Yfirlýsing frá Bjarna Guðjóns: Það er komið að tímamótum á mínum ferli Stefán Árni Pálsson skrifar 9. október 2013 14:13 Bjarni Guðjónsson mun snúa sér alfarið að þjálfun. mynd / daníel
Bjarni Guðjónsson hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann kveður KR með söknuði en hann mun taka við Fram á næsta tímabili. Fram kemur í yfirlýsingunni að Bjarni muni einbeita sér að þjálfun og leggja skóna á hilluna. Hér að neðan má lesa yfirlýsingu Bjarna í heild sinni.Það var mér sannur heiður að fá að lyfta Íslandsmeistaratitli í annað sinn sem fyrirliði KR í Frostaskjólinu þann 28. september síðastliðinn. Þeirri stund mun ég aldrei gleyma, því þann 28. september lék ég minn síðasta leik fyrir KR.Undanfarin fimm ár hafa verið frábær og ég er stoltur af öllu sem við KR-ingar afrekuðum á þeim tíma. Við unnum þrjá bikarmeistaratitla og náðum glæsilegum árangri í Evrópukeppninni. En það mikilvægasta af öllu var að skila Íslandsmeistaratitlinum aftur í Vesturbæinn.Það er komið að tímamótum á mínum ferli. Ég hef ákveðið að gefa meiðslahrjáðum líkama mínum langþráða hvíld frá knattspyrnuiðkun og snúa mér að þjálfun. Þetta var erfið ákvörðun. Ég hef keppt í knattspyrnu allt mitt líf og ég mun sakna þess að ganga út á völlinn með númer á bakinu. En ég skil við KR í góðum höndum Rúnars, Péturs, Kristins, Baldurs, Jónasar og allra þeirra samherja sem ég spilaði við hlið undanfarin ár. Þeir eru sannir meistarar.Ég vil þakka stuðningsmönnum KR fyrir frábæran stuðning síðustu fimm árin. Þeir tóku mér opnum örmum þegar ég gekk í raðir félagsins frá Akranesi. Fyrir það verð ég ævinlega þakklátur.Það voru forréttindi að fá að spila í svörtu og hvítu.Bjarni Guðjónsson #4
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn Handbolti „Þurfum við ekki að fá fleiri varða bolta?“ Handbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Fleiri fréttir Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Sjá meira