Fékk fyrsta sætið í afmælisgjöf 4. desember 2012 15:08 Ingibjörg Reynisdóttir. „
Það er greinilegt að Gísli hefur brennt sig inní þjóðarsálina og fólk er áhugasamt um hann," segir Ingibjörg Reynisdóttir, rithöfundur og leikkona, en bók hennar Gísli á Uppsölum, fór í fyrsta sætið á lista Félags bókaútgefanda yfir mest seldu bækurnar í síðustu viku. Þannig velti hún úr sessi gamalkunnum kóngi, honum Arnaldi Indriðasyni, sem gaf út Reykjavíkurnætur þetta árið. Spurð hvað megi skýra þessa velgengni, hvort það sé þessi saga um einfaldari tíma, svarar Ingibjörg: „Það er allavega það sem fékk mig til þess að skrifa hana. Það er gott að staldra við og virða fyrir sér einfaldleika fortíðarinnar. Enda vorum við orðin ansi geðbiluð í neyslunni." Ingibjörg bætir við að bókin sé ekki síður holl áminning fyrir yngri kynslóðina, „þessa sem á allt," bætir hún við. Ingibjörg horfir hinsvegar raunsæjum augum á velgengnina, „jólatraffíkin var bara að byrja," segir hún varfærnislega af ótta um að missa fyrsta sætið áður en yfir lýkur. „En það var gaman að prófa það," bætir hún við. Ingibjörg segir bókina annars standa fyrir sínu. Hún höfði til breiðs hóps og tekst á við þrautseigt vandamál íslenska samfélagsins með athyglisverðum hætti, það er eineltið. „Það er eins og fjórða stigs krabbamein," lýsir Ingibjörg þegar hún talar um einelti í samfélaginu. Spurð út í eineltið sem Gísli varð fyrir svarar Ingibjörg: „Það svipti hann öllu hugrekki sem ungur drengur." Eineltið mótaði semsagt Gísla og að lokum birtist hann þjóðinni sem hálfgerður furðufugl. Það var hann þó alls ekki, að sögn Ingibjargar, hann var einlægur maður sem velti mikið fyrir sér tilgangi lífsins. „Og hann stendur að lokum uppi sem sigurvegari öllum þessum árum síðar. Fólkið sem kom illa fram við hann er gleymt." Það vill reyndar svo skemmtilega til að Ingibjörg á afmæli í dag. Gjöfin er því nokkuð einstök. „Og ég gaf bókina út á 105 ára afmæli Gísla. Svo fæ ég þessa afmælisgjöf frá honum," segir Ingibjörg um sérkennilega hringrás lífsins.
Tengdar fréttir Gísli á Uppsölum veltir Arnaldi úr sessi Gísli á Uppsölum eftir Ingibjörgu Reynisdóttur, er söluhæsta bók síðustu viku samkvæmt metsölulista Félags bókaútgefanda. 4. desember 2012 11:47 Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Baldur til Eyja Innlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Sjá meira
Gísli á Uppsölum veltir Arnaldi úr sessi Gísli á Uppsölum eftir Ingibjörgu Reynisdóttur, er söluhæsta bók síðustu viku samkvæmt metsölulista Félags bókaútgefanda. 4. desember 2012 11:47