Kirkjan í Grafarvogi skuldar 600 milljónir 4. júní 2012 06:30 Skuldir safnaðarins nema nú tíföldum árstekjum hans og eru sextíu þúsund krónur á hvern íbúa í hverfinu sem greiðir sóknargjald.Fréttablaðið/Daníel
Við borgum bara og borgum en lánin bara hækka,? segir Bjarni Kr. Grímsson, formaður sóknarnefndar Grafarvogskirkju um ríflega 600 milljóna króna skuld safnaðarins. Bjarni segir skuldina tilkomna vegna byggingar Grafavogskirkju sem var vígð árið 2000. Um sé að ræða verðtryggð lán sem hækkað hafi um 150 milljónir króna eftir hrunið 2008. Bjarni undirstrikar að skuldir Grafarvogskirkju verði að setja í samhengi við að söfnuðurinn sé sá langfjölmennasti á landinu. Í sókninni séu yfir tuttugu þúsund manns þótt aðeins sextán ára og eldri greiði sóknargjöld. Það séu nálega ellefu þúsund einstaklingar. Að sögn Bjarna námu árstekjur Grafarvogssafnaðar í fyrra rúmum 100 milljónum króna. Þar af segir hann sóknargjöldin vera um 90 milljónir. Meira en helmingur af þessum tekjum, um 60 milljónir króna, fari til að greiða fjármagnsgjöld. Vegna þessarar erfiðu skuldastöðu fær söfnuðurinn nú 2,1 milljóna króna úthlutun frá Kirkjubyggingasjóði. ?Þetta fer að vefjast fyrir okkur þegar fjármagnsgjöldin eru rúmlega helmingur af tekjum sóknarinnar. Við höfum svo sem tjáð okkar lánardrottnum það en höfum hvorki fengið niðurfellingu skulda né annað,? segir Bjarni sem þó kveður til umræðu að breyta lánakjörum safnaðarins. Það sé þó erfitt að fá banka til viðræðna. ?Við stöndum ekki nógu illa. Við þyrftum að standa verr til að fá einhverjar afskriftir. Þetta er bara sama staða og hjá stórum hluta heimila landsins.? Bjarni segir Grafarvogssöfnuðinn engin lán hafa tekið frá því í kring um aldamót. ?Við höfum alla tíð staðið í skilum, alltaf borgað af öllum lánum en þau bara hækka og hækka. Ætli við höfum ekki fengið um 150 milljóna króna reikning í hruninu, gróflega reiknað. Við myndum alveg vilja vera laus við það,? segir Bjarni sem kveður sóknarnefndina hafa brugðist við með niðurskurði. ?Það er ekki bara það að skuldirnar hækkuðu heldur sá ríkið ástæðu til þess að krukka í sóknargjöldin. Þannig að við erum núna með sömu tekjur í krónutölu og við vorum með 2006. Það er því einfalt mál að við höfum skorið niður. Við erum bara með það sem snýst í kring um það nauðsynlegasta, eins og guðsþjónustur og annað starf sem við getum mögulega haldið úti. Það eru allar skrautfjaðrir af okkur teknar,? segir formaður sóknarnefndar Grafarvogskirkju. gar@frettabladid.is
Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Fleiri fréttir Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Sjá meira