Innlent

Vistvænar byggingar ryðja sér til rúms hér á landi

Vistvæn hugmyndafræði var í hávegum höfð við hönnun Framhaldsskólans í Mosfellsbæ. Efni eru sérvalin og sólarljós nýtt til orkusparnaðar.
Vistvæn hugmyndafræði var í hávegum höfð við hönnun Framhaldsskólans í Mosfellsbæ. Efni eru sérvalin og sólarljós nýtt til orkusparnaðar.
Vistbyggðaráð var stofnað í febrúar 2010 af 32 fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum. Tilgangur þess er að vera vettvangur á sviði sjálfbærrar þróunar við skipulag, hönnun, byggingu, rekstur og viðhald mannvirkja á Íslandi.

Meðal markmiða Vistbyggðaráðs er að skilgreina „íslensk viðmið fyrir vistvæna byggð sem auðvelda hönnuðum og hagsmunaaðilum að þróa í auknum mæli vistvænar áherslur við skipulag, hönnun, byggingu, rekstur og viðhald mannvirkja á Íslandi," eins og segir á heimasíðu ráðsins.

Með vistvænni byggð er átt við að skaðleg áhrif bygginga og mannvirkja séu lágmörkuð eins og hægt er. Alþjóðlegir staðlar gera kröfur í þessum efnum og ljóst er að þeir munu hafa áhrif á íslenskan byggingamarkað.

Sigríður Björk Jónsdóttir, framkvæmdastýra Vistbyggðaráðs, segir alþjóðlegt vottunarkerfi fyrir byggingar hafa verið að þróast undanfarin ár. Þar sé meðal annars að finna ákvæði um byggingarefni; timbur verði að vera upprunavottað, efni megi ekki innihalda eiturefni og ekki vera of rokgjörn. Þá sé æskilegt að byggingarefni eigi uppruna sinn sem næst byggingarstað, en sé ekki flutt um langan veg.

„Það er fyrirsjáanlegt að á næstu árum munum við finna fyrir auknum kröfum. Við sjáum að við þurfum að nota Evrópustaðla þar sem eru gerðar mun meiri kröfur en við þekkjum hér. Þetta sjáum við til dæmis í nýrri byggingarreglugerð um förgun og meðhöndlun efna á byggingarstað, en þar eru gerðar mun meiri kröfur en áður í þeim efnum."

Sigríður Björk Jónsdóttir.
Ráðstefna um vistvænar byggingar var haldin í gær, með aðkomu aðila á byggingarmarkaði. Sigríður segir galla að ónógt framboð sé á vistvænum byggingarefnum hér á landi og að ákveðin endurmenntun þurfi að eiga sér stað í geiranum.

„Maður getur ímyndað sér að byggingarverktakar og framkvæmdaaðilar þurfi að setja sér ákveðna umhverfisstefnu. Gerð er krafa um hlutfall endurnýtingar á byggingarefni og byggingarstaðurinn þarf að uppfylla ýmis skilyrði, svo eitthvað sé nefnt."

kolbeinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×