkið líkjast kjötvöru en það gæti ekki hafa komið frá MS því þeir framleiða hvorki kjöt né fisk. „Hann skar stykkið fyrir framan mig og sagði sjálfur að þetta liti út eins og kjöt og því gæti þetta ekki komið frá þeim og fór að reyna snúa þessu yfir á mig, að þetta hafi átt að koma frá mér eða fjölskyldu minni.“Fékk símtal frá forstjóranum sem vill bæta henni þetta upp Hún segir forstjóra MS, Ara Edwald, hafa sett sig í samband við hana í dag og og hann hafi verið mjög almennilegur. Tjáði Ari Halldóru að fyrstu niðurstöður bentu til þess að aðskotahluturinn væri úr Hleðsludrykknum og að hann ætlaði að hringja aftur í Halldóru eftir viku og vill bæta henni þetta betur upp.
Tengdar fréttir Aðskotahlutur fannst í Hleðslu frá MS: Segja þetta ekki vera kjöt- eða fiskafurð Telja líklegast að hráefni hafi ekki leyst nægjanlega vel upp. 9. júní 2016 13:34 Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Fleiri fréttir Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Sjá meira
Aðskotahlutur fannst í Hleðslu frá MS: Segja þetta ekki vera kjöt- eða fiskafurð Telja líklegast að hráefni hafi ekki leyst nægjanlega vel upp. 9. júní 2016 13:34