Innlent

Áfram verulegur samdráttur í umferð en merki um að hún sé að aukast aftur

Kjartan Kjartansson skrifar
Umferð á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2020 (til 27. apríl) borið saman við sama tímabil í fyrra. Samkomubann var fyrst sett á í viku 11 og byrjaði umferð þá að dragast verulega saman. Tímasetning páska bjagar samanburð á milli ára á hluta tímabilsins.
Umferð á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2020 (til 27. apríl) borið saman við sama tímabil í fyrra. Samkomubann var fyrst sett á í viku 11 og byrjaði umferð þá að dragast verulega saman. Tímasetning páska bjagar samanburð á milli ára á hluta tímabilsins. Vegagerðin

Um fimmtungssamdráttur var áfram á umferð á höfuðborgarsvæðinu undanfarnar tvær vikur. Betri mynd er sögð fást af áhrifum kórónuveirufaraldursins á umferð á milli ára eftir þessa viku þegar páskar trufla ekki samanburðinn. Vegagerðin telur sig sjá merki um að umferðin sé tekin að þyngjast aftur.

Verulega hefur dregið úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í faraldrinum. Samkomubann er í gildi og fjöldi fyrirtækja er lokaður eða með takmarkaða starfsemi og fjölmargir vinna heima hjá sér um þessar mundir.

Svipuð umferð var á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku og vikunni þar á undan, um 20% samdráttur frá árinu áður að meðaltali. Í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar er sá varnagli þó sleginn að tímasetning páska geri samanburð á milli ára erfiðan. Tölur fyrir þessa viku og þá næstu gefi raunsannari mynd af þróun umferðarinnar.

Sem fyrr var samdrátturinn í umferð mestur á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogslæk þar sem hann nam 24,5%. Bílum sem fóru um Vesturlandsveg ofan Ártúnsbrekku fækkaði um 17,7%. Langminnst fækkun var á Reykjanesbraut við Dalveg í Kópavogi, aðeins 8,6%.

Vegagerðin telur sig engu að síður sjá merki um að umferð hafi verið að aukast síðustu tvær vikurnar.

Styttri umferðartími

Tölfræði sem tæknifyrirtækið TomTom tekur saman úr leiðsögubúnaði bifreiða bendir til þess að ferðatími í Reykjavík hafi styst verulega eftir að faraldurinn hóf innreið sín og samkomubann var sett á í mars.

Vísitala fyrirtækisins um ferðatíma mælir hversu lengri tíma bílferðir taka en ef ekið væri um auða vegi. Í Reykjavík tók meðalbílferðin þannig 40-50% lengri tíma en á auðum vegum í mars og apríl í fyrra. Eftir að samkomubann tók gildi um miðjan mars var vísitalan á bilinu 20-30%.

Tölurnar fyrir Reykjavík benda til þess að umferðarþungi í Reykjavík hafi verið tæplega tvöfalt meiri í febrúar en í sama mánuði í fyrra.

Í Wuhan í Kína, þar sem faraldurinn blossaði fyrst upp í desember, er umferð hægt og bítandi að aukast eftir að stjórnvöld léttu á sóttvarnaaðgerðum fyrr í þessum mánuði. Í Sjanghæ, þar sem takmarkanir voru einnig í gildi, hefur umferðin þó strax náð sömu hæðum aftur samkvæmt tölum fyrirtækisins.

Í Langbarðalandi á Norður-Ítalíu, miðpunkti faraldursins í Evrópu í upphafi, er umferð enn langt undir síðasta ári. Þar er enn strangt útgöngubann í gildi til að hefta útbreiðslu veirunnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×