Innlent

Eldur í íbúðarhúsi í Þorlákshöfn í nótt

Íbúar í húsi í Þorlákshöfn hringdu á slökkviliðið upp úr klukkan þrjú í nótt og var þá orðinn töluverður reykur í húsinu.

Þegar til kom reyndist eldur hafa kraumað svo rækilega í kolagrilli, alveg upp við húsið, að rúða sprakk þar í glugga og reyk lagði inn.

Frekari skemmdir urðu ekki af eldi, en húsið var reykræst. Engan íbúa sakaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×