Kona á níræðisaldri var skölluð Samúel Karl Ólason skrifar 29. mars 2014 11:49 Vísir/Valgarður
Ráðist var á 83 ára gamla konu og var hún skölluð í garði fjölbýlishúss við Njarðargötu um fimmleytið í gær. „Hún var að tala við hund stráks sem býr tveimur stigagöngum við hliðina á henni, þegar hann kemur út rífur í hana og skallar hana,“ segir Gísli Birgir Ólsen. „Annar strákur reyndi að aðstoða hana, en hann skallaði hann líka.“ Hann segir tvo lögregluþjóna hafa komið á vettvang, en annar þeirra hafi ekki stigið úr bílnum. „Þau tóku niður nafnið á konunni og stráknum sem var líka skallaður og fóru fljótlega eftir það,“ segir Gísli. Hann segir einnig að margir íbúar hússins hafi orðið vitni að árásinni en árásarmaðurinn hafi flúið af vettvangi á bíl. „Við tókum niður númerið á bílnum og létum lögregluna vita af því. Það er ótrúlegt hvað þau höfðu lítinn áhuga á þessu. Þeir töluðu ekki einu sinni við kærustu stráksins sem var í íbúðinni hans.“ Kærasta gísla er barnabarn konunnar og voru þau í líkamsrækt þegar hún fékk símtal um að einhver hefði ráðist á ömmu hennar. Konan fékk stóra kúlu á höfuðið og marðist mjög og var í um fimm tíma á spítala segir Gísli. „Þau eru nú öll vön á sjúkrahúsinu, en þetta höfðu þau ekki séð áður. Fyrst héldu allir að hún hefði dottið, en þegar upp kom að hún hefði verið skölluð voru allir mjög hissa.“ Maðurinn sem reyndi að hjálpa konunni fór einnig á spítala. „Hann hringi svo aftur í lögregluna og fékk þau svör að það væri mjög mikið að gera hjá þeim. Hann mætti koma til þeirra á Hverfisgötu, en ekki væri hægt að senda fólk til hans,“ segir Gísli. Maðurinn sem réðst á konuna í gær, var handtekinn fyrir utan húsið á fimmta tímanum í nótt. Þá hafði hann brotið rúður í fimm bílum og rispað rúður í einni. Til verksins notaði hann sérstakan neyðarhamar sem ætlaður er til að brjóta rúður og skera öryggisbelti í bílslysum. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að hann hafi gist fangageymslur í nótt og verði yfirheyrður þegar hann verður í ástandi til þess.Uppfært 14:40Í tilkynningu frá lögreglu segir að maðurinn hafi, við yfirheyrslu í dag, viðurkennt bæði líkamsárásina og skemmdarverkin.
Mest lesið Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira