Fyrsta sprenging í Ilulissat að nýjum alþjóðaflugvelli Kristján Már Unnarsson skrifar 1. febrúar 2020 08:15 Teikning af nýja flugvellinum í Ilulissat. Grafík/Kalallit Airports.
Grænlendingar eru byrjaðir á gerð 2.200 metra langrar flugbrautar við bæinn Ilulissat, sem verður alþjóðaflugvöllur númer tvö á eftir Nuuk í uppbyggingunni. Kim Kielsen forsætisráðherra hóf verkið með táknrænni fyrstu sprengingu á miðvikudag við mikinn fögnuð viðstaddra.Sjá fyrstu sprengingu í fréttum Stöðvar 2. Frá fyrstu sprengingu. Núverandi flugstöð í Ilulissat sést fjær til hægri.Anguteeraq Therkelsen/Inuplan, Ilulissat. Þetta var þó aðeins viðhafnarsprenging. Eiginlegar framkvæmdir fara ekki á fullt fyrr en í apríl í vor á vegum danska verktakans Munck Gruppen. Flugvöllurinn á að vera tilbúinn til notkunar haustið 2023 en hann leysir af hólmi núverandi flugbraut, sem er aðeins 850 metra löng og skammt frá. Ilulissat er einn af áfangastöðum Air Iceland Connect á Grænlandi. Myndband frá flugvallafyrirtæki Grænlendinga sýnir hvernig nýi flugvöllurinn mun líta út. Grafísk mynd af flugvellinum í Ilulissat eftir stækkun. Ef grannt er skoðað sést að Grænlendingar gera ráð fyrir flugvélum frá Icelandair og Air Iceland Connect.Grafík/Kalallit Airports. Ilulissat, sem áður hét Jakobshavn, er við Diskó-flóa og þriðji stærsti bær Grænlands, með um 4.500 íbúa. Hann er vinsælasti ferðamannastaður landsins og stendur við Ísfjörðinn, sem er á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Fjörðurinn er frægur fyrir skriðjökul í botni hans, en frá honum berst óvenju mikill fjöldi ísjaka til sjávar. Fyrir áratug byggðu íslenskir verktakar undir forystu Ístaks 23 megavatta vatnsaflsvirkjun utan við Ilulissat, sem sér bænum fyrir raforku. Virkjunin var í alútboði og hönnuð af íslenskum verkfræðistofum.Sjá hér: Íslendingar í klakahöll undir Grænlandsjökli Flugvellirnir í Nuuk og Ilulissat fá báðir 2.200 metra flugbraut en auk þess verður nýr flugvöllur með 1.500 metra braut lagður í Qaqortoq.Grafík/Hafsteinn Þórðarson. Flugvallagerðin er mesta innviðauppbygging í sögu þessa næsta nágrannalands Íslands. Kim Kielsen hóf verkið í höfðustaðnum Nuuk í október í haust með fyrstu sprengingu að nýrri flugbraut þar, sem einnig verður 2.200 metra löng og leysir af 950 metra langa braut. Þriðji flugvöllurinn, sem áformað er að klára árið 2023, er ný 1.500 löng flugbraut við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Búist er við að sá flugvöllur taki við hlutverki Narsarsuaq sem aðalflugvöllurinn á því svæði. Jafnframt áforma grænlensk stjórnvöld gerð átta annarra smærri innanlandsflugvalla. Hér í myndbandinu fyrir neðan má sjá lendingu á stuttu brautinni í Ilulissat úr flugstjórnarklefa vélar Flugfélags Íslands í þætti Stöðvar 2 frá árinu 2012 um framkvæmdir Íslendinga í Ilulissat:
Fréttir af flugi Grænland Icelandair Norðurslóðir Tengdar fréttir Áforma gerð ellefu flugvalla til að treysta framtíð Grænlands Mesta innviðauppbygging í sögu Grænlands er nú að hefjast með uppbyggingu þriggja flugvalla. Kim Kielsen forsætisráðherra segir framtíð landsins bjarta, 29. ágúst 2019 20:24 Íslenskur verkfræðingur stýrir gerð flugvallanna á Grænlandi Íslenskur verkfræðingur er orðinn verkefnastjóri grænlenskra stjórnvalda yfir mestu innviðauppbyggingu í sögu þessarar næstu nágannaþjóðar Íslendinga. 11. september 2019 20:52 Mikil tækifæri framundan á Grænlandi fyrir verktaka Spennandi tímar fara í hönd á Grænlandi með mikilli uppbyggingu. Framkvæmdastjóri Ístaks segir að þar séu framundan stór verkefni, sem fyrirtækið vilji taka þátt í. 26. desember 2019 21:38 Verkþekking Íslendinga byggir upp innviði Grænlands Virkjunarframkvæmdir Ístaks, sem nú standa yfir við Diskóflóa á Grænlandi, skila 6-8 milljarða króna tekjum til íslenskra fyrirtækja. Íslensk verkþekking byggir um leið upp innviði Grænlands og segir orkumálastjóri landsins smíði vatnsaflsstöðva hafa gríðarlega þýðingu. Þetta kom fram í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld, þeim síðari um störf Íslendinga á Grænlandi, en sá fyrri var í gærkvöldi. Virkjunin við Ilulissat telst kannski ekki stór á íslenskan mælikvarða, hún verður 22,5 megavött eða um fjórðungur af stærð Búðarhálsvirkjunar, sem nú er í smíðum. 11. september 2012 23:00 Íslendingar í klakahöll undir Grænlandsjökli Virkjun sem Ístak er að smíða á Grænlandi við Diskóflóa lengst norðan heimskautsbaugs er stærsta verkefni í fjörutíu ára sögu fyrirtækisins. Þar er sennilega sú Íslendinganýlenda sem fjærst er öðrum byggðum bólum í sannkallaðri klakahöll við bæinn Ilulissat. Fyrri reynsla Ístaksmanna af smíði virkjana á Grænlandi réð miklu þegar Orkustofnun Grænlands fól þeim einnig þetta tólf milljarða króna verk, þótt þeir ættu ekki lægsta boð. 10. september 2012 20:15 Fyrsta virkjun heims í sífrera neðanjarðar Ístak afhenti grænlenskum stjórnvöldum nýja virkjun til notkunar um helgina. 10. september 2013 19:14 Virkjunin gæti breyst í ísklump Virkjanagöng, sem Ístaksmenn bora á Grænlandi langt norðan heimskautsbaugs, liggja í svo köldu bergi að það virkar eins og frystikista. Það er því raunveruleg hætta á því að virkjunin geti frosið og orðið að ísklumpi. Þetta kemur fram í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 laust fyrir klukkan sjö í kvöld en þar verður fjallað um þær miklu áskoranir sem mæta íslenskum verktökum og verkfræðistofum við hönnun og smíði virkjunar skammt frá bænum Ilulissat við Diskóflóa. 11. september 2012 17:45 Kim fékk átta ára dreng til að hefja flugvallagerðina Flugvallagerðin er hafin á Grænlandi, mesta innviðauppbygging í sögu þessa næsta nágrannalands Íslands. Kim Kielsen forsætisráðherra sagði hana lykil að framtíð Grænlendinga. 17. október 2019 20:40 Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira
Áforma gerð ellefu flugvalla til að treysta framtíð Grænlands Mesta innviðauppbygging í sögu Grænlands er nú að hefjast með uppbyggingu þriggja flugvalla. Kim Kielsen forsætisráðherra segir framtíð landsins bjarta, 29. ágúst 2019 20:24
Íslenskur verkfræðingur stýrir gerð flugvallanna á Grænlandi Íslenskur verkfræðingur er orðinn verkefnastjóri grænlenskra stjórnvalda yfir mestu innviðauppbyggingu í sögu þessarar næstu nágannaþjóðar Íslendinga. 11. september 2019 20:52
Mikil tækifæri framundan á Grænlandi fyrir verktaka Spennandi tímar fara í hönd á Grænlandi með mikilli uppbyggingu. Framkvæmdastjóri Ístaks segir að þar séu framundan stór verkefni, sem fyrirtækið vilji taka þátt í. 26. desember 2019 21:38
Verkþekking Íslendinga byggir upp innviði Grænlands Virkjunarframkvæmdir Ístaks, sem nú standa yfir við Diskóflóa á Grænlandi, skila 6-8 milljarða króna tekjum til íslenskra fyrirtækja. Íslensk verkþekking byggir um leið upp innviði Grænlands og segir orkumálastjóri landsins smíði vatnsaflsstöðva hafa gríðarlega þýðingu. Þetta kom fram í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld, þeim síðari um störf Íslendinga á Grænlandi, en sá fyrri var í gærkvöldi. Virkjunin við Ilulissat telst kannski ekki stór á íslenskan mælikvarða, hún verður 22,5 megavött eða um fjórðungur af stærð Búðarhálsvirkjunar, sem nú er í smíðum. 11. september 2012 23:00
Íslendingar í klakahöll undir Grænlandsjökli Virkjun sem Ístak er að smíða á Grænlandi við Diskóflóa lengst norðan heimskautsbaugs er stærsta verkefni í fjörutíu ára sögu fyrirtækisins. Þar er sennilega sú Íslendinganýlenda sem fjærst er öðrum byggðum bólum í sannkallaðri klakahöll við bæinn Ilulissat. Fyrri reynsla Ístaksmanna af smíði virkjana á Grænlandi réð miklu þegar Orkustofnun Grænlands fól þeim einnig þetta tólf milljarða króna verk, þótt þeir ættu ekki lægsta boð. 10. september 2012 20:15
Fyrsta virkjun heims í sífrera neðanjarðar Ístak afhenti grænlenskum stjórnvöldum nýja virkjun til notkunar um helgina. 10. september 2013 19:14
Virkjunin gæti breyst í ísklump Virkjanagöng, sem Ístaksmenn bora á Grænlandi langt norðan heimskautsbaugs, liggja í svo köldu bergi að það virkar eins og frystikista. Það er því raunveruleg hætta á því að virkjunin geti frosið og orðið að ísklumpi. Þetta kemur fram í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 laust fyrir klukkan sjö í kvöld en þar verður fjallað um þær miklu áskoranir sem mæta íslenskum verktökum og verkfræðistofum við hönnun og smíði virkjunar skammt frá bænum Ilulissat við Diskóflóa. 11. september 2012 17:45
Kim fékk átta ára dreng til að hefja flugvallagerðina Flugvallagerðin er hafin á Grænlandi, mesta innviðauppbygging í sögu þessa næsta nágrannalands Íslands. Kim Kielsen forsætisráðherra sagði hana lykil að framtíð Grænlendinga. 17. október 2019 20:40