Verðlaun Háskólans í Reykjavík afhent Samúel Karl Ólason skrifar 29. mars 2014 10:49 Leifur Þór, Hrannar, Daníel Brandur, forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Ari Kristinn Jónsson, rektor HR. Mynd/Aðsend
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti í gær verlaun Háskólans í Reykjavík fyrir framúrskarandi árangur í rannsóknum, þjónustu og kennslu. Umrædd verðlaun eru veitt á hverju ári og er þeim ætlað að hvetja kennara og starfsfólk háskólans til nýsköpunar, þróunarstarfs, rannsókna og framúrskarandi þjónustu. Rannsóknarverðlaun HR hlaut dr. Leifur Þór Leifsson, flugvélaverkfræðingur og dósent við tækni- og verkfræðideild. Rannsóknarsvið hans eru þróun hraðvirkra hönnunaraðferða og gerð ómannaðra farartækja. „Við val á rannsóknarverðlaunum HR er litið til birtinga rannsókna á alþjóðlegum vettvangi, öflun styrkja, framlags til rannsóknarstarfs háskólans, áhrifa á nemendur og unga rannsakendur og þátttöku í uppbyggingu rannsóknarsetra,“ segir í tilkynningu frá HR. Kennsluverðlaun HR hlaut Daníel Brandur Sigurgeirsson, aðjúnkt við tölvunarfræðideild. „Hann hefur þróað og skapað ný námskeið, farið nýjar leiðir í kennslunni og náð mjög sterkum tengslum við nemendur. Hann hefur fengið afbragðsgott kennslumat í gegnum árin og leitt nýtingu upplýsingatækni,“ sagði Ari Kristinn Jónsson, rektor HR. Handhafi þjónustuverðlauna HR er Hrannar Traustason, umsjónarmaður rafeindaverkstæðis. „Þegar kemur að þjónustuverðlaunum er horft til gæða þjónustu, skjótra viðbragða, góðs viðmóts, frumkvæðis, tengsla við starfsmenn og nemendur, samstarfs við önnur svið HR, þekkingar og færni á fagsviði.“
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira