Innlent

Tveir krúttlegir kópar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Litli kópurinn í húsdýragarðinum er óneitanlega krúttlegur.
Litli kópurinn í húsdýragarðinum er óneitanlega krúttlegur.
Tveir landselkópar svamla nú um í selalauginni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Tvær af þremur urtum garðsins kæptu sitt hvoru megin við sjómannadaginn.

Landselskópar líkjast fullorðnum selum nema hvað þeir eru minni. Við kæpingu vega kóparnir um 15 kílógrömm en eru fljótir að þyngjast enda er urtumjólkin gífurlega fiturík, samkvæmt fróðleiksmola sem Vísir fékk sendan frá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þeir eru á spena í fjórar til sex vikur og á þeim tíma hafa þeir yfirleitt tvöfaldað þyngd sína. Kóparnir missa hvít fósturhár sín við kæpingu og eru því syndir strax og eru duglegir að fylgja mæðrum sínum eftir.

Eftir að kóparnir hafa þegið móðurmjólkina í fjórar til sex vikur bíta urturnar kópana af sér og þeir þurfa þá að bjarga sér sjálfir. Kóparnir lifa á mjólkurforðanum í fjórar vikur en þá fyrst fara þeir að  taka fisk en þá eru kóparnir orðnir ríflega tveggja mánaða gamlir.

Starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins beinir því til gesta sinna að reyna alls ekki að klappa kópunum eða fullorðnu selunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×